Dagur: Ákvörðun um léttlést möguleg á kjörtímabilinu

Áhersla síð­asta meiri­hluta í borg­ar­stjórn á fjöl­breytt­ari sam­göngu­mögu­leika, hjól­reiðar og almenn­ings­sam­göngur, fór varla fram­hjá neinum. Og fór gríð­ar­lega í taug­arnar á mörgum aðdá­endum einka­bíls­ins.

Að sögn Dags B Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra, sem er í ítar­legu einka­við­tali við nýjasta Kjarnann, verður haldið hratt áfram á sömu braut. „Við erum nýbúin að gera grein­ingu í sam­vinnu við önnur sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem sýnir okkur fram á það að ef vel­gengni Strætó BS heldur áfram – far­þegum þar fjölg­aði um 33 pros­ent á síð­asta kjör­tíma­bili – þurfum við ein­fald­lega afkasta­meiri almenn­ings­sam­göngur, sér­stak­lega á þessum stóru og hröðu stofn­leiðum. Þarna eru ýmsir val­kostir og mis­mun­andi leiðir sem borgir hafa farið í þessu. Annars vegar er það sem hefur verið kallað létt­lestir á hjólum – hrað­vagnar sem líkja eftir lestum og hafa for­gang í umferð­inni og kom­ast hratt á milli staða – og svo hins vegar létt­lest­ar­kerfi sem sumar borgir hafa verið að velja. Það er þó nokkuð dýr­ara en laðar að fleiri far­þega. Þetta er mál sem ég vil að við tökum af skarið með á allra næstu miss­erum.“

Dagur telur það vel koma til greina að ákvörðun um slíkt risa­skref í almenn­ings­sam­göngum Reyk­vík­inga verði tekin á þessu kjör­tíma­bili. „Við erum að vinna að svæð­is­skipu­lagi með hinum sveit­ar­fé­lög­unum. Það er nokkuð góð sam­staða að hugsa í þessa átt. Mér fynd­ist það mjög spenn­andi. Ákvörðun er hins vegar eitt en skipu­lag og fram­kvæmd annað. Það er oft sagt að eftir að ákvörðun hefur verið tekin taki 7-10 ár að koma svona afkasta­meira sam­göngu­kerfi á kopp­inn.“

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_06_19/20[/embed]

Húsnæðismarkaðurinn er þensluhvetjandi

Stærsta kosn­inga­lof­orð Sam­fylk­ing­ar­innar í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga var að byggja 2.500-3.000 leigu- og búsetu­réttar­í­búðir í höf­uð­borg­inni. Ekki eru allir á þeirri skoðun að hið opin­bera eigi að koma að slíkum fram­kvæmdum. Auk þess virð­ist vera að skap­ast mikið þenslu­á­stand í íslenska hag­kerf­inu vegna stór­fram­kvæmda og það er ekki beint eftir hag­fræði­bók­inni að auka opin­berar fram­kvæmdir á slíkum tímum. Það gæti virkað sem olía á eld.

Dagur segir stöð­una á hús­næð­is­mark­aði í Reykja­vík hins vegar vera þenslu­hvetj­andi í sjálfri sér. „Það að fast­eigna­verð sé að fara upp fer inn í verð­bólg­una og eykur þenslu. Hins vegar þarf auð­vitað líka að læra af sög­unni og horfa á heild­ina þegar verið er að horfa á fram­kvæmdir, en ég held að það hljóti að vera breið sam­staða um það að hús­næðis­málin hafi þar for­gang umfram margt, ef ekki flest, annað.

Það er ekki sama hvernig þetta er gert og við höfum verið að skoða for­dæmi erlendis. Reykja­vík­ur­borg er mjög stór land­eig­andi og þarf að koma að málum á einn eða annan hátt með lóða­út­hlut­unum. Val­kost­irnir eru því kannski þeir að lóðum undir leigu­í­búðir sé úthlutað án mik­illa skil­yrða í þeirri von að þar rísi leigu­í­búðir, eða að lóð­irnar séu lagðar inn í félög sem eigið fé gegn því, eða sem trygg­ing fyrir því, að leigu­í­búðir rísi og að þetta verði leigu­fé­lög til langs tíma. Við erum að horfa á síð­ari leið­ina. Rann­sókn­ar­skýrslan um Íbúða­lána­sjóð geymir mörg dæmi um að fyrri leiðin hafi verið farin. Það áttu að verða til leigu­fé­lög með íbúðir á við­ráð­an­legu verði en það gerð­ist ekki heldur lenti í braski á brask ofan þar sem leigj­endur sátu eftir með sárt ennið. Við erum búin að draga lær­dóm af þeirri sögu til að tryggja að þetta verði lang­tíma­leigu­fé­lög og að íbúð­irnar verði á við­ráð­an­legu verði.“

Þetta er örstutt brot úr við­tal­inu við Dag. Lestu það í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár