Dagurinn í dag er „Leif Erikson Day“ í Bandaríkjunum

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, sendi árlega kveðju sína til heims­byggð­ar­innar í til­efni af degi Leifs Eiríks­sonar út í gær. Dagurinn er hald­inn hátíð­legur í Banda­ríkj­unum í dag, 9. októ­ber, til að heiðra arf­leið Banda­ríkj­anna og minn­ingu þeirra Norrænu manna sem námu land í Norður-Ameríku fyrir rúm­lega þús­und árum síðan.

Leifur, sem fékk síðar við­ur­nefnið „hinn heppni“ eftir að hafa bjargað skips­brots­mönnum af skeri, var íslenskur land­könn­uður sem talin er hafa komið fyrstur Evr­ópu­búa til Norður-Ameríku í kringum árið 1000, tæpum fimm hund­ruð árum áður en Krist­ó­fer Kólumbus nam land í nýja heim­inum.

Í yfir­lýs­ingu Obama kemur fram að þegar Leifur, sonur Íslands og barna­barn Noregs, hafi farið frá sínum Norrænu heim­kynnum og siglt vestur þegar þorri heims­ins var óþekktur. Því sé til­efni til að við­ur­kenna hug­rekki og áræðni þeirra sem lögðu í þann könn­un­ar­leið­angur í leit að nýjum tæki­færum.

Yfir­lýs­ing Barack Obama frá því í gær í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár