Knattspyrnuáhorfendur ekki færri í fimmtán ár

Ef Íslands­mót­inu í knatt­spyrnu myndi ljúka í dag, eftir 21. umferð, væri með­al­tals­að­sókn á leiki í efstu deild karla sú lægsta frá árinu 1999. Alls hafa 898 manns horft á hvern leik deild­ar­innar að með­al­tali nú þegar ein umferð er eftir af henni. Sumarið 2013 voru þeir 1.057 að með­al­tali og því hefur með­al­tals­að­sókn dreg­ist saman um 15 pró­sent á milli ára. Haldist þessi með­al­tals­að­sókn í síð­ustu umferð deild­ar­innar verður það í fyrsta skipti síðan árið 2002 sem hún fer undir 1.000 manns á leik.

[visualizer id="8254"]

Stórleikur gæti lagað stöðuna


Kjarninn hefur talið saman þann fjölda sem mætt hefur á þá 126 leiki sem þegar hafa verið leiknir í Pepsí-deild karla í sumar sam­kvæmt leik­skýrslum sem birtar eru á vef KSÍ. Alls eru upp­gefnar áhorf­enda­tölur í 121 leikj­anna og tölur úr hinum fimm leikj­unum var hægt að nálg­ast í ann­ars vegar umfjöll­unum Frétta­blaðs­ins og hins vegar Morg­un­blaðs­ins. Alls hafa 113.171 áhorf­endur mætt á leik­ina 126, eða 5.389 að með­al­tali í hverri umferð. Það gerir 898 manns á hvern leik.

Allar líkur eru á því að með­al­talið eigi eftir að hækka þar sem áhorf­endur flykkj­ast vana­lega á loka umferð deild­ar­innar. Í ár fer auk þess fram hreinn úrslita­leikur FH og Stjörn­unnar um Íslands­meist­ara­tit­ill­inn í Kaplakrika á laug­ar­dag. Búist er við að fimm til sex þús­und áhorf­endum mæti á leik­inn. Þeir gætu því orðið fleiri á þessum eina leik en áhorf­endur á alla sex leiki hverrar umferðar hafa verið á leiki í Pepsí-deild­inni að með­al­tali til þessa. Aðsókn­ar­mesti leikur móts­ins hingað til er leikur KR og Vals í fyrstu umferð, sem fór fram á Gervi­gras­vell­inum í Laug­ar­dal, en 2.128 áhorf­endur mættu á hann.

[quote font="0"]„Annað atriði er veð­ur­far í Íslandi í sumar bæt­ist ofan á þetta. Veðrið hefur verið mjög slæmt eig­in­lega í allt sumar. Það var ekk­ert sér­stak­lega gott í fyrra, en það er búið að vera enn verra núna. Sér­stak­lega á leik­dögum, það hefur hitt þannig á að það hefur verið mjög slæmt á þeim."[/quote]

Verði þessi spá um áhorf­enda­fjölda í Kaplakrika á laug­ar­dag að veru­leika gæti Íslands­metið í fjölda áhorf­enda á einum leik verið slegið. Það var sett í Frosta­skjóli þegar ÍBV tryggði sér Íslands­meist­ara­tit­il­inn á móti KR í loka­um­ferð móts­ins árið 1998, en þá mættu um 5.400 manns á völl­inn.

Í sumar mættu fæstir áhorf­endur mættu á leik Vals og Þórs sem fram fór 21. sept­em­ber. Samkvæmt leik­skýrslu mættu ein­ungis 145 manns á þann leik.

Gervigrasið, veðrið og HM höfðu mest áhrif


Þórir Hákon­ar­son, fram­kvæmda­stjóri KSÍ, segir það auð­vitað vera áhyggju­efni að áhorf­endum sé að fækka. Hann segir þó þrjú atriði útskýra fækk­un­ina að ein­hverju leyti. „Heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu er eitt þeirra. Það hefur alltaf mikil áhrif á aðsókn. Þessi keppni sem fór fram í sumar var auk þess ein­stak­lega skemmti­leg og fékk gríð­ar­lega mikið áhorf. Annað atriði er veð­ur­far á Íslandi í sumar sem bæt­ist ofan á þetta. Veðrið hefur verið mjög slæmt eig­in­lega í allt sumar. Það var ekk­ert sér­stak­lega gott í fyrra, en það er búið að vera enn verra núna. Sér­stak­lega á leik­dögum, það hefur hitt þannig á að það hefur verið mjög slæmt á þeim. Þriðja atriðið er að í upp­hafi sum­ars vorum við í vanda­málum með heima­velli lið­anna og þurftum að spila nokkra leiki á gervi­gras­inu í Laug­ar­dalnum vegna ástands vall­anna. Það hefur auð­vitað veru­leg áhrif líka. Að liðin gátu ekki leikið leik­ina á sínum heima­völlum heldur þurftu að spila fyrstu leik­ina í Laug­ar­dalnum.“

Þórir segir það auð­vitað alltaf vera stefnu knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar að fjölga áhorf­endum á leikjum Íslands­móts­ins. „Ég held að ég geti sagt að áhug­inn á deild­inni er ekk­ert minni en hann hefur verið. Það er mikil umfjöllun um hana í öllum miðlum og sýndur mik­ill áhugi á þeim umfjöll­unum. Ég held að áhug­inn á deild­inni sé því ekk­ert minni en þessi þrjú atriði hafa klár­lega áhrif á að fólk mætir ekki á völl­inn.“

Að sögn Þóris verður lagst yfir fækkun áhorf­enda á næstu vikum. „Við munum taka umræðu um málið þegar tíma­bil­inu lýkur með for­svars­mönnum félag­anna. Og auð­vitað rétt­hafa deild­ar­innar. Hvað sé hægt að gera til að bregð­ast við og hífa upp aðsókn­ina á ný.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár