Samfylkingin með fimm menn inni í borgarstjórn

Sam­fylk­ingin bætir við sig einum manni frá síð­ustu kosn­inga­spá og getur nú myndað sterkan níu manna meiri­hluta með Bjartri fram­tíð ef flokk­arnir kjósa að halda núver­andi meiri­hluta­sam­starfi áfram. Píratar missa annan þeirra manna sem þeir hafa mælst með inni. Þetta er nið­ur­staða nýj­ustu kosn­inga­spár Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar, dokt­ors í stærð­fræði. Spáin sam­einar nið­ur­stöður fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­ana og byggir á áreið­an­leika könn­un­ar­að­ila í síð­ustu þremur borg­ar­stjórnar- og alþing­is­kosn­ing­unum.

Fylgi framboða til borgarstjórnar í Reykjavík


Samkvæmt nýj­ustu kosn­iga­spá, gerðri 14. apríl 2014

[visualizer id="4609"]

Sam­fylk­ingin bætir við sig um 1,6 pró­senta fylgi á milli spáa en Björt fram­tíð stendur nán­ast í stað með 25 pró­senta fylgi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir einnig við sig heilu pró­sentu­stigi en er samt sem áður þriðji stærsti flokkur borg­ar­innar og langt frá kjör­fylgi sínu í síð­ustu kosn­ingum. Þótt Píratar missi mann minnkar fylgi þeirra ein­ungis um 0,5 pró­sent. Sá flokkur sem tapar lang­mestu er Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð. Fylgi hennar dregst saman um 1,7 pró­sent á milli spáa. Næsti maður inn sam­kvæmt spánni kemur frá Bjartri fram­tíð.


Röðun fulltrúa samkvæmt nýjustu spá


[visualizer id="4611"]

Þróun á fylgi flokka og fjölda borgarfulltrúa á flokk í Reykjavík


Kosn­inga­spá keyrð á tíma­bil­inu 26. febr­úar til 14. apríl 2014

[visualizer id="4616"]

Sjá nánar á www.kosningaspa.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár