SPRON átti allt sitt undir því að Exista lifði - ákæran í heild

Fjórir fyrrum stjórn­ar­menn í SPRON voru fyrr í vik­unni ákærðir fyrir umboðs­svik vegna tveggja millj­arða króna láns sem SPRON veitti Exista þann 30. Sept­em­ber 2008, deg­inum eftir að Glitnir var þjóð­nýttur og íslenska banka­kerfið allt var á helj­ar­þröm. Hinir ákærðu eru Guð­mundur Örn Hauksson, fyrrum spari­sjóðs­stjóri og síðar for­stjóri SPRON, og stjórn­ar­menn­irnir Rannveig Rist, sem er for­stjóri Rio Tinto Alcan, Margrét Guð­munds­dóttir, stjórn­ar­for­maður N1, auk Ara Berg­manns Ein­ars­sonar og Jóhanns Ásgeirs Baldurs.

Erlendur Hjalta­son, sem jafn­framt var annar tveggja for­stjóra Exista ásamt Sigurði Val­týs­syni, er ekki ákærður en hann vék af stjórn­ar­fundi SPRON þegar lánið var sam­þykkt. Þetta er í fyrsta skipti sem sér­stakur sak­sókn­ari ákærir stjórn fjár­mála­fyr­ir­tækis vegna ákvarð­ana í aðdrag­anda hruns­ins.

Ákæran í mál­inu er hér með­fylgj­andi frétt­inni. Ákært er fyrir umboðs­svik þar sem fyrr­nefnt lán var veitt án trygg­inga, pen­inga­mark­aðs­lán með gjald­daga 31. októ­ber 2008.

Kjarninn ákvað að rekja tengsl SPRON við Exista og reyna að útskýra hvað bjó að baki lán­veit­ing­unni sem var veitt á þessum víð­sjár­verðu tímum, og tap­að­ist á end­anum öll.

[caption id="attachment_9023" align="aligncenter" width="600"] Rannveig Rist, for­stjóri Rio Tinto Alcan, er á meðal þeirra sem eru ákærðir í mál­inu. Hún mun gegna starfi sínu áfram á meðan að málið stendur yfir.[/caption]

Spari­sjóð­ur­inn sem varð fjár­fest­inga­fé­lag

SPRON tók skrefið frá spari­sjóða­mód­el­inu og í átt að hreinni fjár­fest­ing­ar­starf­semi lengra en flestir aðrir spari­sjóðir. Sjóðnum var meðal ann­ars breytt í hluta­fé­lag haustið 2007, en virði félags­ins féll gratt í kjöl­farið og búið var að sam­þykkja að láta Kaupþing taka SPRON yfir sum­arið fyrir banka­hrun. Af þeirri sam­ein­ingu varð þó aldrei og á end­anum var SPRON tek­inn yfir af Fjár­mála­eft­ir­lit­inu [quote font="0" align="right"]„Fram að útgáfu skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um spari­sjóði lands­ins, sem komu út í apríl 2014, hafði lítið lekið út um hvað gekk á innan þessa áður stærsta spari­sjóðs lands­ins. Sú skýrsla varp­aði ljósi á margt sem áður var á huldu.“[/quote]og lagður niður vorið 2009. Fram að útgáfu skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um spari­sjóði lands­ins, sem komu út í apríl 2014, hafði lítið lekið út um hvað gekk á innan þessa áður stærsta spari­sjóðs lands­ins. Sú skýrsla varp­aði ljósi á margt sem áður var á huldu.

Lánuðu Exista á ögur­stundu

Eitt þeirra mála sem þar voru leidd fram í dags­ljósið var lán sem SPRON veitti Existu þann 30. sept­em­ber 2008, dag­inn eftir að ríkið til­kynnti um þjóð­nýt­ingu Glitnis og í miðju banka­hruni, upp á tvo millj­arða króna. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar segir: „Sam­dæg­urs [...]lagði dótt­ur­fé­lag Exista hf., Vátrygg­inga­fé­lag Íslands hf., 2 millj­arða króna pen­inga­mark­aðsinn­lán inn í [SPRON] með sama upp­hafs- og loka­dag og lánið til Existu [...] Pen­inga­mark­aðsinn­láni Vátrygg­inga­fé­lags Íslands var breytt í almennt inn­lán á gjald­daga þess, 31. októ­ber 2008“.

Vátrygg­inga­fé­lag Ísland mátti vænt­an­lega ekki lána Existu þessa pen­inga beint. Því lagði félagið pen­ing­anna inn í SPRON og þeir síðan lán­aðir áfram til Existu, sem var á helj­ar­þröm á þessum tíma. Í lok októ­ber var pen­inga­mark­aðsinn­láni Vátrygg­inga­fé­lags­ins hins vegar breytt í almennt inn­lán og SPRON sat eftir með tapið af lán­inu, sem átti upp­haf­lega að vera til 30 daga, ef það feng­ist ekki greitt.

[caption id="attachment_9021" align="aligncenter" width="599"] Guð­mundur Hauksson var spari­sjóðs­stjóri SPRON, og síðar for­stjóri þegar sjóð­ur­inn var gerður að hluta­fé­lagi. Hann var einnig fyrrum for­stjóri Kaup­þings, sat í stjórn Exista þegar lánið umdeilda var veitt og var stjórn­ar­maður í Kistu.[/caption]

„Óheppi­leg lán­veit­ing“

Lánið sem SPRON veitti Existu í auga storms­ins var auð­vitað aldrei greitt til baka. Á fundi end­ur­skoð­un­ar­nefndar SPRON í jan­úar 2009 kom fram að þetta hefði verið „óheppi­leg lán­veit­ing“. 1,6 millj­arðar króna voru færðir á afskrift­ar­reikn­ing í lok árs 2008 en sú upp­hæð var enn útistand­andi í júlí 2009 og hefur þannig lík­ast til öll tap­ast.

Alls nam skuld Existu við SPRON um 2,5 millj­örðum króna í lok árs 2008. Því er ljóst að þetta lán, veitt á mjög víð­sjár­verðum tímum, er uppi­staðan í við­skiptum SPRON og Existu. Spari­sjóð­ur­inn [quote font="0" align="right"]„Af hverju leit­aði Exista, með öll sín alþjóð­legu banka­tengsl, til litla SPRON til að fá fyr­ir­greiðslu á þessum tíma?“[/quote]fyrr­ver­andi var aug­ljós­lega ekki einn af þeim fjár­mála­stofn­unum sem Exista var að sækja fjár­mögnun reglu­lega til. Fjár­fest­inga­fé­lagið skuld­aði enda hund­ruði millj­arða króna sem teknar höfðu verið á láni víðs­vegar um heim til að fjár­magna upp­kaup þess á ýmis­konar fyr­ir­tækjum.

Af hverju leit­aði Exista, með öll sín alþjóð­legu banka­tengsl, til litla SPRON til að fá fyr­ir­greiðslu á þessum tíma?

[caption id="attachment_9025" align="aligncenter" width="600"] Margrét Guð­munds­dóttir, sem í dag er stjórn­ar­for­maður N1, sat í stjórn SPRON þegar lánið til Exista var veitt. Hún er á meðal ákærðu í máli sér­staks sak­sókn­ara.[/caption]

Tengsl SPRON, Kaup­þings og Existu mikil

Þótt SPRON hafi ekki lánað Exista mikið af pen­ingum áður en kom að þess­ari tveggja millj­arða króna lán­veit­ingu í miðju hrun­inu var sam­kurl SPRON og Existu mjög víð­tækt og átti sér langa sögu.

Á tíunda ára­tugnum áttu átta spari­sjóðir í land­inu, þar á meðal SPRON, eign­ar­halds­fé­lag sem hét Meiður. Félagið hélt á eign­ar­hluti spari­sjóð­anna átta í þá litlu fjár­mála­fyr­ir­tæki sem hét Kaupþing. For­stjóri Kaup­þings á þessum tíma var Guð­mundur Hauksson. Hann hætti þar 1996 til að taka við stöðu spari­sjóðs­stjóra SPRON, sem þá þótti stærra starf en að stýra litlu fjár­mála­fyr­ir­tæki. Það átti hins vegar eftir að breyt­ast.

Þegar einka­væð­ing Bún­að­ar­bank­ans, sem síðar varð hluti af Kaup­þingi, stóð sem hæst í októ­ber 2002 setti Kaupþing eign sína í sjálfu sér inn í eign­ar­halds­fé­lagið Meið. Kaupþing mátti sam­kvæmt lögum ekki eiga meira en tíu pró­sent í sjálfu sér og því var ljóst að bank­inn þurfti að selja sinn hlut í Meið. Það gerði Kaupþing í lok des­em­ber 2002, skömmu áður en S-hóp­ur­inn svo­kall­aði kláraði kaupin á Bún­að­ar­bank­anum af rík­inu. Kaupin voru fjár­mögnuð af Kaup­þingi og kaup­and­inn var Bakka­bra­edur Holding, félag í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­munds­sona. Bræð­urnir höfðu verið góðir við­skipta­vinir Kaup­þings um skeið og sterk tengsl höfðu skap­ast á milli þeirra og helstu stjórn­enda Kaup­þings. Þeir treystu ein­fald­lega þessum bræðrum og á grunni þess trausts var ákveðið að fela þeim að kaupa rúm­lega helm­ing­inn í Meið.

Alls eign­uð­ust bræð­urnir 55 pró­sent í Meið við þessi kaup. Þegar Kaupþing var sam­einað Bún­að­ar­bank­anum nokkrum mán­uðum eftir einka­væð­ingu þess síð­ar­nefnda urðu bræð­urnir síðan á meðal stærstu eig­enda hins sam­ein­aða banka, stærsta banka lands­ins. Þeirri stöðu héldu þeir fram að falli bank­ans í októ­ber 2008, en þá áttu þeir tæp­lega fjórð­ung allra hluta­bréfa.

Kista spari­sjóð­anna

Bræð­urnir breyttu nafni Meiðs í Exista vorið 2005. Helsta eign félags var stór hlutur í Kaup­þingi en starf­semin var þó farin að teygja betur úr sér. Sumarið eftir keypti félagið ásamt Kaup­þingi til dæmis hlut rík­is­ins í Símanum, langstærsta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins, á tæpa 67 millj­arða króna.

Spari­sjóð­irnir, þar á meðal SPRON, settu eign­ar­hlut sinn í Existu inn í fjár­fest­inga­fé­lag sem fékk nafnið Kista. Í lok árs 2007 var Kista annar stærsti hlut­hafi Existu á eftir Bakka­var­ar­bræðr­unum. Alls var hlutur Kistu í Existu met­inn á 20 millj­arða króna. Félagið hafði hins vegar skuld­sett sig gríð­ar­lega með lánum frá Kaup­þingi, Glitni og Straumi til að eign­ast þessa hluti. Alls námu skuldir Kistu [quote font="0" align="right"]„Spari­sjóð­irnir settu eign­ar­hlut sinn í Existu inn í fjár­fest­inga­fé­lag sem fékk nafnið Kista. Í lok árs 2007 var Kista annar stærsti hlut­hafi Existu á eftir Bakka­var­ar­bræðr­unum.“[/quote]17,3 millj­örðum króna á þessum tíma.

Hluta­bréfa­verð í Existu hafði lækkað hratt árið 2007 og Kista „tapað“ 8,5 millj­örðum króna. Í stað þess að draga í land og minnka áhætt­una sem þessi eina fjár­fest­ing skap­aði eig­end­unum var ákveðið að auka hana enn frekar. Snemma árs 2008 juku eig­endur Kistu hlutafé félags­ins um 7,1 millj­arða króna til að koma í veg fyrir að eignir yrðu lægri en skuldir. Auk þess lögðu þeir fram auknar ábyrgðir til að ekki væri hægt að gjald­fella lánin.

Dóminó-áhrif vegna falls Kaup­þings

Kista, og spari­sjóð­irnir sem áttu félagið, áttu því gríð­ar­lega mikið undir því að Exista myndi lifa af. Ef Exista færi á haus­inn myndu þeir lík­ast til gera það líka. Auk þess voru ýmis­leg tengsl milli stjórn­enda félag­anna.

Erlendur Hjalta­son, annar tveggja for­stjóra Existu áður en félagið fór á hlið­ina, var stjórn­ar­for­maður SPRON og Guð­mundur Hauksson, for­stjóri SPRON, sat í stjórn Exista. Guð­mundur, sem er einn hinna ákærðu í mál­inu, átti auk þess hluti í Existu og hafði því mikla per­sónu­lega fjár­hags­lega hags­muni af því að Exista lifði. Hann sat líka í stjórn Kistu á sínum tíma.

Ástæða þess að Erlendur Hjalta­son er ekki ákærður í mál­inu sem sér­stakur sak­sókn­ari hefur nú höfðað er sú að hann vék af fundi áður en lánið til Exista, sem veitt var 30. sept­em­ber 2008, var tekið til umfjöll­unar.

Við banka­hrunið varð eign Existu í Kaup­þingi, og um leið eign Kistu í Existu, verð­laus. Á sama tíma varð ljóst að Exista myndi ekki greiða skuld sína við SPRON.

Fjár­fest­inga­fé­lagið Kista varð gjald­þrota eftir banka­hrun. Félagið átti 1,2 millj­ónir króna upp í 14 millj­arða króna kröfur.

Ákæra - 02.10.14

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár