Yngri bróðirinn útskrifaður af gjörgæslu

Bata­horfur drengs­ins sagðar góðar. Skelfi­legt slys í Hafn­ar­firði virð­ist ætla að fá góðan endi.

Yngri bróðirinn útskrifaður af gjörgæslu

Ungi dreng­ur­inn sem fluttur var þungt hald­inn á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans eftir að hafa fest í affalli í Reykja­dals­stíflu í Læknum í Hafn­ar­firði í vik­unni hefur verið útskrif­aður af gjör­gæslu. Hann liggur nú á Barna­spít­ala Hrings­ins og sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá land­spít­ala eru bata­horfur hans góðar. Vísir greinir frá þessu. 

Dreng­ur­inn er níu ára gam­all, en eldri bróðir hans sem er 12 ára fest­ist einnig í affall­inu. End­ur­lífga þurfti báða dreng­ina, en sá eldri komst til með­vit­undar á vett­vangi. Börnin gerðu sér ekki grein fyrir hætt­unni sem leynd­ist á svæð­inu en bæj­ar­yf­ir­völd Hafna­fjarðar eru með málið til skoð­unar. Stíflan hefur verið tæmd. 

Kældur til að draga úr líkum á heilaskaða

Læknar beittu svo­kall­aðri kæli­með­ferð þar sem lík­ams­hiti sjúk­lings er kældur niður í 32 til 34 gráður. Líkami drengs­ins var kældur niður í tvo sól­ar­hringa. Með slíkri með­ferð er hægt að draga úr líkum á heilaskaða. Dreng­ur­inn fór síðan að vakna um hádeg­is­bil á föstu­dag þegar kæl­ing­unni var hætt. Í frétt RÚV um málið segir að kæli­með­ferð hafi verið nokkrum sinnum verið beitt hér á landi þegar fólk hefur verið nærri drukknað og hafa sjúk­lingar náð ótrú­legum bata í kjöl­farið. 

Haft er eftir Felix Valssyni, sér­fræði­lækni í svæf­ingu og gjör­gæslu á Land­spít­ala, að mik­il­vægt sé að bregð­ast rétt við á slys­stað. „Ef fólk kemur að sjúk­lingi sem hefur kólnað mikið þá á alltaf að kalla fyrst á hjálp en síðan að reyna að hefja end­ur­lífgun á meðan hjálp berst því það eru dæmi um það að þessir sjúk­lingar hafa verið í end­ur­lífgun í langan tíma, jafn­vel klukku­stundir, og komið samt mjög heilir út úr því,“ segir Felix.

 

Tengdar fréttir:

Svona gerð­ist slysið í læknum í Hafn­ar­firði: Yngri dreng­ur­inn vakn­aður

Börn í Lækj­ar­skóla urðu vitni að slys­inu

Tveir drengir þungt haldnir eftir slys: Vitni tjáir sig um málið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár