Leyniskjöl frá Wikileaks: TISA-samkomulagið

Kjarninn birtir leyniskjöl úr TISA-við­ræð­unum í sam­starfi við Wikileaks. Við­ræð­unum er ætlað að auka frelsi í þjón­ustu­við­skiptum. Mikil leynd hvílir yfir þeim.

Vilji er til þess að vinda ofan af því reglu­verki sem sett hefur verið á fjár­mála­þjón­ustu eftir hrun, liðka fyrir veru lyk­il­stjórn­enda og sér­fræð­inga í fjár­mála­geir­anum í öðrum löndum en þeirra eigin umfram aðra og setja upp ein­hvers konar yfir­þjóð­legan dóm­stól til að taka ákvarð­anir um deilu­mál sem munu spretta upp á milli fjár­mála­fyr­ir­tækja og þjóða í fram­tíð­inni.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í skjölum úr yfir­stand­andi TISA-við­ræðum um aukið frelsi fjár­mála­þjón­ustu á alþjóða­mörk­uðum.

Skjölin eru dag­sett 14. apríl 2014 og hafa aldrei birst opin­ber­lega áður. Wikileaks komst yfir skjölin og ýmsir fjöl­miðlar víðs vegar um heim­inn greina nú frá þeim. Kjarninn er eini íslenski fjöl­mið­ill­inn sem það gerir.

Lestu skjölin í heild sinni hér.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_06_19/8[/embed]

Hyglar ríkum alþjóðafyrirtækjum


Alþjóða­sam­tök starfs­fólks í almanna­þjón­ustu (PSI) hafa gagn­rýnt TISA-við­ræð­urnar harð­lega. Í skýrslu sem þau gáfu út vegna þeirra í lok apríl síð­ast­lið­ins segir meðal ann­ars að við­ræð­urnar séu vís­vit­andi til­raun til að auka hagnað stærstu og rík­ustu fyr­ir­tækja og þjóð­ríkja heims á kostnað þeirra sem verst hafa það. Verði sam­komu­lagið að veru­leika muni það auka ójöfnuð gríð­ar­lega.

Með TISA-sam­komu­lag­inu, og öðrum slíkum yfir­þjóð­legum við­skipta­sátt­málum, sé verið að festa í sessi rétt fjár­festa og koma í veg fyrir að rík­is­stjórnir geti gripið til aðgerða á fjöl­mörgum sviðum sem teng­ist við­skiptum. Á meðal þess sem PSI segir að TISA-sam­komu­lagið muni hafa í för með sér er að rík­is­stjórnir muni ekki geta tekið aftur yfir opin­bera þjón­ustu ef einka­væð­ing hennar hafi mis­tek­ist, reglu­gerðir þjóða sem snúa að öryggi verka­manna verði tak­mark­aðar, sömu­leiðis umhverf­is­vernd­ar­reglu­verk, neyt­enda­vernd og eft­ir­lits­starf­semi með heil­brigð­is­þjón­ustu, orku­verum, úrgangslosun og fag­gild­ingu í mennta­kerf­inu. „Þetta sam­komu­lag mun koma fram við far­and­verka­menn (e. migr­ant workers) sem vörur og tak­marka getu rík­is­stjórna til að tryggja rétt­indi þeirra,“ segir enn fremur í skýrslu PSI.

 

Ísland þátttakandi


Mikil leynd hvílir yfir umræddum skjölum og við­ræð­unum í heild. Þær þykja gríð­ar­lega við­kvæmar, enda verið að sýsla með grund­vall­ar­rétt­indi á vett­vangi sem lýtur í raun engum reglum. Á for­síðu skjal­anna segir meðal ann­ars að ekki megi aflétta trún­aði á þeim fyrr en fimm árum eftir að TISA-sam­komu­lagið taki gildi eða fimm árum eftir að við­ræð­unum ljúki, fari svo að samn­ingar náist ekki. Á skjöl­unum stendur að þau verði að „vera vistuð í lok­aðri eða öruggri bygg­ingu, her­bergi eða hirslu“.

Við­ræð­urnar fara líka fram utan Alþjóða­við­skipta­stofn­un­ar­innar (WTO) og lúta því ekki þeim reglum sem gilda um þá stofnun.

Ljóst er á skjöl­unum að vilji er til þess að auka frelsi fjár­mála­þjón­ustu til að stunda sína starf­semi all­veru­lega. Um fimm­tíu ríki taka þátt í samn­ings­við­ræð­unum. Ísland er þar á meðal. Samkvæmt þeim skjölum sem Kjarninn hefur undir höndum gerðu Íslend­ingar engar athuga­semdir við þær til­lögur sem settar voru fram.

Afregluvæðing aðalatriði


TISA-við­ræð­urnar hafa staðið yfir frá því vorið 2013 og sam­kvæmt þeim litlu tíð­indum sem borist hafa af fram­vindu þeirra hafa þær gengið vel. Sjöttu við­ræðu­lotu lauk í byrjun maí síð­ast­lið­ins.

Við­ræð­urnar snú­ast um alla anga þjón­ustu og frelsis­væð­ingu þeirra á alþjóða­vett­vangi. Skjölin sem Wikileaks hefur undir höndum, og Kjarninn segir nú frá, snú­ast ein­vörð­ungu um þær áherslur sem stefnt er á að ná í gegn varð­andi fjár­mála­þjón­ustu. Til­gangur við­ræðn­anna er að tryggja algjört aðgengi á milli mark­aða þeirra um fimm­tíu landa sem að sam­komu­lag­inu myndu koma, verði það að veru­leika.

Á und­an­förnum árum – eftir efna­hags­hrunið sem skall á haustið 2008 – hafa reglur um fjár­mála­þjón­ustu verið hertar tölu­vert á ýmsum sviðum víðs vegar um heim­inn. Í þeim samn­ings­drögum sem Kjarninn er með virð­ist stefnan með TISA-sam­komu­lag­inu að draga tölu­vert úr þeim reglum. Auk þess er þar að finna ákvæði sem eiga að heim­ila stjórn­endum og sér­fræð­ingum sem starfa í fjár­mála­geir­anum betra aðgengi að því að dvelja í samn­ings­lönd­unum en þeir hafa í dag, enda inn­flytj­enda­mál og hertar kvaðir í þeim mjög ofar­lega á baugi víða um heim um þessar mundir.

Í skjöl­unum er líka lagt til að settur verði upp nokk­urs­konar yfir­þjóð­legur dóm­stóll til að útkljá deilu­mál sem kunna að koma upp á milli þeirra sem aðild eiga að sam­komu­lag­inu. Þangað gætu til dæmis fjár­mála­fyr­ir­tæki skotið skorðum sem þjóð­ríki reyndu að setja þeim.

Úttektin birt­ist fyrst í nýj­ustu útgáfu Kjarnans. Lestu hana í heild hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár