Flug MH17: Vopnin munu snúast í höndum ábyrgðarmanna

Far­þega­þota Malaysia Airlines fórst í dag er hún flaug yfir átaka­svæðið í aust­ur­hluta Úkraínu klukkan 14:15. Flug MH17 tók á loft þremur klukku­stundum áður frá Amster­dam, en far­þega­þotan var á leið til Kúala Lúmpur. Banda­rískir emb­ætt­is­menn hafa stað­fest við CNN og Wall Street Journal að þotan hafi verið skotin niður með loft­skeyti. Enn er óvíst hver ber ábyrgð á verkn­að­inum en stjórn­völd í Úkraínu og upp­reisn­ar­menn í aust­ur­hluta lands­ins hafa neitað sök.

CNN greindi frá því í kvöld að banda­ríska leyni­þjón­ustan hafi fundið hita­merki á gervi­hnatta­myndum sem benda til „stór­vægi­legs atburðar“ og að gögn þeirra bendi til þess að flug­skeyt­inu hafi verið skotið af jörðu niðri en ekki úr lofti (frá her­þotu) eins og fjöl­miðlar höfðu leitt líkur að.

Malaysia Airlines hefur stað­fest að 283 far­þegar hafi verið um borð auk 15 manna áhafnar. Allir eru taldir af. Flug­fé­lagið birti í kvöld hluta far­þega­list­ans og stað­festu að um borð hafi verið 154 Hol­lend­ingar, 27 Ástralar, 23 Malasíu­búar, 11 Indónesíu­búar, sex Bretar, fjórir Þjóð­verjar, fjórir Belgar, þrír frá Fil­ips­eyjum og einn frá Kanada. Auk þeirra voru far­þegar af öðrum þjóð­ernum. Flug­fé­lagið vinnur nú að því að stað­festa þjóð­erni hinna far­þeg­anna. Utan­rík­is­ráðu­neytið á Íslandi vann að því í dag að kom­ast að því hvort nokkur Íslend­ingur hafi verið um borð.

Upp­reisn­ar­menn í Úkraínu hafa und­an­farnar vikur fengið mikið af nýjum og þróðum vopnum frá Rússum til þess að mæta harð­ari sókn Úkra­ínu­hers á vígi upp­reisn­ar­innar í stærstu borgum aust­ur­hluta lands­ins. Frétta­skýrendur telja lík­legt að flug­skeyt­inu hafi verið skotið með SA-11 Gadfly, fær­an­legum skot­palli sem smíð­aður er í Rúss­landi. Slíkt kerfi styðst við radar til að greina skot­mark sitt. Gadfly-skot­pall­ur­inn getur grandað skot­marki í um 22.000 metra hæð, rúm­lega tvö­faldri þeirri hæð sem þotan var í áður en sam­band við hana rofn­aði.

Mala­ysian Airlines flight #MH17 reported to have been shot down by BUK-M1 [aka SA-11] surface-to-air missile system pic.twitter.com/UWwFifWhZr

— NATOSource (@NATOSource) July 17, 2014

Anton Herashchenko, inn­an­rík­is­ráð­herra Úkraínu, hefur sakað Rússa um að hafa látið upp­reisn­ar­mönnum slíkt vopn í té. Alex­ander Borodai, leið­togi upp­reisn­ar­manna, sak­aði síðar Úkra­ínu­stjórn um að hafa grandað far­þega­þot­unni í við­tali við rúss­neska rík­is­sjón­varps­stöð.

Flug­fé­lög í Evrópu og Banda­ríkj­unum hafa stýrt flug­leiðum sínum frá Úkraínu og fljúga ekki um loft­helgi lands­ins að svo stöddu. Loft­helg­inni yfir svæðum upp­reisn­ar­manna hefur jafn­framt verið lokað.

Kort NYT af flug­leið #MH17 yfir átaka­svæði í A-Úkraínu. Vitni segja vél­ina hafa sprungið á flugi & tætas í hrap­inu. pic.twitter.com/k3jawRpJhF

— Kjarninn (@Kjarninn) July 17, 2014

Staðan erfið fyrir Pútin

Vladimír Pútin, for­seti Rúss­lands, sendi frá sér yfir­lýs­ingu undir kvöld þar sem hann sakar stjórn­völd í Úkraínu um verkn­að­inn. „Án alls vafa, bera stjórn­völd í Úkraínu ábyrgð á þessum hrylli­lega harm­leik,“ segir hann. „Harm­leik­ur­inn hefði aldrei átt sér stað ef friður ríkti í þessu landi, og allra síst ef stjórn­völd í Kænu­garði hefðu ekki hafið stór­sókn sína á ný í suð-aust­ur­hluta Úkraínu.“

"Rúss­neski her­inn mun veita alla þá hjálp sem hann getur veitt í rann­sókn þessa glæps," sagði Pútín jafn­framt. Þá bætti hann við að eng­inn hafi rétt á því að draga álykt­anir án þess að styðj­ast við ítar­legar og hlut­lægar upp­lýs­ingar um atburð­inn.

Frétta­skýr­andi veftíma­rits­ins Quartz segir stöðu Pútíns eftir árás­ina á flug MH17 vera erf­iða. Hann hefur, síðan borg­ar­styrj­öldin braust út í Úkraínu, staðið þétt við bakið á upp­reisn­ar­mönnum og þeim ráða­mönnum sem rutt var úr vegi í bylt­ing­unni á Sjálf­stæð­is­torgi í Kænu­garði í vetur. Komi í ljós að það hafi verið upp­reisn­ar­menn sem skutu far­þega­þot­una niður verður að öllum lík­indum þrengt enn frekar að rúss­neskum við­skiptum og helstu banda­mönnum for­set­ans í Kreml.

Haldi Pútín áfram að standa jafn þétt við bakið á upp­reisn­inni setur for­set­inn sig í þrönga stöðu í diplómat­ískum sam­skiptum við Vest­ur­lönd. Á dög­unum kynnti Barack Obama, Banda­ríkja­for­seti, enn harð­ari og nákvæm­ari við­skipta­þving­anir gegn stærstu fyr­ir­tækjum og auð­jöfrum Rúss­lands. Þving­an­irnar hafa ekki verið eins umfangs­miklar af hálfu Vest­ur­landa síðan í Kalda­stríð­inu.

Í skýr­ingu Quartz er rætt við Kenneth Yalowitz, banda­rískan diplómata á eft­ir­launum sem sinnti áður erindum í Sov­ét­ríkj­unum. Hann telur full­víst að ef færðar eru sönnur á að upp­reisn­ar­mönnum sé um að kenna, muni það örugg­lega sann­færa þau Evr­ópu­sam­bands­ríki, sem hingað til hafa ekki talið ríka ástæðu til að beita efna­hags­þving­unum, um að slíkt sé ekki lengur vafa­mál. „Mögu­leiki Rússa á að hvít­þvo sig af beinum stuðn­ingi við upp­reisn­ina yrði að engu og það mundi gera stöðu Pútins í alþjóða­sam­fé­lag­inu enn erf­ið­ari en nú er.“

Undir þetta tekur Julian Borger, frétta­skýr­andi breska blaðs­ins The Guardian. „Atburða­rásin gæti orðið þannig að rann­sóknin leiði í ljós að upp­reisn­ar­menn hafi grandað þot­unni með rúss­neskum vopnum. Sá sann­leikur mundi neyða rúss­nesk stjórn­völd til að stíga til baka úr mjög áhættu­sömum íhlut­unum sínum í átök­unum.“

Leiðtogar vilja ítarlega rannsókn


Brak far­þega­þot­unnar lenti á sól­blóma­akri innan svæðis sem upp­reisn­ar­menn stjórna, skammt frá stór­borg­inni Donetsk. Upp­reisn­ar­menn stjórna því svæð­inu og hefur mikið lið þeirra þegar komið sér fyrir umhverfis brakið og lík far­þeg­anna. Talið er að upp­reisn­ar­menn­irnir hafi þegar fundið flug­rita þot­unnar.

Helstu leið­togar heims hafa komið fram ský­lausri kröfu um að alþjóð­legum sér­fræð­ingum verði veittur aðgangur að svæð­inu til þess að óháð rann­sókn geti farið fram. Ban ki-Moon, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, segir stofn­un­ina ætla að beita sér fyrir því að rann­sóknin verði gegnsæ. Bretar hafa kallað eftir því að sér­fræð­ingar Sam­ein­uðu þjóð­irnna fari fyrir rann­sókn­inni.

Najib Razak, foræt­is­ráð­herra Malasíu, segir Asíu­ríkið vilja taka þátt í rann­sókn­inni og senda sér­stakt teymi til Kænu­garðs. Razak ræddi við Petró Porosjenko for­seta Úkraínu í dag og segir þá hafa sam­mælst um að stjórn­völd í Úkraínu semji um „mann­úð­legan þrösk­uld“ við upp­reisn­ar­menn. „Hafi þot­unni sann­ar­lega verið grandað, förum við fram á að þeir sem beri sök á hryðju­verk­inu verði sóttir til saka,“ sagði Razak í yfir­lýs­ingu sinni.

Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna kemur saman á neyð­ar­fundi á föstu­dag til að ræða stöð­una í Úkraínu. Örygg­is­ráðið hefur þegar haldið fjöl­marga fundi um ástandið í Úkraínu en aldrei sam­þykkt form­legar aðgerðir vegna and­stöðu Rússa í ráð­inu.

Nákvæm staðsetning braks vélarinnar


Samkvæmt upp­lýs­ingum frá stjórn­völdum í Malasíu er þetta nákvæm stað­setn­ing örygg­is­merkis vél­ar­innar.

Uppfært klukkan 00:02, 18. júlí 2014:
Stað­festur fjöldi far­þega í flugi MH17 breytt úr 282 í 283 auk 15 manna áhafnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Átök í Úkraínu

ErlentÁtök í Úkraínu

Leifar úr rúss­nesku flug­skeyti fund­ust í flaki flugs MH17

Hol­lenskir rann­sak­endur hafa hugs­an­lega fundið leifar af rúss­nesku BUK-flug­skeyti í flaki mala­sísku far­þega­þot­unnar sem skotin var niður yfir Austur-Úkraínu í júlí í fyrra. Rússar hafa alltaf þver­tekið fyrir það að hafa skaffað vopnið sem grand­aði flugi MH17. Flug MH 17 frá Amster­dam til Kúala Lúmpur var skotið niður þann 17. júlí 2014. Engin um borð komst lífs af, eða 298...
ErlentÁtök í Úkraínu

Rússar verða látnir borga... fullt

Staða Rúss­lands á alþjóða­vett­vangi virð­ist ­þrengj­ast með hverjum deg­inum. Þjóð­ar­leið­togar ræða við­skipta­þving­anir vegna aðgerða Rússa gagn­vart Úkraínu, sá mikli efna­hags­legi vöxtur sem drifið hefur ríkið áfram á und­an­förnum árum er í mik­illi rérnum og alþjóða­sam­fé­lagið virð­ist vera að taka fast á við­skipta­legum aðförum rúss­neskra risa­fyr­ir­tækja sem fram­kvæmdar eru í skjóli, og með vel­vilja, rús­senskra stjórn­valda sem í flestum til­fellum eru...
ErlentÁtök í Úkraínu

Átök hefj­ast á ný í Úkraínu eftir árás­ina á MH17

Atburða­rásin, eftir að flug MH17 var skotið niður yfir Austur-Úkraínu á fimmtu­dag, hefur verið hröð. Vopnaðir upp­reisn­ar­menn umkringdu stað­inn og tóku stjórn á vett­vangi nán­ast um leið og fréttir bár­ust af árásinni. Þeir stjórna vett­vangi, hafa haf­ist handa við hreins­un­ar­starf og komið líkum far­þega í geymslu í kældum lest­ar­vögnum. Hreins­un­ar­fólkið kveðst hafa fundið 251 lík og 86 lík­ams­parta á svæð­inu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár