Dimitri með HAM er sennilega uppáhaldslagið

Gunnar Val­þórs­son, frétta­maður og gít­ar­leik­ari í Striga­skóm nr. 42, svar­aði sjö spurn­ingum í síð­asta Kjarna.

Hvað gleður þig mest þessa dag­ana?
Góða veðrið og börnin mín.

Hvert er helsta áhuga­mál þitt?
Ég spila á gítar í Striga­skóm nr. 42. Það er aðal­á­huga­málið og ég er orð­inn veru­lega spenntur fyrir menn­ing­ar­við­burð­inum Eistna­flugi í Nes­kaup­stað í sumar.

Hvaða bók lastu síð­ast?
Palo Alto eftir Hollywood-stjörn­una James Franco. Hann kom mér skemmti­lega á óvart.

Hvert er upp­á­halds­lagið þitt?
HAM er besta hljóm­sveit í heimi og þar af leið­andi er upp­á­halds­lagið með HAM. Erfitt að gera upp á milli, en Dimitri er senni­lega mitt upp­á­halds. Enda skírði ég kött­inn minn einu sinni í höf­uðið á lag­inu.

Til hvaða ráð­herra berðu mest traust?
Ætli það sé ekki fjár­mála­ráð­herra.

Ef þú ættir að fara til útlanda á morgun og mættir velja land, hvert myndir þú vilja fara?
Um þessar mundir er þetta auð­veld spurn­ing. Brasilía yrði alltaf fyrir val­inu. Ef ég gæti reddað miða á leik með Frakk­landi væri það ekki verra.

Hvaða fer mest í taug­arnar á þér?

Þröng­sýni og for­dómar fara óstjórn­lega mikið í taug­arnar á mér.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_06_19/34[/embed]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár