Þúsund á dag krefjast þess að Google gleymi þeim

Google hefur borist um 145 þús­und beiðnir frá aðilum sem vilja láta fjar­lægja upp­lýs­ingar um sig úr leit­ar­vél­inni eftir að Evr­ópu­dóm­stóll­inn úrskurð­aði að fyr­ir­tækið ætti að fjar­lægja óvið­kom­andi og/eða úr sér gengnar upp­lýs­ingar með dómi í maí síð­ast­liðnum. Nið­ur­staða dóm­stóls­ins byggir á rétti ein­stak­lings­ins til að verða gleymdur.

Það þýðir að Google ber­ist meiri en eitt þús­und slíkar beiðnir á hverjum ein­asta degi. Alls geta rúm­lega 500 milljón manns í 32 mis­mun­andi löndum, þar með talið á Íslandi, farið fram á að hlekkir með upp­lýs­ingum um sig verði fjar­lægðir úr leit­ar­vél Google, sem er sú langstærsta í heim­inum í dag.

Þjóðverjar með flestu beiðnirnar


The Guardian greinir frá því að um 18.304 beiðnir hafi borist frá Bretum til Google um að fjar­lægja alls um 60 þús­und hlekki með upp­lýs­ingum um þá af leit­ar­vefnum. Af þeim hefur Google fjar­lægt 18.459 hlekki og hefur því orðið við um 35 pró­sent af beiðn­unum.Flestir hlekkir hafa verið fjar­lægðir að beiðni Frakka, 29.010, og Þjóð­verja, 25.078.

Sú ákvörðun að fjar­lægja hlekki að fréttum eða upp­lýs­ingum um nafn­greinda ein­stak­linga vakti upp heitar umræður um hvort að með því færi fram rit­skoðun á því efni sem birt­ist í leit­ar­vél Google eða hvort verið væri að slá skjald­borg um sjálf­sögð mann­rétt­indi fólks.

Flestir hlekkir fjarlægðir á Facebook


Google hefur birt nokkur dæmi um beiðnir sem bár­ust frá Bret­landi. Fyr­ir­tækið seg­ist meðal ann­ars ekki hafa orðið við beiðni frá fjöl­miðla­manni um aðfjar­lægja fjóra hlekki á greinar sem sögðu frá nið­ur­lægj­andi efni sem hann póstaði á inter­net­inu né beiðni læknis sem fór fram á að um 50 hlekkir á fréttir um mislukk­aða aðgerð sem hann tók þátt í yrðu fjar­lægðir. Í síð­ara til­fell­inu voru reyndar þrír af þeim hlekkjum sem lækn­ir­inn vildi losna við fjar­lægðir en ekki var minnst á aðgerð­ina í neinum þeirra.

Sú síða sem flestir hlekkir hafa verið fjar­lægðir á er Facebook, alls eru þeir 3.353 tals­ins. Profileengine.com er í öðru sæti og Youtube í því þriðja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár