Fundu leið til að koma í veg fyrir þróun sykursýki

Íslenski vís­inda­mað­ur­inn Hákon Hákon­ar­son og sam­starfs­menn hans telja sig hafa fundið leið til að koma í veg fyrir að syk­ur­sýki af gerð 1 þró­ist í mann­eskju. Ef þróuð yrði með­ferð á grunni rann­sókn­ar­innar gæti hún haft lækn­ing­ar­mátt gagn­vart syk­ur­sýki 1 og ýmsum öðrum sjálfsof­næm­is­sjúk­dómum.
Rannsókn Hákons og sam­starfs­manna hans snýst um virkni gens sem teng­ist syk­ur­sýki 1 á líf­fræði­legu ferli sem hefur áhrif á losun insúl­íns. Grein eftir Hákon um rann­sókn­ina var birt í hinu virta vís­inda­tíma­riti Cell hinn 14. júní síð­ast­lið­inn. Hákon segir það mik­inn heiður að fá grein birta í tíma­rit­inu.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_07_03/32[/embed]

Bjuggu til arfbreytta mús


Að sögn Hákonar að um að ræða gen sem kall­ast CLEC16A, sem rann­sókn­arteymi hans við Barna­há­skóla­sjúkra­húsið í Fíla­delfíu í Banda­ríkj­unum fann út árið 2007 að væri sterkur áhættu­þáttur fyrir syk­ur­sýki. Genið er tjáð (e. expressed) í insúl­ín­fram­leið­andi bris­frumum og svoköll­uðum dráps­frumum (e. natural killer cells), en það er sú frumu­teg­und lík­am­ans sem ræðst á insúl­ín­fram­leið­andi bris­frumur og eyðir þeim.

Hákon og teymi hans vildu kom­ast að því hvernig genið og stökk­breyt­ingar á því orsaka syk­ur­sýki. Til þess að gera það bjuggu þau til arf­breytta mús þar sem teymið gat stýrt því hvort umrætt gen væri tjáð eða ekki. Á ensku kall­ast slík mús „knockout“-mús. Með slíkri var einnig hægt að stýra því hvort genið væri tjáð í ákveðnum frumum og líf­færum.
Að sögn Hákonar sner­ist rann­sóknin nú um að eyða gen­inu í insúl­ín­fram­leið­andi bris­frumum og skoða svo afleið­ing­arnar. „Það sem kom í ljós er að CLE16A-genið hefur með stjórnun á insúl­ín­fram­leiðslu að gera. Þegar gen­inu er eytt verður örvun á eggja­hvítu­efni sem heitir Parkin, en það leiðir til þess að hvat­berar sem sjá um orku­fram­leiðslu í bris­frumum eyði­leggj­ast. Við þetta raskast starf­semi kals­íum-jóna­ganga sem stjórna fram­leiðslu og losun á insúl­íni með þeim afleið­ingum að á end­anum verður ekk­ert insúlín fram­leitt. Það leiðir af sér að syk­ur­sýki 1 þró­ast.“

Þetta er örstutt brot úr umfjöllun Kjarnans um upp­götv­un­ina. Lestu hana í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár