Albini þekkir hangikjöt, hákarla og sviðahausa

Banda­ríski tón­list­ar­mað­ur­inn og hljóð­upp­töku­mað­ur­inn Steve Albini er mörgum íslenskum tón­list­arunn­endum að góðu kunnur enda hefur hann komið að gerð margra merk­ustu hljóm­platna síð­ustu þriggja ára­tuga. Steve spilar á tón­list­ar­há­tíð­inni All Tomorrow‘s Parties ásamt hljóm­sveit sinni Shellac og er það í annað skiptið sem hún spilar á hljóm­leikum hér á landi. Ásamt Steve skipa sveit­ina bassa­leik­ar­inn og söngv­ar­inn Bob Weston og trymb­ill­inn Todd Trainer.

All Tomorrow‘s Parties verður haldin í annað sinn á fyrr­ver­andi varn­ar­svæði NATO við Ásbrú á Reykja­nesi í næstu viku. Hátíðin á Ásbrú er hluti af stærri heild sem nefn­ist ATP‘s Iceland Takeover og hefst á tón­leikum Neil Young & Crazy Horse í Laug­ar­dals­höll næst­kom­andi mánu­dag. Einnig verða tvennir tón­leikar haldnir í Hljóma­höll­inni sem er nýtt fjöl­nota menn­ing­ar­hús í Reykja­nesbæ þriðju­dag­inn 8. júlí og mið­viku­dag­inn 9. júlí. Þar koma fram bresku hljóm­sveit­irnar Fuck Buttons, Eaux og Hebronix ásamt íslenska tón­list­ar­mann­inum Ólafi Arnalds. Meðal þeirra sem koma fram á Ásbrú eru Portis­head, Interpol, Mogwai, Liars, Ben Frost, Low, Kurt Vile & The Violators, Swans, Sóley, HAM og hin goð­sagna­kennda hljóm­sveit Slowdive sem nýverið kom aftur saman eftir langt hlé.

Á hátíð­inni verður einnig boðið upp á spenn­andi kvik­mynda­dag­skrá sniðna eftir for­skrift Portis­head, plötu­snúða og margt fleira.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_07_03/1[/embed]

The Ramones fékk hann til að hlusta á tónlist

Steve Albini fædd­ist í Kali­forníu árið 1962 og bjó á upp­vaxtar­árum sínum í Missoula í Montana-fylki. Í byrjun níunda ára­tug­ar­ins flutt­ist hann til Illinois til þess að nema fjöl­miðla­fræði við Northwestern Uni­versity. Steve hefur verið við­loð­andi tón­list stærstan hluta ævi sinnar og hefur alla tíð haldið sig á jaðr­inum og fyrir utan meg­in­straum­inn. Hann er ein­stak­lega opin­skár, hefur aldrei farið leynt með skoð­anir sínar á tón­list­ar­iðn­að­inum og liggja eftir hann ófáar greinar um mis­mikið ágæti hans. Ein þekktasta grein hans heitir „The Problem With Music“ og fjallar m.a. um hversu auð­veld­lega tón­list­ar­brans­inn getur murkað líf og sköp­un­ar­gleði úr ungum og upp­renn­andi hljóm­sveitum sem eru að reyna að hasla sér völl í hinum stóra tón­list­ar­heimi.

Ungur að aldri smit­að­ist Steve af tón­list­ar­á­huga eldri systk­ina sinna. Þegar hann heyrði fyrst í The Ramones fór hann sjálfur að hlusta á tón­list og pæla í henni. Áhugi hans á pönk­tón­list og öðrum skyldum tón­list­ar­stefnum jókst og höfðu hljóm­sveitir á borð við Pere Ubu, Throbb­ing Gristle, Kraftwerk, The Birthday Party og Chrome mót­andi áhrif á hann til fram­búðar. Hann spil­aði í nokkrum skamm­lífum hljóm­sveitum í Montana og Chicago en stofn­aði svo sína fyrstu alvöru hljóm­sveit, hina óhefl­uðu Big Black, árið 1982. Big Black var hluti af senu sem var gletti­lega nefnd „pigfuck“ og gat af sér sveitir á borð við Sonic Youth, Pussy Galore, Butthole Surfers og Royal Trux. Tónlist Big Black var ómstríð og sker­andi og voru umfjöll­un­ar­efnin í lögum hennar oftar en ekki samin frá sjón­ar­hóli þeirra sem bjuggu í dapur­legum krumma­skuðum Mið­vest­ur­ríkj­anna og sögð­ust þeir ávallt semja um skugga­hliðar banda­rísks mann­lífs. Hljóm­sveitin sendi frá sér nokkrar afbragðs breið­skífur á árunum 1982 til 1987 en þar bera af Atomizer og Songs About Fucking og þykja enn í dag með mik­il­væg­ari neð­an­jarð­ar­hljóm­plötum níunda ára­tug­ar­ins. Big Black lagði upp laupana árið 1987 þrátt fyrir að njóta vel­gengni beggja vegna Atl­antsála og varð mörgum inn­blástur.


Leiður yfir því að Rapeman lagði upp laupana

Sama ár og Big Black hætti stofn­aði Steve hina umdeildu en frá­bæru hljóm­sveit Rapeman ásamt fyrr­ver­andi með­limum Scratch Acid. Nafn hljóm­sveit­ar­innar var fengið að láni frá jap­anskri teikni­mynda­bók sem var í miklu upp­á­haldi hjá með­limum Rapeman. Þeir störf­uðu stutt og var sveit­inni meira að segja mót­mælt dug­lega af hópi kven­rétt­inda­bar­áttu­hópa sem var mikið í nöp við nafn­gift hennar. Rapeman gaf út eina þröngskífu, tvær smá­skífur og hina óvið­jafn­an­legu breið­skífu Two Nuns and a Pack Mule árið 1988. Hljóm­sveitin hætti stuttu eftir útgáfu skíf­unnar.

Steve var að eigin sögn mjög leiður yfir því að Rapeman lagði upp laupana og kom ekk­ert nálægt því að semja tón­list í nokkur ár á eftir. Hann fór á fullt í að taka upp annað tón­list­ar­fólk og hefur að eigin sögn komið að gerð rúm­lega fimmtán hund­ruð hljóm­platna. Snemma á ferl­inum sem upp­töku­maður tók hann þann pól í hæð­ina að hann vildi ekki láta titla sig sem upp­töku­stjóra þar sem hann vildi ekki ráða því hvernig þær hljóm­sveitir og tón­list­ar­fólk sem hann vann með hljóm­uðu á plötum sínum. Það voru þau sem réðu hann til vinnu og borg­uðu honum laun fyrir vinnu sína og ætti hann þar af leið­andi ekki að segja þeim fyrir verkum eða hvernig plötur þeirra ættu að hljóma. Hans hlut­verk væri ein­fald­lega það að fá það besta frá þeim í upp­töku­ferl­inu og veita þeim eins fag­lega þjón­ustu og kostur væri á.


Meðvitaðir um að vera ekki í leit að nýjum hlutum

Kjarninn setti sig í sam­band við Steve á dög­unum og ræddi við hann um tón­list­ina, tón­list­ar­brans­ann, íslenskt pönk og íslenska matseld.

Shellac hefur nú starfað í rúma tvo ára­tugi. Finnið þið ykkur enn knúna til þess að ögra hver öðrum sköp­un­ar­lega eftir allan þennan tíma?

Þegar við byrj­uðum höfðum við nokkrar grunn­hug­myndir sem við vildum kanna og við erum enn að kanna þær. Við erum mjög með­vit­aðir um það að við séum ekki í leit að nýjum hlutum til þess að festa við mengið okkar. Við treystum hver öðrum og sköp­un­ar­hvöt hvors ann­ars og erum sam­mála um að við séum ekki í stöðugri leit að nýj­ungum. Við erum ein­göngu að halda áfram að skoða það sem við byrj­uðum á fyrir tutt­ugu árum og komum okkur sjálfum á óvart reglu­lega.

Ég las nýlegt við­tal við þig í Quartz þar sem þú sagðir að streym­is­þjón­ustur á borð við Spotify og Pandora væru að leysa vand­ræða­gang­inn í tón­list­ar­brans­anum sem þú skrif­aðir um í grein­inni „The Problem With Music“. Hvaða áhrif telur þú þessar þjón­ustur munu hafa á sjálf­stætt starf­andi plötu­fyr­ir­tæki og tón­list­ar­fólk til lengri tíma litið?

Það er pirr­andi að hafa sagt eitt­hvað án þess að ígrunda það fylli­lega og svo er það fram­sett og túlkað eins og það var gert í þessu við­tali. Það sem ég sagði var að inter­netið sem heild hefði leyst vand­ræða­gang­inn sem hefur verið við­loð­andi tón­list­ar­brans­ann og flest tón­list­ar­fólk alla tíð. Þá meina ég að það hefur auð­veldað tón­list­ar­fólki til muna að koma tón­list sinni til fólks­ins sem vill hlusta. Ég hef nán­ast enga skoðun á Spotify þar sem ég nota hana ekki og mér finnst við­mót Pandora frekar óþol­andi þar sem hún notar aug­lýs­ingar og áskriftir til þess að halda sjálfri sér á floti. Ef ég er eitt­hvað að dunda mér heima eða að spila póker eru þessar þjón­ustur skárri val­kostur en útvarpið. Til lengri tíma held ég að þessar þjón­ustur munu aldrei skapa miklar tekjur fyrir minni útgáfur og hljóm­sveitir, þar sem stærstur hluti fólks notar ókeypis áskrift­ar­leiðir sem boðið er upp á. Það eru ein­fald­lega ekki miklir pen­ingar í því sem er ókeypis. Ég held að þau sem eru að kvarta undan of lágum höf­undar­launum séu að nota rangar reikni­að­ferðir, en það þýðir þó ekki að streym­is­þjón­ust­urnar séu dýr­lingar. Mér er nokk sama um þessar þjón­ustur og þær eru ekki stærsta vanda­málið sem tón­list­ar­fólk stendur frammi fyrir í dag.

Pólitískar áhyggjur af því hvert peningarnir fara

Hvað finnst þér um tón­list­ar­veit­una hans Neil Young, Pono Music? Heldurðu að hún sé ein­göngu fyrir hljóm­burðar­unn­endur og hljóðn­örda eða held­urðu að stærri hópur hlust­enda muni aðhyll­ast þessa gerð tón­list­ar­veita?

Hann er að reyna að gera hljóm­gæði að for­gangs­at­riði með þess­ari þjón­ustu sinni og er það í sjálfu sér mjög gott mál. Póli­tískt séð hef ég frekar áhyggjur af því hvert pen­ing­arnir fara því þegar á öllu er á botn­inn hvolft hefur það alltaf áhrif á þau sem semja tón­list­ina.

Síðast þegar Shellac spil­aði á Íslandi man ég að þú varst ágæt­lega kunn­ugur íslensku síð­pönki og sagð­ist þekkja hljóm­sveitir á borð við KUKL, Þey, Purrk Pillnikk og HAM. Einnig buðuð þið í Shellac Botn­leðju að spila á All Tomorrow‘s Parties í Englandi árið 2004, sællar minn­ingar. Hefurðu heyrt nýrri íslenska tón­list sem hefur náð að heilla þig?

Ég verð að við­ur­kenna að ég hef verið svo­lítið úr sam­bandi við íslensku sen­una. Þegar fyrsta pönk­tíma­bilið reið yfir voru hljóm­sveitir svo fáar að maður þekkti flestar hljóm­sveitir, alveg sama hvað þær komu.

Gefurðu þér ein­hvern tíma í að hlusta á nýja tón­list þegar þú ert ekki í hljóð­ver­inu þínu að taka upp? Velur þú heldur að hlusta á þögn­ina og hvíla eyrun utan vinn­unnar?
Mér dettur í hug gam­all brand­ari sem oft hefur gengið á milli þeirra sem starfa við að taka upp tón­list: „Veistu hvað vænd­is­konan vill ekki gera á frí­vökt­unum sínum?“ Ég skal alveg við­ur­kenna það að þegar maður vinnur við að hlusta og taka upp tón­list alla daga fyllist maður eins konar tón­list­ar­þreytu. Ég reyni samt að kíkja á tón­leika einu sinni til tvisvar í mán­uði ef ég hef færi á, en flestallar upp­götv­anir á tón­list geri ég í gegnum hljóð­verið mitt.


Dead Rider er ómótstæðileg og töfrandi

Eru ein­hverjar hljóm­sveitir sem þú fellur í stafi yfir þessa stund­ina og vilt deila með les­endum Kjarnans?

Mér finnst hljóm­sveitin Dead Rider frá Chicago ein­fald­lega ómót­stæði­leg og töfr­andi. Ég er einnig mjög hrif­inn af STNNNG frá Minn­ea­polis, franska hurdy-gurdy leik­ar­anum Romain Baudoin sem er virki­lega svalur og Screaming Females frá New Jersey er alveg frá­bær.

Ertu sam­mála eða ósam­mála því að tón­list­ar­senur þurfi tón­list­ar­elsk­andi hug­sjóna­fólk á borð við Corey Rusk, eig­anda Touch and Go Records, þau Megan Jasper og Jonathan Poneman hjá Sub Pop, Caleb Braaten, stofn­anda Sacred Bones, Barry Hogan, skipu­leggj­anda ATP, og Ian MacKaye og Jeff Nelson sem stofn­uðu Dischord og Minor Threat? Heldurðu að tón­list­ar­senur væru fátæk­ari án fólks eins og þeirra?

Mér finnst að það ætti ekki að per­sónu­gera senur eins og oft er gert og mér finnst það líka ekk­ert ósvipað því hvernig stjörnur meg­in­straums­ins eru hylltar trekk í trekk. Öll tón­list­ar­sam­fé­lög inni­halda fólk sem er mik­il­vægt þannig að þau þrí­fist vel og dafni en eng­inn ein­stak­lingur er svo mik­il­vægur að hann yfir­gnæfi sam­eig­in­legan styrk fjöld­ans sem gerir tón­list­ar­senur lif­andi. Ég aðhyllist þá sýn að það ætti að hylla senu fulla af fólki með sam­eig­in­leg áhuga­mál heldur en að hylla nokkra ein­stak­linga.

Shellac hefur gefið út nokkrar skífur sem aðeins örfáir hafa eign­ast og nefni ég þá The Futurist og Live in Tokyo sem dæmi. Hafið þið velt því fyrir ykkur að gera þessar plötur aðgengi­legar fleirum?

Við höfum talað um það nokkrum sinnum en þessar plötur voru gefnar út af sér­stökum ástæðum og við erum enn á því að þær til­heyri enn þeim ástæðum.

Má ég spyrja þig út í vænt­an­lega plötu ykkar, Dude, Incredible? Er hún lík eða ólík fyrri verkum ykkar?

Hún er eig­in­lega ekk­ert ólík því sem við höfum áður gert, alla­vega ekki af ásettu ráði. Við erum enn að vinna með þær grunn­hug­myndir sem við lögðum af stað með í byrjun. Það eru eflaust ein­hver ný smá­at­riði sem fólk sem hefur hlustað á okkur áður tekur eftir en kærir sig ekk­ert endi­lega um að heyra.

Myndi vilja vita meira um íslenska matargerð

Margt af sam­ferða­fólki þínu í tón­list í gegnum árin hefur verið að taka upp þráð­inn að nýju á síð­ustu árum. Nýlega sá ég á net­inu end­ur­komu­tón­leika Nirvana þar sem eft­ir­lif­andi með­limir spil­uðu undir söng frá­bærra söng­kvenna á borð við Kim Gordon úr Sonic Youth, Annie Clark úr St. Vincent, Lorde og Joan Jett. Hvað finnst þér um svona end­ur­komur og sérðu Rapeman ein­hvern tím­ann fyrir þér spila tón­leika í fram­tíð­inni?

Mér finnst það mjög ólík­legt að við myndum gera það. Í eðl­is­fari mínu hvílir ekki mikil for­tíð­ar­þrá og mér finnst Rapeman ekki hafa skilið eftir sig neina lausa enda. Mér finnst ekki mikil glóra í því að reyna að end­ur­skapa eitt­hvað sem við gerðum fyrir rúm­lega tutt­ugu árum.

Ég hef ein­staka sinnum ratað inn á mat­ar­bloggið þitt og hef séð áhuga­verða hluti sem ég hef ekki séð víða. Sérðu þig í anda kynna þér íslenska matseld og íslenskt hrá­efni á meðan þú dvelur hér?

Ég myndi gjarnan vilja vita meira um íslenska mat­ar­gerð. Ég er kunn­ugur reyktu hangi­kjöti, kæstum hákarli, sviða­hausum, sjó­fugli og öðru í þeim dúr en það er margt sem segir mér að íslensk mat­ar­gerð sé fjöl­breytt­ari en það.

Viðtalið við Steve Albini birt­ist fyrst í nýjasta Kjarn­anum. Lestu hann í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár