Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi

Fyr­ir­sögnin á grein þess­ari á sann­ar­lega við þá hug­mynd þriggja ungra manna að efna til tón­list­ar­há­tíðar á opnu svæði sunnan við Hró­arskeldu í Danmörku sum­arið 1971. Gest­irnir á þess­ari fyrstu hátíð voru um eða innan við 10 þús­und, en nú er hátíðin, sem haldin er árlega, sú stærsta í Norður – Evrópu, í fyrra voru gest­irnir um 130 þús­und.

Tveir þess­ara ungu bjart­sýn­is­manna voru mennta­skóla­nemar í Hró­arskeldu, sá þriðji, Karl Fischer, nokkrum árum eldri og umboðs­maður hljóm­sveita. Hann hafði stundum útvegað hljóm­sveitir til að spila á mennta­skóla­böllum og þekkti þá Jesper Switzher og Mogens Sandfær sem báðir voru í nem­enda­ráði skól­ans.

Jesper sagði frá því í við­tali fyrir skömmu að Karl hefði hringt í sig og spurt hvort þeir ættu ekki að skipu­leggja tveggja daga tón­list­ar­á­tíð í Hró­arskeldu það sum­arið. „Ég var átján ára og bjó heima hjá mömmu og pabba og sagði Karli að ég ætl­aði að spyrja Mogens sem var vara­for­maður nem­enda­ráðs­ins. Mogens þótti hug­myndin sniðug, sagð­ist hafa séð Woodstock í hill­ingum, en hann var nýbú­inn að sjá kvik­mynd­ina um þá þekktu tón­list­ar­há­tíð.“

Þrír metrar milli tjalda og ekki trufla kirkjuklukkurnar


Þriðji mennt­skæl­ing­ur­inn bætt­ist í hóp­inn og næsta skref var að fá leyfi bæj­ar­yf­ir­valda í Hró­arskeldu. Þeir Jesper og Mogens gengu á fund eins af emb­ætt­is­mönnum bæj­ar­ins sem og slökkvi­liðs­stjóra og ósk­uðu eftir leyfi til að halda tveggja daga hátíð, laug­ar­dag og sunnu­dag í lok ágúst. Emb­ætt­is­mönn­unum leist vel á hug­mynd­ina en settu tvö skil­yrði: Fjarlægð milli tjalda tón­leika­gesta skyldi vera minnst þrír metrar og ekki mátta leika tón­list fyrr en eftir klukkan tvö síð­degis á sunnu­deg­inum. Síð­ar­nefnda skil­yrðið var til þess að trufla ekki hring­ingar í kirkju­klukkum bæj­ar­ins. Hinir til­von­andi tón­leika­hald­arar töldu auð­velt að upp­fylla þessi skil­yrði. Ekkert var rætt um sal­erni, veit­inga­að­stöðu og allt það sem nú þykir til­heyra sam­komum af þessu tagi.

Ætlunin var að hátíðin, sem þeir félagar köll­uðu „Sound Festival“ færi fram á svæði við Hró­arskeldu­fjörð­inn, sem stundum hafði verið notað undir úti­skemmt­anir. Hjónum sem áttu þessa land­spildu leist hins vegar miður vel á hug­mynd­ina og þegar frúin sá þessa síð­hærðu pilta sagði hún þvert nei. „Hver veit svo nema þetta séu hommar“ á hún að hafa sagt við bónda sinn.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_07_03/22[/embed]

Bæjarstjórn bauð landbúnaðarsýningasvæði


Bæj­ar­stjórnin í Hró­arskeldu bauð þá svæði í útjaðri bæj­ar­ins, sem hafði nýlega verið skipu­lagt til land­bún­að­ar­sýn­inga, bæj­ar­stjórnin taldi þetta henta ágæt­lega. Tón­leika­höld­ur­unum leist ekki sér­lega vel á stað­inn en áttu engra kosta völ. Búið að prenta mið­ana sem seldir voru á spott­prís til mennt­skæl­inga. „Til að tryggja aðsókn­ina“ sögðu þeir félagar síðar.

Hátíðin hófst klukkan tíu um morg­un­inn laug­ar­dag­inn 28. ágúst 1971 og fljót­lega fór fólk að tín­ast á svæðið. Ekki voru allir til­búnir að borga aðgangs­eyr­inn heldur hopp­uðu ein­fald­lega yfir girð­ing­una. Jesper Switzer hringdi heim og fékk bróður sinn (12 ára) til að koma með nokkra stráka með sér til að reyna að passa að fólk færi inn um hliðið, en það breytti engu.

Uppúr hádeg­inu fór að rigna. Rign­ingin sá til þess að nær ekk­ert heyrð­ist í tón­list­ar­fólk­inu enda hljóð­kerfið ekki burð­ugt. Á sunnu­deg­inum var veðrið aftur á móti gott en þá voru margir farnir heim. Meðal þeirra sem komu fram á þess­ari fyrstu hátíð voru hljóm­sveitin Gasolin (með Kim Larsen í broddi fylk­ingar), Sebast­ian og Povl Dissing.

Fjölskyldurnar urðu að borga tapbrúsann


Þótt um tíu þús­und manns hafi komið á hátíð­ina var aðeins lít­ill hluti þess hóps sem borg­aði sig inn. Kostn­að­ur­inn reynd­ist miklu meiri en þeir félagar höfðu reiknað með, ekki síst hreins­un­ar­starfið. Á end­anum urðu fjöl­skyldur ungu bjart­sýn­is­mann­anna að hlaupa undir bagga og borga tapið. Mennt­skæl­ing­arnir grun­uðu umboðs­mann­inn um að hafa stungið pen­ingum undan en aðhöfð­ust ekk­ert vegna þess. Þeir tóku hins­vegar strax ákvörðun um að end­ur­taka ekki leik­inn.

Þrátt fyrir að mennt­skæl­ing­arnir (og umboðs­mað­ur­inn) leggðu tón­leika­ár­arnar í bát voru bæj­ar­yf­ir­völd í Hró­arskeldu sann­færð um að hátíð af þessu tagi ætti fram­tíð fyrir sér. Góð­gerða­sam­tökin Hró­arskeldu­sjóð­ur­inn tóku þá að sér að ann­ast tón­leika­haldið og hefur gert það allar götur síðan.

Allt hefur breyst nema staðurinn og stuðið


Síðan mennt­skæl­ing­arnir bjart­sýnu héldu fyrstu hátíð­ina hefur margt breyst, í raun allt nema stað­ur­inn sem alltaf er sá sami og svo stuðið á mann­skapnum. Í stað palls­ins (sem strák­arnir köll­uðu senu) eru nú átta tón­leika­svið. Þekktast er Orange, app­el­sínugula sviðið, sem jafn­framt er merki hátíð­ar­innar, það var keypt frá Bret­landi árið 1978 en Rolling Stones not­uðu það á tón­leika­ferða­lagi tveimur árum fyrr. Þeir end­ur­nýja nú kynnin því þeir eru helsta tromp hátíð­ar­innar í ár og spila auð­vitað á því app­el­sínugula. Þar er pláss fyrir 60 þús­und áhorf­endur en sam­tals rúm­lega 100 þús­und við sviðin átta.

Gestafjöldinn hefur fjórtánfaldast frá fyrstu hátíðinni


Þótt aðsóknin að hátíð­inni hafi sveifl­ast nokkuð milli ára hefur sveiflan nær alltaf verið upp á við. Árið 1995 fór fjöld­inn í fyrsta sinn yfir 100 þús­und og í fyrra voru gestir um 130 þús­und tals­ins og hafa aldrei verið fleiri. Útlit er fyrir að enn fleiri sæki hátíð­ina að þessu sinni ef marka má aðsókn­ina fyrstu dag­ana. Þegar hleypt var inn á svæðið á sunnu­dag­inn voru 55 þús­und manns mætt á svæðið og keppt­ust um að ná sér í sem best tjald­stæði. Hró­arskeldu­há­tíðin er sú stærsta af þessu tagi á Norð­ur­löndum og í Evrópu er það aðeins Gla­ston­bury hátíðin í Englandi sem dregur að sér fleira fólk.

Þótt hátíðin sé þekkt um víða ver­öld eru heima­menn þó í meiri­hluta. Raunar hefur erlendum hátíð­ar­gestum fækkað allra síð­ustu ár. Engar öruggar tölur eru til um fjölda þeirra Íslend­inga sem sækja hátíð­ina að jafn­aði en talið að þeir hafi iðu­lega verið á bil­inu tólf til fimmtán hund­ruð. Lang­flestir þeirra sem sækja hátíð­ina eru á aldr­inum sautján til þrjá­tíu ára, Rolling Stones eru því langt yfir með­al­aldri, sá yngsti 67 ára, sá elsti 73!

Eitthvað fyrir alla


Margir tón­list­ar­spek­úlantar telja ástæð­una fyrir vin­sældum Hró­arskeldu­há­tíð­ar­innar vera þá að þar sé eitt­hvað fyrir alla. Í upp­hafi voru flestir sem fram komu danskir en það breytt­ist fljótt og æ síðan hafa lista­menn­irnir komið víða að og í þeim hópi margt þekktasta tón­list­ar­fólk sam­tím­ans. Listinn er langur en þar er meðal ann­ars að finna Procol Harum, Bob Marley, U2, Mike Oldfield, Simpel Minds, Metallica, Eric Clapton, Sting, Bob Dylan, Nirvana, Leonard Cohen, Sigur Rós, David Bowie, Pet Shop Boys, Robbie Williams, Coldplay, Björk, Bruce Springsten, Kraftwerk og fleiri.

Á hátíð­inni hafa til þessa dags verið haldnir 4.796 tón­leikar og 3.844 hljóm­sveitir hafa stigið á svið. Sú hljóm­sveit sem oft­ast hefur troðið upp er Gnags, en þeir félagar hafa 12 sinnum spilað fyrir gesti hátíð­ar­innar.

Slysið


Þegar tón­leikar hljóm­sveit­ar­innar Pearl Jam stóðu sem hæst á app­el­sínugula svið­inu 30. júní árið 2000 varð sá hörmu­legi atburður að níu tón­leika­gestir tróð­ust undir og lét­ust og 26 til við­bótar slös­uð­ust alvar­lega. Aldrei fannst nein ein­hlít skýr­ing á því sem gerð­ist en svo virt­ist sem nokkrir hefðu dottið og dregið aðra með sér, en jörðin var blaut og hál. Við þetta þrýst­ist hluti áhorf­enda nær svið­inu og ekki varð við neitt ráðið. Skipu­leggj­endur hátíð­ar­innar gerðu strax árið eftir marg­hátt­aðar ráð­staf­anir til að koma í veg fyrir slys af þessu tagi.

Hróarskelda 2014


Sé rýnt í lista með nöfnum tón­list­ar­fólks þetta árið má sjá að úr mörgu er að velja. Hljóm­sveita­list­inn inni­heldur 170 nöfn og þótt Rolling Stones, Artic Monkeys, Damon Albarn, Stevie Wonder, Drake, Major Lazer, Outkast og Trentemöller fái stærsta letrið í aug­lýs­ingum segir það ekki alla sög­una. Ein íslensk sveit, tríóið Samaris er á flytj­enda­list­anum.

Á úti­skemmt­unum skiptir veðrið miklu máli og reyndir Hró­arskeldu­gestir vita að ekki er á vísan að róa í þeim efnum. Danska veð­ur­stofan spáir prýði­legu veðri út vik­una án þess þó að ábyrgj­ast neitt í þeim efnum. Hvernig sem veðrið verður má slá því föstu að allir snúi heim í hátíð­ar­skapi þegar sein­asti tónn­inn hefur verið sleg­inn þetta árið.

Umfjöll­unin birt­ist fyrst í nýj­ustu útgáfu Kjarnans. Lestu hana hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár