Topp 5: Vinsælustu ferðamannalönd heims

Hinn sífellt vax­andi ferða­manna­straumur sem liggur til Íslands hefur vart farið fram­hjá neinum. Fjöldi erlendu gest­anna sem ákveða að heim­sækja okkar harð­býlu, hrjúfu en stór­kost­lega fal­legu eyju hefur farið úr því að vera 248.580 árið 2002 í að verða 781.016 í fyrra. Þá náði ferða­manna­iðn­að­ur­inn líka að verða stærsta útflutn­ings­stoð þjóð­ar­innar þegar hann náði í 275 millj­arða króna í tekjur, eða 26,8 pró­sent af öllum útlutn­ings­tekjum Íslands það árið. Þar með tók ferða­manna­iðn­að­ur­inn fram úr sjáv­ar­út­vegi (25,5 pró­sent) og áliðn­að­inum (21 pró­sent).

Áríð í ár mun síðan slá öll met. Í lok ágúst voru ferða­menn­irnir þegar orðir um 700.000 tals­ins og ljóst að heild­ar­fjöld­inn mun verða enn meiri en í fyrra. Margir hafa miklar áhyggjur af þess­ari hröðu aukn­ingu og telja að inn­viðir muni ekki þola mikið meiri ágang. En hvar stendur Ísland í sam­an­burði við stærstu ferða­manna­lönd heims­ins?

5. Ítalía (47,7 milljónir gesta)


Það kemur lík­ast til fæstum á óvart að Ítalía sé einn vin­sæl­asti áninga­staður ferða­manna í heim­inum. Landið er enda ríkt af stór­brot­inni sögu, mögn­uðum mann­virkjum, ríkri mat­ar­hefð og auð­vitað þrælfínu veð­ur­fari. Róm, Feneyjar, Flórens og allir hinir stað­irnir í stig­véla-land­inu trekktu að 47,7 millj­ónir ferða­manna á árinu 2013.

4. Kína (55,7 milljónir gesta)


Risinn í Asíu er líka lang­vin­sælasta ferða­manna­land álf­unnar. Þangað komu 55,7 millj­ónir manna í fyrra, eða um 29 milljón fleiri en heim­sóttu Tæland, sem er í öðru sæti yfir vin­sælasta ferða­manna­landið í Asíu. Kína­m­úr­inn, menn­ingin og blóði drifin sagan hjálp­ast öll að við að draga upp­lif­un­ar­þyrsta túrista til Kína. Það verður þó að telj­ast áhyggju­efni fyrir Kína að ferða­mönnum fækk­aði um tvær millj­ónir á milli ára.

3. Spánn (60,7 milljónir gesta)


Spán­verjar hafa upp­lifað miklar efna­hags­legar hremm­ingar frá því að alþjóð­lega fjár­málakreppan skall á árið 2008. Atvinnu­leysi ungs fólks hefur til að mynda verið vel á þriðja tug pró­sent. Það sem hefur bjargað land­inu frá enn verri útreið er gríð­ar­legur áhugi þeirra sem búa þar ekki að heim­sækja sól­ríkar strend­urnar á Suður-Spáni, hina æðis­legu Barcelona-borg eða suðu­pott­inn Madrid. Ferða­mönnum sem heim­sóttu Spán fjölg­aði um 3,2 millj­ónir í fyrra og voru alls 60,7 millj­ónir.

2. Bandaríkin (69,8 milljónir gesta)


Banda­ríkin eru ekki bara valda­mesta ríki heims, heldur lika næst vin­sæl­asti áninga­staður ferða­manna hans. Alls komu 69,8 millj­ónir manna til ríkj­anna 50 á árinu 2013, sem var rúmum þremur millj­ónum fleiri en árið áður. Það verður að telj­ast dágóður árangur hjá ríki sem reynir að vera eins frá­hrind­andi í örygg­is­leit­inni á alþjóða­flug­völlum þjóð­ar­innar og mögu­legt er.

1. Frakkland (84,7 milljónir gesta)


París, Rivíeran, vín­héröðin, strend­urnar og allt hitt sem gerir Frakk­land æðis­legt varð til þess að 84,7 millj­ónir manna heim­sóttu landið heim á árinu 2013. Það er 15 millj­ónum fleiri en þeir sem fóru til Banda­ríkj­anna. Ferða­menn­irnir sem settu met í að heim­sækja Ísland í fyrra eru ein­ungis eitt pró­sent af þeim sem fara til Frakk­lands árlega. Snobbuðu baguet-æturnar eru því sann­ar­lega að gera eitt­hvað rétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár