3. Tilraunir til að bjarga ísbjörnum

Á upp­gangs­ár­unum fyrir hrun höfðu íslenskir athafna­menn, og sér­stak­lega banka­menn, upp­götvað að þeir væru merki­legri og klár­ari en allir aðrir í heim­inum. Þeir höfðu auð­vitað rangt fyrir sér, eins og stærsta efna­hags­hrun miðað við höfða­tölu vottar. Á þessum árum tókst þeim hins vegar að hlaða í nokkra gjörn­inga sem á þeim tíma hafa ugg­laust þótt nýmóð­ins og til merkis um hvað íslenska elítan væri miklir heims­borg­arar. Þegar þeir eru skoð­aðir í bak­sýn­is­spegl­inum eru þessar yfigengi­legu góð­ær­is­at­hafnir þó í besta falli hlægi­legar. Og pínu­lítið sorg­legar.


3. Tilraunir til að bjarga ísbjörnum


Í byrjun júní 2008 gekk ísbjörn á land í Skaga­firði. Í gang fór mik­ill og stór­skrýt­inn sirkus sem þrýsti á um að bangs­inn yrði deyfður og fluttur í heima­hag­ana. Ísbjörn­inn var felldur sam­dæg­urs og allt varð vit­laust, meðal ann­ars í fjöl­miðlum. Af hverju gat hið ríka Ísland ekki þyrmt dýri í útrým­ing­ar­hættu? Af hverju þurfum við að vera svona frum­stæð? Þegar björn­inn var krufinn kom í ljós að hann var 22 ára, hund­gam­all, og illa hald­inn af sníkju­dýra­smiti sem dró úr hreyfi­getu dýrs­ins.
Það var því mikil PR-gjöf þegar annar ísbjörn mætti á klak­ann tveimur vikum síðar. Nú átti ekki að klikka á neinu. Þórunni Svein­bjarn­ar­dóttur, þáver­andi umhverf­is­ráð­herra, var flogið á stað­inn í lít­illi einka­flug­vél og til stóð að svæfa björn­inn og flytja hann til Græn­lands. Novator, fjár­fest­ing­ar­fé­lag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, bauðst til að borga brús­ann og til­tók í til­kynn­ingu að þetta væri „fram­lag til nátt­úru­verndar“. Dönskum sér­fræð­ingi og deyfipíl­unum hans var flogið til lands­ins, búr útbúið og lagt í að reyna að fanga bangsa. Hann reynd­ist styggur og var á end­anum skot­inn. Þegar hræið var skoðað kom í ljós að hann var særður, glor­solt­inn og háaldr­aður, líkt og sá fyrri.

Lestu topp fimm list­ann í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár