2. sæti: Gullát í boði Landsbankans

Á upp­gangs­ár­unum fyrir hrun höfðu íslenskir athafna­menn, og sér­stak­lega banka­menn, upp­götvað að þeir væru merki­legri og klár­ari en allir aðrir í heim­inum. Þeir höfðu auð­vitað rangt fyrir sér, eins og stærsta efna­hags­hrun miðað við höfða­tölu vottar. Á þessum árum tókst þeim hins vegar að hlaða í nokkra gjörn­inga sem á þeim tíma hafa ugg­laust þótt nýmóð­ins og til merkis um hvað íslenska elítan væri miklir heims­borg­arar. Þegar þeir eru skoð­aðir í bak­sýn­is­spegl­inum eru þessar yfigengi­legu góð­ær­is­at­hafnir þó í besta falli hlægi­legar. Og pínu­lítið sorg­legar.


2. Gullát í boði Landsbankans


Í sept­em­ber 2007 var mikið að gera hjá Lands­bank­anum. Hann byrj­aði á því að fljúga öllum helstu stjórn­endum og við­skipta­vinum bank­ans til Hong Kong til að vera við­staddir opnun úti­bús bank­ans þar í landi, en hún átti að vera upp­hafið að Asíu­út­rás bank­ans. Allir gestir gistu á lúx­us­hót­elum, flogið var með hund­rað kílóa ísklump úr Vatna­jökli og boðið upp á heil­steiktan grís, sem Sigurjón Þ. Árnason banka­stjóri skar eft­ir­minni­lega.
Í sama mán­uði hélt Lands­bank­inn annað partí í Mílanó. Um 300 manns var boðið og voru leigðar tvær far­þega­þotur undir hers­ing­una, sem gisti á einu flottasta hót­eli borg­ar­innar, Principe di Davoia. Auk þess mættu ýmsir aðrir gestir í um 20 einka­þotum. Á meðal þeirra sem voru í partí­inu voru helstu stjórn­endur Lands­bank­ans, Hannes Smárason, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, Pálmi Har­alds­son, Magnús Ármann og að sjálf­sögðu Björgólfur Thor Björg­ólfs­son. Partíið var í 15. aldar hall­ar­garði og á meðal þess sem gestum var boðið upp á var risotto með gull­flögum. Þeir átu gull.

Innan við tveimur árum síðar var Baugur orð­inn gjald­þrota í einu stærsta þroti Íslands­sög­unnar.

Lestu topp fimm list­ann í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár