Hálfur milljarður í eftirlaun þingmanna og ráðherra

Á árinu 2013 fengu 218 þing­menn eða vara­þing­menn og 49 ráð­herrar greitt sam­kvæmt hinum umdeildu lögum um eft­ir­laun for­seta Íslands, ráð­herra, alþing­is­manna og hæsta­rétt­ar­dóm­ara, sem sam­þykkt voru árið 2003 og tryggðu þessum hópi mun betri eft­ir­launa­rétt­indi en flestum öðrum í íslensku sam­fé­lagi. Samtals námu greiðslur til þessa hóps 479,1 milljón króna í fyrra. Þetta kemur fram í svari Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR) við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Fjöldi þeirra fyrrum þing­manna og ráð­herra sem þiggja eft­ir­laun sam­kvæmt lög­unum hefur auk­ist mjög á síð­ustu sex árum. Á árinu 2007 voru þeir 164 tals­ins en í fyrra voru þeir orðnir 267. Þiggj­end­unum hefur því fjölgað um 103 á tíma­bil­inu.

Hundruð milljóna í eftirlaunagreiðslur


Í svari LSR kemur fram að sjóð­ur­inn greiddi alls 368,7 millj­ónir króna vegna eft­ir­launa fyrrum þing­manna og vara­þing­manna árið 2013. Með­al­greiðsla til hvers fyrrum þing­manns eða vara­þing­manns var tæp­lega 1,7 millj­ónir króna. Vert er að taka fram að þiggj­end­urnir 218 hafa unnið sér inn mis­mun­andi mikil rétt­indi og því skipt­ast greiðsl­urnar mjög mis­mun­andi á milli þeirra.

Greiðsl­urnar til ráð­herr­anna 49, sam­tals 110,4 millj­ónir króna á síð­asta ári, voru tölu­vert hærri að með­al­tali, eða tæp­lega 2,3 millj­ónir króna á hvern þeirra. Sama gildir um þá og fyrrum þing­menn­ina, greiðsl­urnar skipt­ast afar mis­mun­andi eftir því hvað þeir sátu lengi á ráð­herra­stóli.

[quote font="0"]

„Flutn­ings­menn frum­varps­ins voru upp­haf­lega úr öllum stjórn­mála­flokkum sem þá sátu á Alþingi. Eftir að inni­hald þess komst í umræð­una snérist hluti flutn­ings­manna gegn því.“

[/quote]

Fjórir fengu greitt frá hinu opinbera samhliða eftirlaunatöku


Kjarninn spurði líka hversu margir fyrrum þing­menn eða fyrrum ráð­herrar þiggi eft­ir­laun sam­hliða því að greiða iðgjöld í sjóð­inn, en geri þeir það þá þiggja þeir enn laun vegna opin­bers starfs sam­hliða eft­ir­launa­töku. Í svari LSR segir að „Enginn fyrrum þing­maður greiðir iðgjald til sjóðs­ins af föstu starfi á vegum rík­is­ins eða stofn­ana þess. Þrír fyrrum þing­menn hafa á þessu ári greitt iðgjald til sjóðs­ins af launum fyrir til­fallandi verk­efni eða nefnd­ar­störf [...] Enginn fyrrum ráð­herra greiðir iðgjald til sjóðs­ins af föstu starfi á vegum rík­is­ins eða stofn­ana þess. Einn fyrrum ráð­herra hefur á þessu ári greitt iðgjald til sjóðs­ins af launum fyrir til­fallandi verk­efni eða nefnd­ar­störf.“

Því fengu þrír fyrrum þing­menn og einn fyrrum ráð­herra greitt fyrir til­fallandi verk­efni eða nefnd­ar­störf á síð­asta ári sam­hliða því að þeir þáðu eft­ir­laun.

Greiðslur vegna eftirlauna ráðherra tvöfaldast


Fjöldi þeirra fyrrum þing­manna eða vara­þing­manna sem þiggja eft­ir­laun hefur fjölgað tölu­vert á und­an­förnum árum. Árið 2007 voru þeir 129 tals­ins og hefur þeim því fjölgað um 89 á sex árum, eða um tæp­lega 70 pró­sent. Það ár var kostn­aður vegna greiðslna til fyrrum þing­manna eða vara­þing­manna um 200 millj­ónir króna, eða um 169 millj­ónum krónum lægri en kostn­að­ur­inn var í fyrra. Það þýðir að kostn­aður vegna eft­ir­launa­greiðslna hóps­ins hefur auk­ist um rúm­lega 80 pró­sent á tíma­bil­inu. Með­al­kostn­aður á hvern þing­mann eða vara­þing­mann hefur líka hækkað, en hann var um rúm­lega 1,5 millj­ónir króna á hvern þeirra á árinu 2007.

Ráð­herrum sem fá greidd eft­ir­laun hefur líka fjölgað. Þeir voru 35 árið 2007 en voru orðnir 49 í fyrra. Það er 40 pró­sent aukn­ing á sex ára tíma­bili. Samtals fengu þeir nálægt 50 millj­ónum króna í eft­ir­launa­greiðslur þá en 110,4 millj­ónir króna í fyrra. Greiðsl­urnar hafa því tvö­fald­ast á tíma­bil­inu.

Færri fyrrum ráð­herrar eru hins vegar í laun­uðum störfum hjá rík­inu nú en á árinu 2007. Á því ári voru níu þiggj­endur eft­ir­launa­greiðslna einnig í laun­uðum störfum hjá rík­inu.

Upphaflega flutt af öllum flokkum


Eft­ir­launa­frum­varpið sem varð að lögum í des­em­ber 2003 var gíf­ur­lega umdeilt. Það fól í sér mun rýmri eft­ir­launa­rétt­indi fyrir for­seta Íslands, ráð­herra, þing­menn og hæsta­rétta­dóm­ara en tíðk­að­ist almennt. Auk þess var meðal ann­ars kveðið á um það í lög­unum að fyrr­ver­andi ráð­herrar gætu farið á eft­ir­laun við 55 ára aldur.

Flutn­ings­menn frum­varps­ins voru upp­haf­lega úr öllum stjórn­mála­flokkum sem þá sátu á Alþingi. Eftir að inni­hald þess komst í umræð­una snérist hluti flutn­ings­manna gegn því. Halldór Blöndal mælti fyrir frum­varp­inu, en hann hafði lengi verið þing­maður og ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þegar Halldór gerði það sagði hann það meðal ann­ars vera lýð­ræð­is­lega nauð­syn að svo væru búið að þeim emb­ættum og störfum sem frum­varpið næði til að „það hvetji til þátt­töku í stjórn­málum og að þeir sem verja meg­in­hluta starfsævi sinnar til stjórn­mála­starfa á opin­berum vett­vangi og gegna þar trún­aðar- og for­ustu­störfum geti dregið sig í hlé og vikið fyrir yngra fólki án þess að hætta fjár­hags­legri afkomu sinni“.

Allir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, sem mynd­uðu rík­is­stjórn þess tíma, greiddu atkvæði með frum­varp­inu. Aðrir greiddu ýmist atkvæði á móti eða sátu hjá, nema Guð­mundur Árni Stef­áns­son, þá þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, en hann var einn flutn­ings­manna frum­varps­ins. Guð­mundur Árni greiddi atkvæði með því að frum­varpið yrði að lögum.

Í des­em­ber 2008, fimm árum og einum degi eftir að eft­ir­launa­lögin voru sam­þykkt, breytti Alþingi þeim og hækk­aði meðal ann­ars lág­marks­aldur við eft­ir­launa­töku úr 55 árum í 60. Áunnin rétt­indi stóðu hins vegar eftir óskert og því ljóst að margir fyrrum for­víg­is­menn stjórn­mál­anna hafi náð að safna tölu­verðum rétt­indum á meðan að lögin voru í gildi. Lögin umdeildu voru loks afnumin vorið 2009 hvað varðar þing­menn og ráð­herra þó kafl­arnir um hæsta­rétt­ar­dóm­ara og for­seta hafi verið látnir halda sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár