Sýn Framsóknarflokks á mannréttindi og jafnræði óljós

Mikið fjaðrafok var í kringum Fram­sókn­ar­flokk­inn í kosn­inga­bar­átt­unni fyrir sveita­stjórn­ar­kosn­ing­arnar sem fram fóru í lok maí, aðal­lega vegna ummæla for­ystu­manna fram­boðs­ins um lóða­út­hlut­anir undir mosku í Reykja­vík og ann­arra sem margir túlk­uðu sem útlend­inga­andúð. Það er þó ljóst að eitt­hvað sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gerði virk­aði. Hann er nú með tvo borg­ar­full­trúa í höf­uð­borg­inni í fyrsta sinn í 40 ár. For­víg­is­menn nýs meiri­hluta, meðal ann­ars Dagur B. Egg­erts­son, sem er í ítar­legu einka­við­tali í nýjasta Kjarn­anum, hafa hins vegar sagt að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sé ekki stjórn­tækur. Hvað á Dagur við með því?

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_06_19/20[/embed]

„Á meðan það er óljóst hvaða sýn Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur á jafn­ræði og mann­rétt­indi í sam­fé­lag­inu verður að gefa honum svig­rúm til að tala skýrar og gera hreint fyrir sínum dyrum áður en hægt erað svara því hvort flokk­ur­inn er tækur til stjórn­ar­sam­starfs. Það er ekki verið að kvarta yfir umræðu heldur því að það sé verið að ala á ótta og tor­tryggni milli fólks. Að stilla hluta sam­fé­lags­ins upp sem ein­hvers konar óvini eða láta að því liggja. Það finnst mér að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn verði að skýra. Hvar hann stendur í þessum málum. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er líka í rík­is­stjórn og það skiptir mjög miklu máli að fá þetta á hreint.“

Þetta er örstutt brot út við­tal­inu við Dag. Lestu það í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár