1. sæti: Afmælistónleikar Kaupþings

Á upp­gangs­ár­unum fyrir hrun höfðu íslenskir athafna­menn, og sér­stak­lega banka­menn, upp­götvað að þeir væru merki­legri og klár­ari en allir aðrir í heim­inum. Þeir höfðu auð­vitað rangt fyrir sér, eins og stærsta efna­hags­hrun miðað við höfða­tölu vottar. Á þessum árum tókst þeim hins vegar að hlaða í nokkra gjörn­inga sem á þeim tíma hafa ugg­laust þótt nýmóð­ins og til merkis um hvað íslenska elítan væri miklir heims­borg­arar. Þegar þeir eru skoð­aðir í bak­sýn­is­spegl­inum eru þessar yfir­gengi­legu góð­ær­is­at­hafnir þó í besta falli hlægi­legar. Og pínu­lítið sorg­legar.


1. Afmælistónleikar Kaupþings


Sumarið 2007 fagn­aði Kaupþing 25 ára afmæli. Af því til­efni hélt bank­inn tón­leika á Laug­ar­dals­velli þar sem allir helstu tón­list­ar­menn þjóð­ar­innar tróðu upp auk stráka­hljóm­sveit­ar­innar Luxor og ann­arra góð­ær­is­skemmti­at­riða á vegum Einars Bárð­ar­sonar. Veislu­stjóri og kynnir var Páll Óskar, sem kom iðu­lega fram milli atriða til að segja fólki að ein­hvers konar aðsókn­ar­met hefði verið slegið. Tón­leika­hald­ar­arnir héldu því nefni­lega fram að 50 þús­und manns hefðu mætt, sem er rúm­lega þrefalt magn þeirra áhorf­enda sem völl­ur­inn tekur í stúku og stæði. Talan var enda dæma­laust rugl. Í besta falli voru gestir tæp­lega 20 þús­und. RÚV var síðan með allt í beinni útsend­ingu og her­leg­heitin kost­uðu marga tugi millj­óna hið minnsta. Um eina umfangs­mestu ímynd­ar­aug­lýs­ingu allra tíma var að ræða.
Bubbi Morthens stal ann­ars sen­unni þegar hann sagði á milli laga að ef gjald­keri í Kaup­þingi gæfi pen­ing yrði hann rek­inn, en ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni gætu gefið hund­ruð millj­óna króna án þess. Bubbi hvatti síðan til þess að ráð­herr­arnir yrðu reknir. Stuðmenn klár­uðu síðan þetta súra kvöld með rauða háls­klúta líkt og litlir gos-skátar. Firr­ingin náði hámarki þegar Bo Halldórs tók lagið með þeim í skota­pilsi.

Lestu topp fimm list­ann í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár