Topp fimm: Predatorinn sem enginn Arnold réð við

Allt stefnir í að Dagur B. Egg­erts­son verði næsti borg­ar­stjóri Reykja­víkur, en honum er mikið í mun að gengið verði frá meiri­hluta­sam­starfi Sam­fylk­ing­ar­innar, Bjartrar fram­tíðar, VG og Pírata áður en HM í fót­bolta hefst í Brasilíu hinn 12. júní næst­kom­andi. Dagur hefur reynslu af því að vera borg­ar­stjóri, eða hefur að minnsta kosti fengið smjör­þef­inn af því, er hann var borg­ar­stjóri í rúma þrjá mán­uði á árunum 2007 til 2008. Í til­efni af fyr­ir­hug­uðum borg­ar­stjóra­skiptum í Reykja­vík rifjar Kjarninn upp fimm eft­ir­minni­leg­ustu borg­ar­stjór­anna í höf­uð­borg­inni.


1. Jón Gnarr


Besti flokk­ur­inn hans kom, sá og sigr­aði í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2010. Gamli fjór­flokk­ur­inn vissi þá ekki sitt rjúk­andi ráð um hvernig ætti að tækla Jón Gnarr, sem jós út kosn­inga­lof­orðum sem hann til­kynnti jafn­óðum að hann ætl­aði ekki að standa við. Hans verður helst minnst sem borg­ar­stjór­ans sem óx hvað mest í starfi. Í fyrstu kom hann fyrir eins og álfur út úr hól, en honum óx fiskur um hrygg þegar á leið og hann nýtti stöðu sína sem borg­ar­stjóri til að berj­ast fyrir mann­rétt­indum á ýmsum víg­stöðum. Jón virt­ist aldrei almenni­lega ná tökum á starf­inu en það sem er kannski hvað eft­ir­minni­leg­ast við hann er að það virt­ist ekki skipta íbúa höf­uð­borg­ar­innar neinu máli.

Sjáðu topp fimm list­ann í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár