Það eru fleiri pöndur í Skotlandi en íhaldsmenn

Skotar kjósa um sjálf­stæði í dag. Nýjustu kann­anir sýna að allar líkur séu á því að sjálf­stæðið verði fellt með naumum mun. Innan raða sjálf­stæð­is­sinna ríkir þó enn von. Von um að þeir hafi náð að sann­færa nægi­lega marga þeirra sem eru óakveðnir, að stærstum hluta konur og elli­líf­eyr­is­þegar, um að Skotlandi og þeim sjálfum sem ein­stak­lingum muni farn­ast betur í sjálf­stæðu ríki.

Við­snún­ing­ur­inn í kosn­ing­ar­bar­átt­unni hefur verið ævin­týra­legur und­an­farnar vikur. Allt frá því að Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn náði hreinum meiri­hluta í skoska þing­inu árið 2011 hefur legið fyrir að kosið yrði um sjálf­stæði. Nánast allan þann tíma hefur það virst fjar­lægur draumur sam­kvæmt skoð­anna­könn­unum. Þann 7. ágúst síð­ast­lið­inn, fyrir sex vikum, birt­ist skoð­anna­könnun sem sýndi að 61 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu ætl­uðu að segja nei. Einungis 39 pró­sent ætl­uðu að segja já. Mánuði síðar var gerð ný könnun sem sýndi að 51 pró­sent var fylgj­andi sjálf­stæði en 49 pró­sent á móti, tæpum tveimur vikum fyrir kosn­ingar. Og Bretland fór á hlið­ina.

Hið auðuga Skotland


Það eru nokkuð margar ástæður fyrir því að, að minnsta kosti, tæpur helm­ingur Skota vill sjálf­stæði. Eins sú helsta er að Skotland er auð­ugt land. Þar eru miklar nátt­úru­auð­lindir. Um 90 pró­sent allrar olíu sem fram­leidd er í Bret­landi kemur m.a. frá Skotlandi. Og 75 pró­sent allrar olíu sem fram­leidd er í Evr­ópu­sam­band­inu kemur frá Bretum. Þrátt fyrir að Skotar séu ein­ungis um 8,4 pró­sent af heild­ar­fjölda Breta landa þeir einnig um 60 pró­sent alls fisk­veiði­afla sem landað er innan vébanda rík­is­ins. Glasgow er þess utan fjórða stærsta fram­leiðslu­borg Bret­lands. Viskí-útflutn­ingur Skota er líka stór­tækur. Um fjórð­ungur af útflutn­ingi Bret­lands á matar- og drykkj­ar­vörum er vegna viskís. Um 35 þús­und manns starfa í skoska viskí­geir­anum. Þá er mjög stór tækni- og nýsköp­un­ar­geiri í Skotlandi. Um 45 þús­und manns starfa í honum innan landamæra lands­ins.

Lands­fram­leiðsla á mann í sjálf­stæðu Skotlandi myndi verða 2.300 pundum, 444 þús­und krónum, hærri árlega en hún er í Bret­landi nú. Það myndi setja Skotland í 14. sæti yfir rík­ustu þjóðir heims.

Þessum auð vilja margir Skotar að sé eytt betur. Og innan landamæra Skotlands.

Stýrt af flokki sem þeir kjósa ekki


Skotar leggja nefni­lega meiri áherslu á jöfnuð og sterkt vel­ferð­ar­kerfi en bresk stjórn­völd hafa gert. Sú aukna einka­væð­ing í heil­brigðis- og mennta­kerf­inu sem átt hefur sér stað und­an­farin miss­eri hugn­ast mörgum Skotum illa.

Annað sem fer mjög öfugt ofan í þá er sú stað­reynd að Íhalds­flokk­ur­inn sé með stjórn­ar­taumanna í Stóra-Bret­landi. Því er ítrekað haldið fram í hálf­kær­ingi að það séu fleiri pöndur í Skotlandi en íhalds­menn. Það er samt stoð í brand­ar­anum. Und­an­farna ára­tugi hefur flokk­ur­inn nán­ast horfið í Skotlandi. Í dag á hann ein­ungis 15 af 129 þing­mönnum á skoska þing­inu. Af þeim 59 þing­mönnum sem Skotar kjósa til setu á breska þing­inu í Westminster er ein­ungis einn íhalds­maður. Þess vegna finnst mörgum Skotum bein­leiðis fárán­legt að þeim sé stjórnað af flokki sem hefur nán­ast ekk­ert fylgi á meðal þeirra.

Verka­manna­flokk­ur­inn þarf hins vegar að hafa meiri áhyggjur af því ef sjálf­stæði verður sam­þykkt en íhalds­menn. Þeir eru með 40 þing­menn á breska þing­inu sem kosnir eru af Skotum. Þeir eiga auk þess 37 þing­menn á skoska þing­inu.

Gjaldmiðill, kjarnorka og alþjóðasamstarf


Deilu­málin í kosn­inga­bar­átt­unni hafa auð­vitað verið mýmörg. Eitt það helsta er að Skotar vilja halda breska pund­inu sem gjald­miðli, en breskir stjórn­mála­leið­togar hafa hafnað því algjör­lega. Þeir hafa einnig bent á að sjálf­stæð­is­sinnar hafi ekk­ert plan B ef pundið verður ekki mögu­leiki sem gjald­mið­ill.

Annað snýst um öryggis- og varn­ar­mál. Þorri kjarn­orku­vopna Bret­lands er geymdur í Skotlandi, í Faslane-her­stöð­inni. Sjálf­stæð­is­sinnar hafa bent á að það sé sið­ferð­is­lega rangt að hýsa vopnin og auk þess stjarn­fræði­lega dýrt. Fyrir þann hluta af kostn­að­inum sem Skotland greiðir vegna þeirra á ári væri hægt að mennta 3.880 hjúkr­un­ar­fræð­inga eða 4.527 kenn­ara. Þetta er gríð­ar­lega mikið vanda­mál fyrir Breta, vegna þess að flutn­ingur kjarn­orku­vopn­anna er nán­ast ómögu­legur. Segi Skotar sig úr varn­ar­sam­starfi við Bretland munu Skotar því vera í mjög góðri samn­ings­stöðu gagn­vart gamla heims­veld­inu. Það vill enda eng­inn annar fá nokkra kjarn­orku­odda og kjarn­orkukaf­báta í garð­inn hjá sér.

Skotar hyggj­ast auk þess ganga bæði í NATO og ESB ef þeir verða sjálf­stæðir. Þeir eru hluti af báðum stofn­unum nú þegar og því finnst þeim eðli­legt að sjálf­stætt Skotland ætti að geta fengið aðild til­tölu­lega auð­veld­lega. Það á eftir að koma í ljós þegar á reynir hvort það verði raunin.

Allir á fullu í áróðrinum


Árangur sjálf­stæð­is­sinna á und­an­förnum vikum hefur sett Bretland á hlið­ina. Allskyns aðilar sem tóku ekki þátt í bar­átt­unni áður hafa nú opin­berað harða afstöðu. Risastór fyr­ir­tæki með höf­uð­stöðvar í Skotlandi, eins og Royal Bank of Scotland og Lloyfs bank­inn, hafa sagt að þau muni flytja höf­uð­stöðvar sínar til Englands ef sjálf­stæði verði ofan á.

Helstu leið­togar breskra stjórn­mála, sem dags dag­lega eru svarnir póli­tískir óvinir, hafa tekið höndum saman og túrað Skotland und­an­farna daga, í þeirri við­leitni að sann­færa, og jafn­vel hræða, Skota til þess að kjósa gegn sjálf­stæði. David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Íhalds­flokks­ins, hefur gengið lengst í hræðslu­á­róðr­inum. Hann hefur til dæmis varað Skota við því að við­skiln­að­ur­inn yrði afar sárs­auka­fullur fjár­hags­lega.

Stóra útspilið kom síðan í byrjun þess­arar viku þegar opið bréf var birt í fjöl­miðlum frá Cameron, Ed Miliband,for­manni Verka­manna­flokks­ins, og Nick Clegg, for­manni Frjáls­lyndra demókrata,þar sem þeir strengja þess heit að skoska þingið fái meiri völd á næstu árum kjósi Skotar gegn sjálf­stæði. Á meðal nýrra valda verði aukin tæki­færi til að afla tekna og yfir­ráð yfir heil­brigð­is­málum.

Útspilið hefur gert allt vit­laust bæði hjá sjálf­stæð­is­sinnum, sem líta á það sem örvænt­inga­fulla til­raun til að snúa þeirri bylgju kjós­enda sem flykkst hefur yfir til þeirra á und­an­förnum vikum. Í breska þing­inu hefur þess­ari heit­streng­ingu, sem er kölluð „The Vow“, heldur ekki verið tekið fang­andi. Mýmargir þing­menn úr ýmsum flokkum hafa bent á að leið­togar flokk­anna hafi ekk­ert vald til að lofa slíkum völdum. Einungis breska þingið geti veitt þau. Þess utan séu kosn­ingar í Bret­landi á næsta ári og ólík­legt sé að fleiri en í besta falli einn leið­tog­anna þriggja muni lifa þær af. Þess vegna séu þeir að lofa ein­hverju sem þeir hafi hvorki heim­ild né getu til að standa við.

Ferguson, Connery og Björk


Fræga fólkið hefur ekki látið sitt eftir liggja í bar­átt­unni. Und­an­farið hafa sam­bands­sinnar dregið fólk eins og David Beckham og nú síð­ast Sir Alex Ferguson á flot til að biðla til Skota um að segja nei. Hinum megin er Sean Connery og indie-popp­stjörnum á borð við Mogwai og Franz Ferdin­and flaggað eins og lukku­dýrum sjálf­stæð­is­bar­átt­unnar.

Ýmsir alþjóð­legir lista­menn hafa ekki látið sitt eftir liggja. Björk Guð­munds­dóttir er einn þeirra. Hún lýsti yfir stuðn­ingi við sjálf­stæði Skota á sam­fé­lags­miðlum í gær og deildi með lagi sínu „Declare Independence“.

Sambandið við Bretland verður aldrei samt


Hvernig sem fer þegar talið verður upp úr kjör­köss­unum í kvöld þá er ljóst að bar­áttan fyrir sjálf­stæði mun breyta stjórn­ar­háttum í Skotlandi um ókomna fram­tíð. Það sem fáum datt í hug að væri raun­hæfur mögu­leiki, að Skotar myndu kjosa með sjálf­stæði, er nú svo nálægt því að vera stað­reynd að sam­band þjóð­ar­innar við Bretland verður aldrei samt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár