Bíóið helsta áhugamálið og Berlín besta borgin

Árni Svanur Dan­í­els­son vef­prestur svarar sjö spurn­ingum Kjarnans.

Hvað gleður þig mest þessa dag­ana?

Að hjóla um fal­legu borg­ina okkar, ein­sam­all eða með frúnni og börn­unum.

Hvert er þitt helsta áhuga­mál?

Bíóið er númer eitt um þessar myndir því nú snýr RIFF aftur. Ég sit í dóm­nefnd­inni sem veitir kvik­mynda­verð­laun kirkj­unnar. Framundan er veisla fyrir augun, eyrun og koll­inn.

Hvaða bók lastu síð­ast?

Structure in Fives eftir Henry Mintzberg. Kennslu­bók í opin­berri stjórn­sýslu. Sann­ar­lega ekki mjög lif­andi texti en gagn­legt verk­færi til að greina og skilja stofn­anir og skipu­lags­heildir.

Hvert er þitt upp­á­halds lag?

Þessa dag­ana er All About That Bass með Meghan Trainor í upp­á­haldi hjá okkur Heið­björtu Önnu sem er yngsta dóttirin. Grípandi lag og góður boð­skapur.

Til hvaða ráð­herra berðu mest traust?

Ég treysti helst ráð­herrum sem sýna náunga­kær­leika í verki frekar en orði.

Ef þú ættir að fara til útlanda á morgun og mættir velja land, hvert myndir þú vilja fara?

Til Þýska­lands, nánar til­tekið Berlínar sem er upp­á­halds­borgin.

Hvað fer mest í taug­arnar á þér?

Fólk sem seg­ist ekki hafa tíma til njóta lífs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár