Dagur: Ríkisstjórnin skilur ekki Reykjavík

Aðspurður um hver var ástæða þess að Sam­fylk­ing­unni gekk jafn vel í Reykja­vík og raun ber vitni, seg­ist Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri, sem er í ítar­legu við­tali í nýjasta Kjarn­anum, ekki vita það almenni­lega. „Það er mjög mis­mun­andi hvað fólk segir. Hús­næð­is­málin eru eitt þeirra mála sem fólk nefnir. Svo er þetta lík­lega sam­spil margra þátta. Rík­is­stjórnin hefur ekki verið að setja fram spenn­andi sýn á fram­tíð­ina. Mér finnst hún ekki skilja Reykja­vík. Mér finnst hún ekki skilja þörf­ina fyrir fjöl­breytt atvinnu­líf; þekk­ing­ar­greinar, græna hag­kerfið eða skap­andi greinar. Hún hefur talað fyrir mjög gam­al­dags lausnum í atvinnu­málum. Ég held að það hafi hjálpað í þeirri merk­ingu að fólk sjái okkur sem val­kost. Reykja­vík þarf að eiga skýra rödd. Og það er mik­il­vægt að líta á borg­ar­líf og spenn­andi borg­ar­þróun sem tæki­færi en ekki ógn.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_06_19/20[/embed]

Borgin getur ekki gert allt í atvinnu­málum, og á ekki að gera það. En við settum atvinnu­stefnu fyrir tveimur árum þar sem við erum að reyna að vinna að auk­inni fjöl­breytni í atvinnu­líf­inu. Þetta krist­all­að­ist í aðal­skipu­lag­inu.

Ég held að rík­is­stjórnin hafi gert mikil mis­tök með því að skera niður styrki til rann­sókna, vís­inda og til Kvik­mynda­sjóðs. Svo er auð­vitað ferða­þjón­ustan dæmi út af fyrir sig. Við Íslend­ingar veðj­uðum á hana til að fjölga störfum mjög hratt. Ég hef hins vegar áhyggjur af því að hún verði ekki í stakk búin til að borga góð laun. Það á að vera rauði þráð­ur­inn til fram­tíðar, að skapa vel borg­andi störf. Þar er áhersla okkar hér í borg­inni. Við eigum ekki að vera að keppa við lág­launa­svæði heims­ins heldur þurfum við að skapa okkur sér­stöðu og byggja á hug­viti og þekk­ingu sem skapar verð­mæti og getur staðið undir launum og þeirri vel­ferð sem við viljum búa við.“

Þetta er örstutt brot úr við­tal­inu við Dag. Lestu það í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár