Hreiðar Már, Sigurður og Magnús ákærðir á ný

Embætti sér­staks sak­sókn­ara hefur ákært Hreiðar Má Sig­urðs­son, Sigurð Ein­ars­son og Magnús Guð­munds­son, fyrrum stjórn­endur Kaup­þings, vegna kaupa á skulda­bréfu tengdum skulda­trygg­ing­ar­á­lagi Kaup­þings og lán­veit­inga vegna þeirra kaupa. Grunur leikur á umboðs­svik og hlut­deild í slíku broti. Ákær­urnar voru birtar mönn­unum þremur í vik­unni og málið verður þing­fest 11. júní næst­kom­andi. Þetta er þriðja ákæran sem emb­ættið birtir mönn­unum þremur. Þeir hafa þegar hlotið dóm í svoköll­uðu Al-Thani máli.

Í aðdrag­anda falls Kaup­þings veitti bank­inn lán til nokk­urra við­skipta­manna sinna vegna fjár­fest­inga í afleiðu­samn­ingum, skulda­bréfum, tengdum skulda­trygg­ing­ar­á­lagi Kaup­þings. Tjón Kaup­þings vegna lán­anna er að minnsta kosti 510 millj­ónir evra, sam­kvæmt gæslu­varð­halds­úr­skurði yfir Magnúsi Guð­munds­syni frá árinu 2010, en málið hefur verið til rann­sóknar árum saman.

Gerum þetta, „ekki spurning“


Í byrjun febr­úar 2008 fékk Kaupþing þýska stór­bank­ann Deutsche Bank sér til ráð­gjafar um hvernig bank­inn gæti haft áhrif á síhækk­andi skulda­trygg­ing­ar­á­lag á sig. Sumarið eftir sendi starfs­maður Deutsche Bank hug­mynd um við­skipti með láns­hæf­istengd skulda­bréf sem hann taldi að gætu hjálpað til við þetta. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis segir að „í tölvu­bréfum sem gengu á milli Sigurðar Ein­ars­sonar og Hreiðars Más Sig­urðs­sonar í fram­hald­inu komu þeir sér saman um að ekki þurfti að fá líf­eyr­is­sjóði með í planið en að þetta skuli þeir gera „ekki spurn­ing“.

Alls var skulda­trygg­ingin sem um ræðir 750 millj­ónir evra, sem á þeim tíma var á bil­inu 80-90 millj­arðar króna, en væri í dag um 117 millj­arðar króna. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis segir:„Í upp­hafi var ætl­unin að þrjú félög tækju þátt í þessu en þau voru í eigu sex ein­stak­linga sem voru í miklum við­skiptum við Kaupþing. Þessi þrjú félög áttu að kaupa láns­hæf­istengd skulda­bréf að nafn­virði 125 millj­ónir evra hvert, með trygg­ingu upp á 250 millj­ónir hvert. Svo virð­ist þó sem við­skiptin hafi ekki átt sér stað við eitt félagið þegar á hólm­inn var komið. Eigendur tveggja félaga fengu 130 millj­ónir evra að láni frá Kaup­þingi í Lúx­em­borg. 125 millj­ónir evra voru eig­in­fjár­fram­lag til félag­anna en 5 millj­ónir evra gengu til greiðslu þókn­unar til Deutsche Bank. Þar sem samn­ing­ur­inn var 250 millj­óna evra virði þá fengu félögin 125 millj­ónir evra að láni frá Deutsche Bank og var lánið með ákvæði um gjald­fell­ingu ef skulda­trygg­ing­ar­á­lag færi upp fyrir ákveðin mörk.“

Vildarviðskiptavinir gátu grætt, en aldrei tapað


Frá 29. ágúst til 8. októ­ber 2008 lán­aði Kaupþing alls 510 millj­ónir evra, sem í dag eru tæp­lega 80 millj­arðar króna, í þessi skulda­trygg­inga­við­skipti. Ekkert eigið fé var lagt í við­skiptin heldur voru þau að fullu fjár­mögnuð af Kaup­þingi. Félögin sem fengu lánin hétu Trenvis Limited, Holly Beach S.A.,Charbon Capital LTd. og Harlow Equities S.A. Þau félög lán­uðu 250 millj­ónir evra til félag­anna Chesterfield United Inc. og Partridge Mana­gement Group til að þau gætu keypt skulda­bréf tengd skulda­trygg­ing­ar­á­lagi Kaup­þings. Auk þess lán­aði Kaupþing 250 millj­ónir evra til Chesterfield og Partridge til að mæta veð­köllum frá Deutsche Bank vegna kaupanna. Öll umrædd félög voru eign­ar­laus og eig­endur þeirra voru vild­ar­við­skipta­vinir Kaup­þings, sem hefðu grætt ef við­skiptin hefðu skilað arði en gátu aldrei tapað krónu. Þeir voru Skúli Þor­valds­son, Ólafur Ólafsson, Kevin Stanford og Karen Millen og Antonious Yerolemou. Auk þess stóð til að hinn nú þekkti Sjeik Al-Thani myndi líka taka þátt í sams­konar við­skiptum. Ekkert varð af þeim við­skiptum annað en að félagið Brooks, í eigu Al-Thani, fékk 50 millj­ónir dala lán­aðar.

Hreiðar Már Sig­urðs­son sagði við skýrslu­töku hjá rann­sókn­ar­nefnd Alþingis „að það hefði ekki verið neitt nema hagn­að­ar­von hjá við­skipta­vinum bank­ans sem seldu þessar skulda­trygg­ingar, það er ef bank­inn færi í greiðslu­þrot þá væri hagn­aður núll en ef hann væri enn í rekstri í októ­ber 2013 þá myndu þessir við­skipta­vinir hagn­ast. Því til við­bótar sagði Hreiðar: "Ja, þetta var, við töldum að þetta væri þess virði að gera þetta, eins og ég segi, við töldum að við værum að nota fjár­muni bank­ans á ágæt­legan hátt, fá ágætis tekjur af þeim fjár­munum.Við töldum að það væri mik­il­vægt að athuga hvort þessi mark­aður væri raun­veru­legur eða ekki og við töldum að þetta væri gott fyrir þessa við­skipta­vini, sem voru stórir við­skipta­vinir og borg­uðu okkur fullar þókn­anir og skuld­uðu okkur nátt­úru­lega pen­inga, svo það að staða þeirra mundi batna væri gott fyrir bank­ann."

Síðustu lánin veitt eftir gildistöku neyðarlaga og veiting neyðarláns


Í áður­nefndum gæslu­varð­halds­úr­skurði yfir Magnúsi Guð­munds­syni kemur fram að sér­stakur sak­sókn­ari telji „að umræddar lán­veit­ingar hafi falið í sér mjög mikla fjár­tjóns­hættu fyrir Kaupþing banka hf. Gríð­ar­lega háar fjár­hæðir hafi verið lán­aðar eign­ar­lausum félögum til afar áhættu­samra við­skipta og hags­munum hlut­hafa og kröfu­hafa með því stefnt í stór­fellda hættu. Síðustu lán­veit­ing­arnar hafi átt sér stað eftir gild­is­töku neyð­ar­lag­anna og veit­ingu Seðla­banka Íslands á 500.000.000 EUR neyð­ar­láni til Kaup­þings banka hf.“

Við rann­sókn máls­ins hafi komið fram upp­lýs­ingar um að æðstu stjórn­endur Kaup­þings, þeir Sigurður Ein­ars­son, starf­andi stjórn­ar­for­maður, Hreiðar Már Sig­urðs­son, for­stjóri, og Magnús Guð­munds­son, for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, hefðu tekið ákvarð­anir um umræddar lán­veit­ingar og við­skipti. Þeir hafa nú verið ákærðir vegna þeirra. Þetta er þriðja ákæran sem mönn­unum þremur er birt vegna verka þeirra fyrir Kaupþing fyrir hrun. Auk þess eru fleiri mál á hendur þeim enn í rann­sókn.

Í des­em­ber síð­ast­liðnum var Hreiðar Már dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi í Al-Thani mál­inu svo­kall­aða. Sigurður hlaut fimm ára dóm í sama máli og Magnús þriggja ára dóm. Dómnum var áfrýjað til Hæsta­réttar. Auk þess eru menn­irnir þrír allir á meðal þeirra lyk­il­starfs­manna Kaup­þings sem hafa verið ákærðir fyrir umfangs­mikla mark­aðs­mis­notkun á tíma­bil­inu 1. nóv­em­ber 2007 til 8. októ­ber 2008.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár