Nýsköpun: Mistök það besta af öllu

Kjarninn miðlar ehf., Keldan og Arion banki hafa tekið höndum saman og ætla að fjalla um marg­vís­legar hliðar frum­kvöðla- og nýsköp­un­ar­starfs í tengslum við Start Up Reykja­vík við­skipta­hrað­al­inn (e. business accelerator), sem Arion banki hefur staðið síðan árið 2012 í sam­starfi við Klak Innovit.

Kjarninn hefur unnið mynd­bönd um margar hliðar Start Up Reykja­vík, íslenska frum­kvöðla og marg­vís­legt nýsköp­un­ar­starf fyr­ir­tækja hér á landi. Mynd­böndin verða sýnd sam­hliða útgáfu Kjarnans á fimmtu­dögum næsta hálfa árið. Í mynd­bönd­unum eru til umfjöll­unar öll helstu við­fangs­efni frum­kvöðla­starfs­ins, ósigrar og sigrar, erf­ið­leikar og tæki­færi, fífldirfska og hug­rekki.

[video width="640" height="360" mp4="http://kjarninn.s3.amazonaws.com/old/2014/04/plainvanilla.mp4"][/video]

Í fyrsta mynd­band­inu er hús tekið á leikja­fyr­ir­tæk­inu Plain Vanilla sem hefur vaxið gríð­ar­lega hratt eftir að það sendi frá sér spurn­inga­leik­inn Quiz Up sem nú er með meira en sextán millj­ónir not­enda um allan heim og er að umbreyt­ast í sam­fé­lags­miðil. Erlendir fjár­festar hafa lagt fyr­ir­tæk­inu til meira en fjóra millj­arða króna frá því að Quiz Up App-ið var gefið út í nóv­em­ber í fyrra. Á hálfu ári hefur starfs­mönnum fjölgað jafnt og þétt og eru þeir ríf­lega 50 tals­ins. Fyr­ir­tækið flutti nýlega í nýjar þús­und fer­metra höf­uð­stöðvar að Lauga­vegi 77. Þor­steinn Frið­riks­son er for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins og stofn­andi þess. Hann segir það hafa verið dýr­mæta reynslu að hafa gert mis­tök í upp­hafi og fram­leitt vöru sem mark­aðir tóku ekki nægi­lega vel. Þá segir hann Ísland vera að mörgu leyti frá­bæran stað til að stofna fyr­ir­tæki. Hér sé mik­ill mannauður og vel menntað ungt fólk sem búi yfir miklum hæfi­leikum.

Einar Gunnar Guð­munds­son, for­svars­maður nýsköp­un­ar­mála hjá Arion banka, segir að frum­kvöðlar fái dýr­mæta reynslu í gegnum Startup Reykja­vík. „Við leit­umst stöðugt við að skjóta fleiri stoðum undir verð­mæta­sköpun hér á landi og stuðla að sam­vinnu í þeim efnum. Við hjá Arion banka stöndum að Startup Reykja­vík og Startup Engergy Reykja­vík verk­efn­unum í sam­starfi við Innovit og Klak og fleiri aðila. Eitt það mik­il­væg­asta við Startup Reykja­vík verk­efnin er að þar fá frum­kvöðlar ekki bara aðgengi að fjár­magni og vinnu­að­stöðu heldur einnig aðgang að dýr­mætri reynslu ann­arra frum­kvöðla. Þar leiðum við saman reynslu­mikla ein­stak­linga sem hafa náð árangri í sínum verk­efnum og þá sem eru að stíga fyrstu skrefin. Samstarf okkar við Kjarnann og Kelduna er liður í þess­ari þekk­ing­ar­miðlun. Við viljum miðla sögu þeirra sem hafa náð góðum árangri, miðla þeirra þekk­ingu og reynslu þannig að aðrir geti nýtt sér til góðra verka.“

Thor Thors, fram­kvæmda­stjóri Keld­unnar, segir ánægju­legt að efla Kelduna með umfjöll­unum um nýsköpun af ýmsu tagi og á ýmsum stigum. „Það er okkur ánægju­legt að bæta við mynd­böndum á Kelduna. Mynd­böndin, sem munu birt­ast í Kjarn­anum og á Keldunni, munu sýna fólki hvað það er sem frum­kvöðlar og rekstr­ar­að­ilar eru að glíma við. Sem er í senn skemmti­legt og krefj­andi. Það eru fjöl­margar áhuga­verðar sögur úr íslensku sprota- og atvinnu­lífi. Vonandi náum við að koma mörgum þeirra á fram­færi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár