FIH bankanum lokað

Danski bank­inn FIH Erhvers­bank, sem var um tíma í eigu Kaup­þings og Seðla­banki Íslands tók sem veð fyrir 500 milljón evra láni til bank­ans, verður lokað. 2/3 hluti af við­skiptum bank­ans, alls um 900 við­skipta­vinir, hafa verið seld til Spar Nord. Þetta kemur fram á vefnum finanswatch.dk. Orðrétt segir í frétt vefs­ins að „FIH er hættur að leika banka“.

Eina starf­semi FIH sem mun halda áfram að vera til er fyr­ir­tækja­ráð­gjöf bank­ans.

FIH skiptir íslenskt efna­hags­líf miklu máli. Seðla­banki Íslands tók alls­herj­ar­veð í FIH þegar hann lán­aði Kaup­þingi 500 millj­ónir evra í miðju efna­hags­hrun­inu. Sigurður Ein­ars­son, þáver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, full­yrti í Kast­ljósi þann 6. októ­ber 2008, sama dag og lánið var veitt, að hann gæti kinn­roða­laust sagt að lánið væri öruggt. „Seðla­bank­inn er öruggur um að fá þessa pen­inga til baka,“ sagði Sigurður enn­fremur. Davíð Oddsson, sem þá var for­maður banka­stjórnar Seðla­bank­ans, sagði í sama þætti að hann hefði engar áhyggjur ef lánið feng­ist ekki end­ur­greitt. Þá myndi „Seðla­bank­inn eign­ast mjög góðan banka í Danmörku, FIH.“ Eftir að Kaupþing féll nokkrum dögum síðar gerð­ist nákvæm­lega þetta. Seðla­bank­inn eign­að­ist FIH óbeint.

Lélegur banki þurfti mikla hjálp


Það kom fljót­lega í ljós að FIH, sem var á þessum tíma sjötti stærsti banki Dan­merkur, var ekki sá happa­fengur sem bæði lán­veit­endur og lán­tak­endur stórs hluta gjald­eyr­is­forða íslensku þjóð­ar­innar vildu meina að hann væri í byrjun októ­ber 2008. Staða bank­ans var mun verri en haldið hafði verið fram.

Þann 30. júní 2009 þurfti danska ríkið að veita FIH víkj­andi lán upp á 1,9 millj­arða danskra króna. Til við­bótar ábyrgð­ist danska ríkið mán­uði síðar skulda­bréfa­út­gáfu FIH upp á 50 millj­arða danskra króna, um eitt þús­und millj­arða íslenskra króna. Aðstoðin var veitt undir for­merkjum svo­kall­aðs „Bankapakka II“ sem danska ríkið hafði sett saman til að bjarga sínu banka­kerfi. Pakkinn sner­ist um að ábyrgj­ast inn­lán og skulda­bréfa­út­gáfu danskra fjár­mála­fyr­ir­ækja sem eftir því ósk­uðu. Danska ríkið var því í reynd búið að bjarga eign íslenska Seðla­bank­ans.

Danska banka­sýslan (Fin­ansiel Stabilittet) og danska fjár­mála­eft­ir­litið (Fin­an­stil­sy­net) fylgd­ust náið með því hvernig FIH bragg­að­ist og þrýstu mikið á að leyst yrði úr eig­enda­málum bank­ans til að hann gæti fjár­magnað sig á mark­aði.

Tilkynning um hagnað reyndist afar villandi


Í sept­em­ber 2010 var sagt frá því að FIH hefði verið seldur. Í til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands var sagt að kaup­verðið á FIH væri 103 millj­arðar króna, eða 670 millj­ónir evra. Því virt­ist sem Seðla­bank­inn hefði hagn­ast veru­lega á þess­ari „fjár­fest­ingu“. Það átti eftir að reyn­ast blekk­ing.

Nýir eig­endur stað­greiddu nefni­lega ein­ungis um helm­ing þeirra upp­hæðar sem Kaupþing hafði fengið lán­aða, 39 millj­arða króna eða um 255 millj­ónir evra. Afgang­ur­inn var selj­enda­lán sem Seðla­bank­inn veitti nýjum eig­endum og átti að end­ur­greið­ast að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum fram til loka árs­ins 2014.

Selj­enda­lánið bar enga vexti. Auk þess var sam­þykkt að afskriftir allra eigna sem voru á efna­hags­reikn­ingi FIH þegar hann var seldur myndu drag­ast frá lán­inu. Á hinn bóg­inn myndi virði þess aukast ef helm­ings­hlutur sem FIH á óbeint í skart­gripa­fram­leið­and­anum Pandoru myndi hækka. Að lokum var sett inn ákvæði um að end­ur­heimt Seðla­bank­ans yrði meiri ef kaup­enda­hóp­ur­inn næði fjár­fest­ingu sinni til baka fyrir árs­lok 2015.

Peningabaukur áhættufjárfesta


Síðan kaup­samn­ing­ur­inn var gerður hefur FIH afskrifað upp­hæð sem sam­svarar upp­hæð selj­enda­láns­ins. Í ljós kom að útlán bank­ans voru fjarri því að vera jafn trygg og af var látið. Það átti sér­sta­lega við um lán til félaga í fast­eigna­rekstri og bygg­inga­iðn­aði. Berl­ingske Tidende greindi til dæmis frá því árið 2011 að FIH hefði verið pen­inga­baukur fyrir áhættu­fjár­festa í þessum geirum, sem gengu undir nafn­inu Millj­arða­mær­inga­klúbb­ur­inn, á meðan bank­inn var í eigu Kaup­þings. Flestallir með­limir þess klúbbs eru gjald­þrota í dag og greiddu ekki lán sín til baka.

Og nú hefur FIH hætt banka­starf­semi.

Lánuðu út neyðarlánið


Lánið sem Kaupþing fékk frá Seðla­bank­anum þegar FIH var lagður að veði var notað á ýmsa vegu. Í ákæru­skjali emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara í máli hans gegn Hreiðari Má Sig­urðs­syni, Sigurði Ein­ars­syni og Magnúsi Guð­munds­syni vegna umboðs­svika, sem birt var í byrjun maí, kemur fram að þær lán­veit­ingar emb­ætti telur ólög­legar meðal ann­ars átt sér stað eftir veit­ingu Seðla­bank­ans á 500 milljón evra lán­inu. Lestu allt um ákæruna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár