Nýja trúfélagið lofar að borga meðlimum í nóvember

Zúistar hafa ekki náð að reiða af hendi greiðslu til með­lima þess, en sam­tals munu þær nema um 30 millj­ónum króna.

Nýja trúfélagið lofar að borga meðlimum í nóvember
Einn af guðum Súmera Zúismi er rakin til trúar Súmera sem héldu til í Mesópótamíu um 3000 f.Kr. Hér er einn guð þeirra, En-lil, oft álit­inn æðsti guð Súmera, að taka við gjöf.

For­svars­menn trú­fé­lags Zúista á Íslandi lofa að hefja end­ur­greiðslur rík­is­styrkja til félaga sinna í nóv­em­ber. Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef­síðu félags­ins er lofað að end­ur­greiða þennan styrk, sem kemur til vegna fjár­styrks rík­is­ins til trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga, í tveimur greiðslum á ári en þeir hafa hingað til ekki greitt neitt.

Æðstiprestur
Æðsti­prestur Ísak Andri Ólafsson er æðsti­prestur Zúista á Íslandi.

Samkvæmt taln­ingu Hagstofu Íslands eru 3.087 skráðir í félagið í dag en búast má við því að þeim hafi fjölgað eitt­hvað þar sem töl­urnar eru frá því 1. jan­úar 2016.

„Félag Zúista er orðið sjö­unda stærsta trú­fé­lag lands­ins“

Ef miðað er við félaga­fjöld­ann þann 1. jan­úar síð­ast­lið­ins eru þetta rúmar þrjá­tíu millj­ónir króna sem Zúistar á Íslandi hyggj­ast end­ur­greiða félags­mönnum sínum. Sókn­ar­gjöld, sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi árs­ins, eru um það bil 900 krónur á mán­uði sem myndi gera 10.800 krónur á ári. Þessa upp­hæð ætl­aði félagið að end­ur­greiða félags­mönnum sínum og var mikið rætt um þessar fyr­ir­ætl­anir í fjöl­miðlum þegar þær voru aug­lýstar á síð­asta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár