5. sæti: Maraþonútrás

Á upp­gangs­ár­unum fyrir hrun höfðu íslenskir athafna­menn, og sér­stak­lega banka­menn, upp­götvað að þeir væru merki­legri og klár­ari en allir aðrir í heim­inum. Þeir höfðu auð­vitað rangt fyrir sér, eins og stærsta efna­hags­hrun miðað við höfða­tölu vottar. Á þessum árum tókst þeim hins vegar að hlaða í nokkra gjörn­inga sem á þeim tíma hafa ugg­laust þótt nýmóð­ins og til merkis um hvað íslenska elítan væri miklir heims­borg­arar. Þegar þeir eru skoð­aðir í bak­sýn­is­spegl­inum eru þessar yfigengi­legu góð­ær­is­at­hafnir þó í besta falli hlægi­legar. Og pínu­lítið sorg­legar.


5. Maraþonútrás


Bjarni Ármanns­son, fyrrum banka­stjóri Glitnis, er mik­ill hlaup­ari og hefur hlaupið nokkur mara­þon. Á meðan hann stýrði bank­anum var ákveðið að Glitnir yrði aðal­styrkt­ar­að­ili árlegs Reykja­vík­ur­mara­þons. Frá árinu 2006 og fram til dags­ins í dag hefur hlaupið því verið kennt við Glinti og síðar Íslands­banka, sem var byggður á rústum hans.

Í anda fyr­ir­hruns-áranna ákvað Glitnir að fara með mara­þon-sponsið í útrás eins og annað. Bankinn varð aðal­styrkt­ar­að­ili Osló­arm­ara­þons­ins árið 2007, en hann var þá að gera sig nokkuð fyr­ir­ferða­mik­inn í norsku fjár­mála­lífi. Ári seinna var leik­ur­inn end­ur­tek­inn auk þess sem Kaup­manna­hafn­ar­m­ara­þonið bætt­ist í styrkt­ar­að­ilasarp­inn. Glitnir var þá aðal­styrkt­ar­að­ili mara­þons í þremur höf­uð­borgum á Norð­ur­löndum. Rúmum fjórum mán­uðum eftir að það fór fram hrundi bank­inn. Engin útlensk mara­þon hafa verið kennd við íslenska fjár­mála­stofnun síðan þá.

Lestu topp fimm list­ann í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár