Hinir útvöldu

Útdeil­ing fjár­muna á grund­velli skulda­nið­ur­fell­ing­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar er að hefj­ast, eftir að aðgengi að umsókn­ar­kerf­inu var opnað í gær. Í gegnum kerfið mun sá hluti Íslend­inga sem var með verð­tryggt hús­næð­is­lán á ákveðnum tíma­bili sækja sér allt að 80 millj­örðum króna. Sá hluti Íslend­inga sem er með sér­eign­ar­sparnað mun geta notað nokkra tugi millj­arða króna hans til að greiða niður hús­næð­is­lánin sín næstu árin hið minnsta. Til stendur jafn­vel að gera þann mögu­leika var­an­legan.

En ekki hagn­ast bara sumir íbúða­eig­endur á skulda­nið­ur­fell­ing­ar­ferða­lagi rík­is­stjórn­ar­innar. Í kringum þessa miklu aðgerð er gríð­ar­legt umstang og alls kyns sér­fræði­vinna sem þarf að sinna. Nánast und­an­tekn­ing­ar­laust hefur sú vinna ekki verið boðin út.

Ríkisskattstjóri kaupir þjónustu


Í skulda­nið­ur­fell­ing­ar­frum­vörp­unum sem nú bíða sam­þykkis Alþingis kemur fram að áætl­aður heild­ar­kostn­aður emb­ættis rík­is­skatt­stjóra við umsjón og fram­kvæmd þess­arra verk­efna sé 285 millj­ónir króna. Þar af eru 235 millj­ónir króna vegna nið­ur­færslna á verð­tryggðum hús­næð­is­lánum og 50 millj­ónir króna vegna ráð­stöf­unar á sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparn­aði. Ekki feng­ust sund­ur­lið­aðar upp­lýs­ingar frá emb­ætt­inu um hvernig kostn­að­ur­inn skipt­ist niður á verkselj­endur.

Þó liggur fyrir að Rík­is­skatt­stjóri kaupir tölu­vert af þjón­ustu af Reikni­stofu bank­anna vegna skulda­nið­ur­fell­ing­anna, en eig­endur hennar eru helstu fjár­mála­fyr­ir­tæki lands­ins. Auk þess var gerður ramma­samn­ingur við Advania, sem sér um gerð þess vefs sem hægt verður að sækja um skulda­nið­ur­fell­ing­una á og gagna­grunna. Rík­is­skatt­stjóri gerði líka samn­ing við Libra, íslenskt fyr­ir­tæki sem smíðar hug­búnað fyrir íslenskan fjár­mála­markað. Með virð­is­auka­skatti er samn­ing­ur­inn við Libra um 14 millj­ónir króna og innan útboðs­skyldu. Því bar rík­is­skatt­stjóra ekki að bjóða verk­efnið út heldur gat valið sér þann sam­starfs­að­ila sem hann vildi not­ast við.


Tvíhliðasamningar við fjármálastofnanir


Til við­bótar við þann kostnað sem fellur á hið opin­bera fellur tölu­verður kostn­aður á þá aðila sem veita verð­tryggð lán. Það eru bankar, Íbúða­lána­sjóður og líf­eyr­is­sjóðir. Sá kostn­aður er mest vegna aðkeyptrar þjón­ustu og vegna þeirrar vinnu sem tölvu­deild hvers banka fyrir sig þarf að leggja út í. Á meðal þeirra sem selja þessum aðilum þjón­ustu er áður­nefnt Libra. Þar sem um tví­hliða samn­inga á milli einka­að­ila er að ræða fæst ekki upp­gefið hjá fjár­mála­ráðu­neyt­inu hvert umfang þeirra er en heim­ildir Kjarnans herma að virði samn­inga Libra í heild vegna skulda­nið­ur­fell­ing­anna sé á bil­inu 50 til 60 millj­ónir króna.

Mörg hundruð milljóna kostnaður bankanna


Kjarninn beindi fyr­ir­spurn um ætl­aðan kostnað vegna skulda­nið­ur­fell­inga til stóru bank­anna þriggja: Arion banka, Íslands­banka og Lands­banka. Í svari Arion banka er sér­stak­lega til­tekið að erfitt sé á þessum tíma­punkti að meta þann kostnað sem þessu muni fylgja, enda enn margt óljóst um fram­kvæmd­ina. „Kostn­að­ar­á­ætl­anir okkar, miðað við þær upp­lýs­ingar sem við höfum í dag og þær for­sendur sem við gefum okkur, gera ráð fyrir að kostn­að­ur­inn fyrir bank­ann geti verið á bil­inu 180 til 230 millj­ónir króna,“ segir enn fremur í svar­inu.
Íslands­banki sagði að kostn­aður bank­ans lægi ekki fyrir eins og er og hann yrði ekki ljós fyrr en end­an­leg útfærsla aðgerð­ar­innar lægi fyrir og búið væri að ganga frá samn­ingum við ríkið. „Þá er ekki enn ljóst hversu mikið af lánum bank­ans falla undir aðgerð­irnar.“

Lands­bank­inn lét leggja mat á þann við­bót­ar­kostnað sem hann áætlar að verða fyrir vegna skulda­nið­ur­fell­ing­anna. Með við­bót­ar­kostn­aði er átt við breyti­legan kostnað. Fastur kostn­aður er und­an­skilin í áætl­un­inni. „Beinn kostn­aður Lands­bank­ans við þessa aðgerð er á bil­inu 70-100 millj­ónir króna, það veltur á útfærslu ákveð­inna þátta hver enda­leg tala verður. Þá er ekki með­tal­inn beinn og/eða óbeinn kostn­aður, t.d. vegna tap­aðra vaxta­tekna af fyr­ir­fram­greiddum lánum eða þeir skattar sem lagðir hafa verið á fjár­mála­fyr­ir­tækja til að mæta kostn­aði við leið­rétt­ing­una,“ segir í svari Lands­bank­ans.

Af svörum bank­anna má ljóst vera að heild­ar­kostn­aður þeirra allra hleypur á mörg hund­ruð millj­ónum króna.


Analytica valið til verka


En ekki hefur ein­vörð­ungu skap­ast kostn­aður vegna tækni­legs hluta útfærsl­unnar. Sér­fræð­inga­hópur for­sæt­is­ráð­herra um lækkun höf­uð­stóls verð­tryggðra hús­næð­is­lána, undir for­ystu Sigurðar Hann­es­sonar, kynnti nið­ur­stöður sínar um aðgerðir í skulda­málum heim­ila 30. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Í skýrslu hóps­ins var meðal ann­ars frá­viks­spá frá vetr­ar­spá Hag­stof­unnar sem unnin var af Analytica að beiðni sér­fræð­inga­hóps for­sæt­is­ráð­herra. Samkvæmt upp­lýs­ingum úr for­sæt­is­ráðu­neyt­inu hafði sér­fræð­inga­nefndin sam­band við nokkur grein­ing­ar­fyr­ir­tæki og „gaf þeim kost á að bjóða í verk­efnið“. Í svar­inu kemur ekki fram hvaða fyr­ir­tæki er um að ræða.

Analytica var á end­anum ráðið til verks­ins og fékk 6,9 millj­ónir króna fyrir. Spá Analytica var á þá leið, miðað við gefnar for­sendur, að hag­ræn áhrif skulda­nið­ur­fell­ing­anna yrðu jákvæð. Flestallir aðrir grein­ing­ar­að­ilar sem lagst hafa yfir til­lög­urnar síðan, meðal ann­ars Seðla­banki Íslands, hafa kom­ist að öfugri nið­ur­stöðu. Þó verður að taka fram að þeir hafa ekki unnið sínar grein­ingar miðað við sömu for­sendur og lagðar voru fyrir Analytica.

Unnu líka að úttekt á húsnæðismálum


Þetta er ekki eina verk­efnið sem Analytica hefur unnið fyrir rík­is­stjórn­ina á und­an­förnum mán­uðum. Fyr­ir­tækið vann líka úttekt á áhrifum afnáms verð­trygg­ingar fyrir sér­fræð­inga­nefnd um afnám verð­trygg­ingar á nýjum neyt­enda­lánum sem starf­aði á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Sú vinna kost­aði tvær millj­ónir króna.

Analytica var líka, ásamt KPMG, fengið til að fram­kvæma sviðs­mynda­grein­ingar fyrir verk­efn­is­stjórn um fram­tíðar­skipan hús­næð­is­mála, sem skil­aði umfangs­mik­illi skýrslu í byrjun maí. Í skýrsl­unni segir að verk­efn­is­stjórnin hafi „leitað eftir til­boðum þar til gerðra aðila til sviðs­mynda­grein­ingar. Þegar tíma­fresti lauk, þann 23. októ­ber 2013, hafði verk­efnis­stjórn borist til­boð fimm aðila. Var það ákvörðun verk­efnis­stjórnar að ganga til samn­inga við Analytica og KPMG á grund­velli til­boða þeirra“.

Kjarninn leit­aði eftir upp­lýs­ingum hjá Vel­ferðar­ráðu­neyt­inu um hversu mikið þessir aðilar hefðu fengið greitt fyrir vinnu sína. Í svar­inu kemur fram að heild­ar­kostn­aður vegna aðkeyptrar þjón­ustu vegna úttekt­ar­innar sé 37,4 millj­ónir króna. Þar af fékk KPMG 22,3 millj­ónir króna, Analytica 13,7 millj­ónir króna og tveir minni aðilar það sem upp á vantar.

Frétta­skýr­ingin birt­ist í nýjasta Kjarn­anum. Lestu hann hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár