Átök hefjast á ný í Úkraínu eftir árásina á MH17

Atburða­rásin, eftir að flug MH17 var skotið niður yfir Austur-Úkraínu á fimmtu­dag, hefur verið hröð. Vopnaðir upp­reisn­ar­menn umkringdu stað­inn og tóku stjórn á vett­vangi nán­ast um leið og fréttir bár­ust af árásinni. Þeir stjórna vett­vangi, hafa haf­ist handa við hreins­un­ar­starf og komið líkum far­þega í geymslu í kældum lest­ar­vögnum.

Hreins­un­ar­fólkið kveðst hafa fundið 251 lík og 86 lík­ams­parta á svæð­inu þar sem brakið úr þot­unni dreifð­ist yfir. Nærri 200 líkum hefur verið komið fyrir í lest­ar­vögnum og hefur önnur lest verið send á lest­ar­stöð­ina í Torez nærri svæð­inu, svo hægt sé að geyma lík­ams­leifar fleirri far­þega. Hol­lenskir rétt­ar­læknar, sem komnir eru til Torez, segj­ast ekki geta stað­fest fjölda þeirra sem safnað hefur verið í lest­ar­vagna en segja geymsl­una „ásætt­an­lega“.

Train filled with unknown num­ber of bodies from flight #MH17 still idling in #Torez. Destination unknown. pic.twitter.com/1aR2Ztbp4Y

— Christopher Miller (@ChristopherJM) July 20, 2014

Fréttir bár­ust svo af því í morgun að úkra­ínski her­inn hafi gert árás á vígi upp­reisn­ar­manna í Donetsk, um 70 kíló­metra frá Torez. Það eru fyrstu átökin síðan far­þega­þot­unni var grandað. Úkra­ínu­stjórn lítur á upp­reisn­ar­menn í aust­ur­hluta lands­ins sem hryðju­verka­menn og svör­uðu því til að „virk" sókn gegn hryðju­verka­mönn­unum væri enn í gangi. Fjórir hafa fallið í átök­unum í dag og skemmdir hafa verið unnar á lesta­kerfi borg­ar­innar. Full­trúar Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unnar Evrópu (ÖSE) í Torez segja að átökin geti haft áhrif á flutn­ing líka frá vett­vangi.

Enn pressað á Pútín

Báðar fylk­ing­arnar sem takast á í Úkraínu, þ.e. Úkra­ínu­stjórn og upp­reisn­ar­menn, beita óvægnum aðgerðum. Óvissan um hver hafi grandað þotu Malaysia Airlines á fimmtu­dag er enn ríkj­andi. Fylk­ing­arnar bentu á hvor aðra og Rússland var jafn­vel talið hafa átt beinan þátt í að skjóta niður MH17. Fljót­lega hafði leyni­þjón­usta Banda­ríkj­anna rýnt í gervi­hnatta­myndir sem teknar voru yfir Úkraínu, þegar árásin átti sér stað, og voru sann­færðir um að skotið hafi verið á þot­una af jörðu niðri frá svæði sem upp­reisn­ar­menn stjórna í aust­ur­hluta Úkraínu.

Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, hefur þurft að sitja af sér gríð­ar­legt óveður vegna atburð­ar­ins á fimmtu­dag. Rússar eru taldir hafa útvegað vopnin sem grönd­uðu vél­inni, jafn­vel þjálfað her­menn upp­reisn­ar­innar í að virkja vopnið og skjóta úr því. Pútín hefur ekki svarað þessum ásök­unum beint, en hann hefur gagn­rýnt stjórn­völd í Úkraínu fyrir að hefja árás á Donetsk. „Enginn hefur eða á að hafa rétt á að nota svona harm­leik sem ástæðu árásar,“ sagði Pútín. Arsení Jat­senjúk, for­sæt­is­ráð­herra Úkraínu, svar­aði því hins vegar til að um alþjóð­leg átök væri að ræða, ekki bara á milli Úkraínu og Rúss­lands. Ríki á vest­ur­löndum hafa und­an­farna daga gert skýra kröfu um að alþjóð­leg rann­sókn fái að fara fram á árásinni og vett­vangi í Rúss­landi.

Full­trúar Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unnar Evrópu (ÖSE) eru nú á vett­vangi og safna upp­lýs­ingum. Það er þó ekki eig­in­legt rann­sókn­arteymi heldur aðeins augu og eyru Evrópu í Úkraínu, ef svo má að orði kom­ast. Þá herma fregnir að Alex­ander Borodaí, leið­togi upp­reisn­ar­manna, hafi flug­rita MH17 undir höndum. Hann seg­ist þó aðeins vera að bíða eftir að full­trúar Malaysia-flug­fé­lags­ins komi og sæki „svarta kassan“.

John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, press­aði enn á stjórn­völd í Rúss­landi í við­tali við CNN í gær. Hann sagð­ist hafa átt bein­skeytt sam­tal við Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands. „Það skilar von­andi ein­hverju,“ sagði Kerry. „Ég er sann­færður um að Obama muni á næst­unni ræða aftur við Pútín til þess að leita leiða til að taka ákveðin skref fram á við. Ég minni á að dag­inn áður en þessi atburður varð [árásin á MH17] setti Obama enn harð­ari við­skipta­þving­anir á Rússland. Þær þving­anir hafa áhrif á orku­fyr­ir­tækin þeirra, á varn­ar­mála­fyr­ir­tækin þeirra og bank­ana þeirra. Nokkrir af stærstu bönkum Rússa geta ekki nálg­ast mark­aði,“ sagði Kerry við CNN.

Á NBC, annarri banda­rískri sjón­varps­stöð, sagði Kerry að vett­vangnum væri nú spillt af „drukknum aðskiln­að­ar­sinnum sem stafla líkum í trukka og flytja af svæð­inu.“ Þar benti hann á að það væri í and­stöðu við það sem Pútín hafi þegar sagt, það sem Banda­ríkja­menn segja rauðan þráð í sam­skiptum sínum við Pútín. Pútin flutti í morgun óvenju­legan pistil í rúss­nesku sjón­varpi þar sem hann sagði meðal ann­ars að nauð­syn­legt væri að tryggja öryggi alþjóð­legra sér­fræð­inga á hörm­unga­svæð­inu. Reuters-frétta­stofan segir Pútín ætla að hitta örygg­is­ráð Rúss­neska sam­bands­rík­is­ins síðar í dag til að ræða hvernig hægt verði að tryggja full­veldi Rúss­lands eftir að átökin hófust á ný í Donetsk.

Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna kemur saman í dag og greiðir atkvæði um ályktun sem for­dæmir árás­ina á þot­una og fer fram á að ábyrgð­ar­menn verði sóttir til saka. Þá fer örygg­is­ráðið enn fremur fram á að vopn­aðar sveitir spilli ekki vett­vangi þar sem brak þot­unnar dreifð­ist, verði álykt­unin sam­þykkt. Óvíst er hvort Rússland muni styðja álykt­un­ina eða ekki.

Bera uppreisnarmenn ábyrgð?

Í við­tal­inu við CNN-sjón­varps­stöð­ina í gær dró John Kerry upp nokkuð skýra mynd af því með hvaða augum Banda­ríkin líta á átökin í Úkraínu í kjöl­far árás­ar­innar á MH17. Ljóst er að Banda­ríkin telja upp­reisn­ar­menn hafa mjög lík­lega grandað far­þega­þot­unni með rúss­nesku vopni. „Við vitum með vissu að síð­ast­lið­inn mánuð hefur gríð­ar­legt magn vopna farið yfir landa­mærin frá Rúss­landi til Úkraínu. Fyrir nokkrum vikum fór bíla­lest um 150 öku­tækja með her­menn, fjöl­marga skot­flauga­palla, skrið­dreka og stór­skota­lið. Allt fengu upp­reisn­ar­menn,“ sagði Kerry.

Rúss­neska varn­ar­mála­ráðu­neytið seg­ist hins vegar hafa upp­lýs­ingar um að úkra­ínsk her­flug­vél hafi verið í þriggja til fimm kíló­metra rad­íus frá far­þega­þotu Malaysia Airlines áður en hún hrap­aði. Ráðu­neytið segir jafn­framt að engin vopn, hvað þá SA-11 BUK, hafi farið frá þeim til upp­reisn­ar­manna. Þá full­yrða Rússar að þeir hafi ekki orðið varir við nein flug­skeyti sem stefnt hafi verið að MH17 og skora á Banda­ríkja­menn að birta slíkar myndir „ef þeir eiga þær.“

„Við vitum með vissu að upp­reisn­ar­menn hafa hlotið þekk­ingu frá Rússum um hvernig á að virkja háþró­uðu SA11-kerfin [skot­kerfið sem grand­aði MH17] og við vitum að þeir hafa slík kerfi,“ segir Kerry. „Við vitum að þeir höfðu þetta vopn á mánu­deg­inum fyrir árás­ina því frá því var sagt á sam­fé­lags­miðlum og á fimmtu­deg­inum sem árásin var gerð, vitum við að nokkrum klukku­stundum síðar var þessu sama vopni komið í gegnum tvo bæi í nágrenni við skot­stað­inn. Við vitum það eftir að hafa skoðað myndir frá augna­blik­inu sem skotið reið af, við sjáum að þaðan var flaug­inni skotið og feril skot­flaug­ar­innar sýnir að hún fór í far­þega­þot­una.“

Strax eftir árás­ina hófu upp­reisn­ar­menn að stæra sig af árásinni á sam­fé­lags­miðlum. Héldu þeir að um væri að ræða úkra­ínska flutn­inga­vél en þegar í ljós kom að far­þega­þota hefði orðið fyrir skot­inu var tístum og stöðu­upp­færslum eytt. Upp­reisn­ar­menn hafa síð­ast­lið­inn mánuð skotið niður um það bil tólf flug­vélar, þar af tvær stórar flutn­inga­vélar.

Deleted Tweet from @dnrpress claiming to have AA Buk System: http://t.co/1fowD03XXh Nothing's ever really del­eted: pic.twitter.com/6KRCPXDvqe — Igor Brigadir (@IgorBrigadir) July 17, 2014

„Og nú höfum við séð mynd­band sem sýnir vopnið á ferð um ákveðið svæði þarna og yfir landa­mærin til Rúss­lands. Á það vantar, í það minnsta, eina skot­flaug,“ sagði Kerry. Ljóst þykir því að upp­reisn­ar­menn hafi grandað far­þega­þot­unni en sagan af vopn­inu er áhuga­verð því hún tengir Rússa með beinum hætti við árás­ina.

https://t.co/I8Ee1KtODv Buk SAM deployed by #Russians (sighted en route fr #Torez/#MH17 site to #Snizhne, #Ukraine) pic.twitter.com/uFqgyf5FSx

— Ukra­inian Updates (@Ukroblogger) July 17, 2014

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Átök í Úkraínu

ErlentÁtök í Úkraínu

Leifar úr rúss­nesku flug­skeyti fund­ust í flaki flugs MH17

Hol­lenskir rann­sak­endur hafa hugs­an­lega fundið leifar af rúss­nesku BUK-flug­skeyti í flaki mala­sísku far­þega­þot­unnar sem skotin var niður yfir Austur-Úkraínu í júlí í fyrra. Rússar hafa alltaf þver­tekið fyrir það að hafa skaffað vopnið sem grand­aði flugi MH17. Flug MH 17 frá Amster­dam til Kúala Lúmpur var skotið niður þann 17. júlí 2014. Engin um borð komst lífs af, eða 298...
ErlentÁtök í Úkraínu

Rússar verða látnir borga... fullt

Staða Rúss­lands á alþjóða­vett­vangi virð­ist ­þrengj­ast með hverjum deg­inum. Þjóð­ar­leið­togar ræða við­skipta­þving­anir vegna aðgerða Rússa gagn­vart Úkraínu, sá mikli efna­hags­legi vöxtur sem drifið hefur ríkið áfram á und­an­förnum árum er í mik­illi rérnum og alþjóða­sam­fé­lagið virð­ist vera að taka fast á við­skipta­legum aðförum rúss­neskra risa­fyr­ir­tækja sem fram­kvæmdar eru í skjóli, og með vel­vilja, rús­senskra stjórn­valda sem í flestum til­fellum eru...
ErlentÁtök í Úkraínu

Flug MH17: Vopnin munu snú­ast í höndum ábyrgð­ar­manna

Far­þega­þota Malaysia Airlines fórst í dag er hún flaug yfir átaka­svæðið í aust­ur­hluta Úkraínu klukkan 14:15. Flug MH17 tók á loft þremur klukku­stundum áður frá Amster­dam, en far­þega­þotan var á leið til Kúala Lúmpur. Banda­rískir emb­ætt­is­menn hafa stað­fest við CNN og Wall Street Journal að þotan hafi verið skotin niður með loft­skeyti. Enn er óvíst hver ber ábyrgð á verkn­að­inum...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár