Markaðsmisnotkun, innherjabrot og umboðssvik

Fjórir stærstu spari­sjóðir lands­ins: SPRON, Byr og Spari­sjóð­irnir í Keflavík og Mýra­sýslu, hög­uðu sér að mörgu leyti meira eins og fjár­fest­ing­ar­fé­lög en spari­sjóðir. Þau voru undir hælnum á stærri bönkum eða ákveðnum við­skipta­manna­hópum og fjár­mögn­uðu oft á tíðum gjörn­inga sem stóru bank­arnir ann­að­hvort vildu ekki eða gátu ekki, sökum hámarks­út­lána til ákveð­inna aðila, fjár­magnað.

Kjarna­starf­semi þeirra var ónýt, vaxta­munur lít­ill eða eng­inn og sumum þeirra tókst meira að segja ekki að hagn­ast á því að lána út verð­tryggð íbúða­lán. Lán voru veitt án nægj­an­legra trygg­inga og lánað var til stofn­fjár­kaupa með veði í bréf­unum sjálfum, sem er and­stætt lögum.
Í stað þess að þjón­ustu­tekjur og vaxta­munur inn- og útlána ein­kenndi rekstur sjóð­anna fyrir banka­hrun var uppi­staðan í vexti og hagn­aði þeirra nán­ast ein­vörð­ungu útlán sem orka í besta falli tví­mælis og gríð­ar­lega áhættu­samar fjár­fest­ingar í verð­bréfum. Auk þess tóku þeir oft á tíðum þátt í fjár­fest­ing­ar­starf­semi sem skil­aði miklu tapi. SPRON átti til að mynda í félögum sem fjár­festu í fast­eignum í Berlín og stóðu að útrás Remax og sölu á kvenn­mannsnær­fatn­aði í öðrum Evr­ópu­löndum.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu rann­sóknar­nefndar um starf­semi spari­sjóð­anna sem birt var í síð­ustu viku.

Tug­millj­arða kostn­aður lendir á skatt­greið­endum
Þær póli­tísku hug­myndir sem voru uppi um end­ur­reisn spari­sjóða­kerf­is­ins með ein­hverja af þessum sjóðum sem nýtt hryggjar­stykki, sér­stak­lega Spari­sjóð­inn í Keflavík eða Byr, voru því eftir á að hyggja and­vana fæddar. Í þær hefði aldrei átt að ráð­ast.

Ástand þess­ara sjóða vegna slæ­legs rekst­urs, mik­illar áhættu­sækni, und­ir­lægju­semi við ákveðnar fjár­mála- og við­skipta­blokkir og van­þekk­ingar eða -getu starfs­manna sem fóru með mikil fjár­ráð, og dregið er fram í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar, sýna að raun­hæfi slíkra hug­mynda var ekk­ert. Nið­ur­staðan er að heild­ar­kostn­aður sem þegar hefur fallið á hið opin­bera, skatt­greið­endur, vegna erf­ið­leika og falls spari­sjóð­anna, er nú þegar rúmir 33 millj­arðar króna. Uppi­staðan í því tapi er kostn­aður vegna Spari­sjóðs­ins í Keflavík, rúmir 19 millj­arðar króna án til­lits til vaxta.

Auk þess ríkir enn óvissa um hvort og hvað muni falla til vegna upp­gjörs við slita­stjórn Spari­sjóða­bank­ans. Seðla­banki Íslands lýsti 215 millj­arða króna kröfu í þrotabú bank­ans en lít­ill hluti krafn­anna hefur verið sam­þykktur. Þessar kröfur eru vegna hinna svoköll­uðu end­ur­hverfu við­skipta þar sem Spari­sjóða­bank­inn var milli­liður. Hann fékk lán hjá Seðla­banka Íslands og end­ur­lán­aði þau svo til við­skipta­banka og spari­sjóða. Viðbúið er því að tugir millj­arða króna til við­bótar tap­ist vegna þess­arra lána.

Bein­tengdir við við­skipta- og banka­blokkir
Þrír sjóð­anna: SPRON, Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík og Spari­sjóður Mýra­sýslu, bein­tengdu hags­muni sína við Kaupþing í gegnum beint og óbeint eign­ar­hald á hluta­bréfum í Existu, stærsta eig­anda bank­ans. Þegar Kaupþing og Exista féllu var ljóst að sjóð­irnir þrír væru komnir í vanda sem þeir gætu ekki yfir­stigið. Byr batt sig við hóp sem tengd­ist stærstu eig­endum Glitnis, Baugi og fylgi­hnöttum, og lán­aði honum risa­vaxnar fjár­hæðir. Engar við­skipta­legar for­sendur geta talist fyrir sumum þeirra lán­veit­inga og eru þær til rann­sóknar hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara.

Alls til­kynnti rann­sókn­ar­nefnd um spari­sjóð­ina 21 mál til rík­is­sak­sókn­ara. Hann á síðan að vísa þeim áfram til þar til bærra emb­ætta. Þau eru sér­stakur sak­sókn­ari og eftir atvikum Fjár­mála­eft­ir­litið. Auk þess rann­sakar emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara nú þegar um tíu mál sem tengj­ast þeim. Hluti þeirra mála snýr að Spari­sjóðnum í Keflavík og er meðal ann­ars byggður á leyni­skýrslu end­ur­skoð­unar­fyr­ir­tæk­is­ins PwC um sjóð­inn sem skilað var í apríl 2011 og Kjarninn birti í heild sinni í fyrstu útgáfu sinni, 22. ágúst 2013. Hana má nálg­ast hér.

Heim­ildir Kjarnans herma að nán­ast öll þessi mál teng­ist stærstu fjórum sjóð­unum. Þau mál sem vísað var til rík­is­sak­sókn­ara eru margs konar. Þau snú­ast meðal ann­ars um meinta mark­aðs­mis­notkun og inn­herja- og umboðs­svik.

Hluti mál­anna fyrndur
Hluti mál­anna fellur hins vegar undir sér­refsi­lög, ekki hegn­ingar­lög. Ef refsirammi þeirra er undir tveggja ára fang­elsi geta slík mál fyrnst á fimm árum. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans á það við um hluta þeirra mála sem rann­sókn­ar­nefndin vís­aði til rík­is­sak­sókn­ara að þau eru fyrnd. Rannsókn máls­ins gæti hins vegar leitt til þess að við­eig­andi emb­ætti færðu sum brot­anna undir hegn­ing­ar­lög sem eru ekki þar núna.

Eitt vanda­mál blasir hins vegar við. Fjár­mála­eft­ir­litið hætti hrun­rann­sóknum í byrjun árs 2013. Þótt innan emb­ætt­is­ins sé enn starf­andi sér­stakur rann­sókn­ar­hópur innan vett­vangs- og verð­bréfa­eft­ir­lits er geta þess til að takast á við stór­tækar rann­sóknir mjög skert.

Þetta skiptir miklu máli, til dæmis varð­andi rann­sóknir á meintri mark­aðs­mis­notkun, en nokkur slík mál komu út úr vinnu rann­sókn­ar­nefndar um starf­semi spari­sjóð­anna. Sér­stakur sak­sókn­ari getur ekki tekið upp mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál nema eftir kæru frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu.

Í svari Fjár­mála­eft­ir­lits­ins við spurn­ingum Kjarnans um málið segir að sum af mál­unum 21 sem nefndin hafi sent frá sér hafi varðað brot sem heyri undir Fjár­mála­eft­ir­litið og muni ein­ungis sæta rann­sókn lög­reglu að und­an­geng­inni kæru frá eft­ir­lit­inu. Ef þau kalli á frek­ari rann­sókn að hálfu þess muni hún fara fram. Síðan segir að „þó rann­sóknum í kjöl­far hruns­ins sé form­lega lokið hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu er áfram rann­sókn­ar­hópur að störfum[...] og stofn­unin því vel í stakk búin til að rann­saka mál“.

Afger­andi nið­ur­staða
Skýrsla rann­sókn­ar­nefndar um spari­sjóð­ina hefur verið gagn­rýnd tölu­vert í fjöl­miðlum fyrir að vera ekki nógu afger­andi. Þótt í henni séu ekki dregnar jafn skýrar álykt­anir og gert var í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um fall íslenska banka­kerf­is­ins sem kom út fyrir fjórum árum er skýrslan hins vegar upp­full af nýjum upp­lýs­ingum sem sýna í hversu slæmu ástandi spari­sjóða­kerfið var á árunum fyrir hrun. Heim­ildir nefnd­ar­innar voru sam­bæri­legar við þær sem sú fyrsta hafði, utan þess að skerpt var á að fjalla ekki jafn mikið um fjár­mál ein­stak­linga. Á þeim örfáu stöðum þar sem nöfn eru ekki nefnd er mjög fljót­lega hægt að átta sig á um hverja er að ræða og fletta þeim upp í opin­berum gagna­söfnum.
Í skýrsl­unni er því að finna sann­leik­ann um afdrif spari­sjóða­kerf­is­ins, og sér­stak­lega þeirra fjög­urra sem ætl­uðu sér að spila með stóru strák­unum. Og hann er ekki fal­legur.

Lestu Kjarnann í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár