Pornhub-skiltið fær ekki að standa á Times Square

Risa­vaxið aug­lýs­inga­skilti sem klám­ris­inn Pornhub setti upp á Times Square í New York í byrjun viku fékk ekki að standa upp­rétt lengi. Það var tekið niður á mið­viku­dags­kvöldið. Samkvæmt frétt Guardian um málið er talið að það sé vegna þess að DoubleTree Hilton hót­elið, sem aug­lýs­inga­skiltið, hékk framan á, hefði sett sig á móti því.

Skiltið sýndi mynd af tveimur höndum að mynda hjarta utan um vöru­merki Pornhub með yfir­fyr­ir­sögn­inni „All you need is hand“, sem útleggst á íslensku sem „allt sem þú þarft er hönd“. Pornhub, sem er með höf­uð­stöðvar í Kanada, er ein stærsta klám­veita inter­nets­ins.

Aug­lýs­inga­skiltið er afrakstur sam­keppni sem Pornhub stóð fyrir í febr­úar á þessu ári og mið­aði að því að búa til aug­lýs­ingar fyrir fyr­ir­tækið sem væri ekki klám­fengnar en næðu samt að fanga kjarna­starf­semi þess. Sig­ur­veg­ari keppn­innar, tyrk­neski aug­lýs­inga­mað­ur­inn Nuri Galver var val­inn úr hópi yfir þrjú þús­und þátt­tak­enda. Til­gangur inn­reiðar Pornhub inn á hinn almenna aug­lýs­inga­markað, en fyr­ir­tækið hefur ein­vörð­ungu ein­beitt sér að klám­fengnum inter- og snjall­síma­aug­lýs­ingum fram að þessu, var að gera vöru­merkið sitt þekkt utan þess hóps sem þegar sækir í þjón­ustu Pornhub.

Til að fylgja skilt­inu stóra, sem 16,5x14,6 metrar að stærð, var ráð­ist í aðra hug­mynd sem kom frá Galver. Hún snérist um að láta fólk af mis­mun­andi þjóð­ernum, með mis­mun­andi hendur, syngja bítla­lagið „All You Need Is Love“ með nýju við­lagi sem útleggst „All You Need Is Hand“. Hægt er að horfa á mynd­band af gjörn­ingnum hér að neðan.

http://www.youtube.com/watch?v=XeHwQ-Jln60

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár