Dagur vill ekki í landsmálin né verða formaður flokks

Þrátt fyrir að Sam­fylk­ing­unni hafi gengið mjög vel í Reykja­vík í síð­ustu kosn­ingum þá verður ekki það sama sagt um árangur hennar á lands­vísu. Og í síð­ustu þing­kosn­ingum beið flokk­ur­inn afhroð. Að mati margra, bæði innan og utan flokks­ins er hann að upp­lifa leið­toga- og jafn­vel hug­mynda­fræði­lega krísu. Það er því stíft horft til Dags B. Egg­erts­sonar með það fyrir augum að hann gefi færi á sér sem næsti leið­togi Sam­fylk­ing­ar­innar. Er hann far­inn að hug­leiða að taka það skref?

„Nei. Ég er mjög ánægður með árangur flokks­ins hér í Reykja­vík og hann hefði gjarnan mátt vera meiri ann­ar­staðar á land­inu. Ég held að jafn­að­ar­stefnan eigi mjög mikið erindi og það er klárt verk að vinna innan flokks­ins. Það er þörf á upp­bygg­ing­ar­starfi. Ég er alveg sam­mála því. En ég held að nýver­andi for­ysta og þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar eigi að ráð­ast í það. Og ég skal glaður styðja þau í því en ég er aug­ljós­lega ekki á leið­inni í lands­málin. Ég er nýorð­inn borg­ar­stjóri og hef mín verk að vinna hér.“

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_06_19/20[/embed]

Aðspurður hvort það komi til greina að færa sig yfir í lands­málin ein­hver tím­ann seg­ist Dagur ekki sjá það fyrir sér í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð. „Það hefur svo sem oft komið upp á árum áður. En þegar ég hef farið í gegnum þetta með sjálfum mér þá hafa þessi verk­efni í borg­inni alltaf verið það stór og mik­il­væg og spenn­andi í mínum huga að þau hafa togað meira. Ég held að borg­ar­málin séu svo­lítið van­metin stærð í póli­tík. Mér finnst skrýtið að heyra það að það sé ein­hvern veg­inn sjálf­sagt að menn fari í sveit­ar­stjórn­ar­mál en fari síðan á þing og í lands­mál. Í Danmörku t.d. er til dæmis býsna algengt að fyrrum þing­menn og ráð­herrar fari í sveita­stjórn­ar­málin og spreyti sig á þeim. Borg­ar­stjór­inn í Kaup­manna­höfn var ráð­herra. Og borg­ar­stjórar í mörgum stærri borgum hafa einnig komið úr röðum þing­manna.

Mik­il­vægi borga er að aukast. Bæði vegna þess að þær stækka og straum­ur­inn leggur þangað en líka vegna þess að þar er hið efna­hags­lega afl. Þar skap­ast fjöl­breytrni í störfum sem nýjar kyn­slóðir kalla eftir. Þar ræðst sam­keppn­is­hæfni milli þjóða þannig að póli­tík á þess­ari öld verður að stórum hluta borg­arpóli­tík.“

Hvað er fyr­ir­sjá­an­leg fram­tíð?

„Ég hef lært það er gott að vera með fimm ára plan og að maður eigi ekki að fulll­yrða neitt um mál sem eru lengra en tíu ár fram í tím­ann.“

Er þá hvorki á fimm ára né tíu ára plan­inu að fara í lands­málin?

„Nei.“

Ítarlegt við­tal við Dag B. Egg­erts­son, nýjan borg­ar­stjóra Reykja­víkur, er í nýjasta Kjarn­anum. Lestu hann í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár