Ég fer mest og oftast í taugarnar á mér

Helgi Seljan, blaða­maður hjá Kast­ljósi RÚV, svar­aði sjö spurn­ingum Kjarnans.

Hvað gleður þig mest þessa dag­ana?
Stelp­urnar mínar þrjár, dætur mínar og unnustan. Þær gleðja.
Hvert er þitt helsta áhuga­mál?
Þau eru mörg. Mig langar að segja úti­vist, en vil síður ljúga. Þó er hesta­mennskan eitt­hvað sem ég stunda - og helst utandyra, eins og veiði. Hvort tveggja geri ég of sjaldan hins vegar. Bóka­lestur er algeng­ari og þó hann eigi sér stundum stað á svöl­unum heima, er hann mest inn­an­húss.
Hvaða bók lastu síð­ast?
Guðs­gjaf­ar­þulu Halldórs Laxness. Þar á undan nýja bók Orra Harð­ar­sonar, Stund­ar­fró. Til hennar hafði ég byggt upp mjög verð­skuld­aða eft­ir­vænt­ingu.
Hvert er þitt upp­á­halds­lag?
MB Rosinn. Ég þarf von­andi ekki að útskýra það fyrir neinum.
Til hvaða ráð­herra berðu mest traust?
Spurn­ingin felur í sér kol­vit­lausar for­sendur efn­is­ins. Ráð­herrar eiga að bera traust í kjós­endur sína en ekki öfugt.
Ef þú ættir að fara til útlanda á morgun og mættir velja land, hvert myndir þú vilja fara?
Græn­lands eða Færeyja.
Hvað fer mest í taug­arnar á þér?
Ég myndi ljúga ef ég segði ekki að ég færi mest og oft­ast í taug­arnar á sjálfum mér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár