Dagur: Það fer enginn í fötin hans Jóns Gnarr

Dagur B. Egg­erts­son og Jón Gnarr, unnu náið saman síð­asta kjör­tíma­bil. Dagur, sem er í ítar­legu við­tali í nýjasta Kjarn­anum, segir Jón vera ein­stakan og að hann hafi haft mjög mikil áhrif á hvernig hann hugsi og nálgist stjórn­mál. „Ég var og er jafn­að­ar­maður og verð það án efa allan minn feril. En Jón breytti því hvernig ég nálg­ast við­fangs­efnin, sam­skipti við fólk og sam­skipti í hóp. Sérstaða hans og styrkur er að hann nær til fólks í sam­fé­lag­inu sem eng­inn annar stjórn­mála­maður á mögu­leika á að ná til. Og nær eyrum sem eru almennt ekki að hlusta á það sem er að ger­ast í póli­tík. Svo hefur hann það líka á valdi sínu að tala beint inn í hjörtun á fólki. Ekki bara með því hvað hann segir heldur hvernig hann segir það. Ekki bara með því sem hann gerir heldur hvernig hann gerir það. Það gerir hann ein­stakan.“

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_06_19/20[/embed]

Spurður hvort það sé þá úti­lokað að nýi borg­ar­stjór­inn muni leiða næstu gleði­göngu í draggi eins og Jón Gnarr gerði ítrekað stað­festir Dagur það. „Ég ætla mér ekki að reyna að fara í fötin hans Jóns. Það getur það eng­inn. Hvorki ég né nokkur annar. Það er eitt af því sem ég hef lært. Að finna styrk í því sem maður gerir þegar maður hættir að reyna að fara í ann­arra manna föt eða að fylgja ein­hverjum for­múlum. Maður verður að finna kjarn­ann í því sem maður vill gera og standa fyrir. Og vera síðan eins afslapp­aður og eðli­legur í því og maður getur.“

Þetta er örstutt brot úr við­tal­inu við Dag. Lestu það í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár