Vinsælustu pistlar ársins: Morðið á DV, hjúkrunarfræðingur svarar ráðherra og nauðgunarmálið í Hlíðunum

Hér eru fimmtán vin­sæl­ustu pistlar Stund­ar­innar á árinu.

Vinsælustu pistlar ársins: Morðið á DV, hjúkrunarfræðingur svarar ráðherra og nauðgunarmálið í Hlíðunum

15 
Salan á Sigmundi


Jón Trausti Reyn­is­son skrif­aði pistil í apríl um hvernig Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra tók yfir flokk­inn og síðan landið. Pistill­inn kom í kjöl­far ítar­legrar for­síðu­út­tektar Stund­ar­innar um yfir­töku og ham­skipti Fram­sókn­ar­flokks­ins. „Það hefur komið í ljós skref fyrir skref að margt það sem við héldum um Sigmund Davíð var ekki raun­veru­leiki,“ skrif­aði Jón Trausti meðal ann­ars.

14 
Mundirðu eftir tuskudýrinu Ólöf Nordal?


Í kjöl­far frétta af brott­vísun tveggja lang­veikra albanskra barna fyrr í mán­uð­inum skrif­aði Illugi Jök­uls­son pistil þar sem hann beindi orðum sínum til Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra sem fer fyrir málum hæl­is­leit­enda. „Mundirðu ekki örugg­lega eftir að hrifsa líka af honum tusku­dýrið, Ólöf Nordal?“ spurði hann meðal ann­ars.

13 
„Þú munt fá lexíuna hóran þín“


Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir sagði frá hót­unum og árásum manns sem hafði áreitt hana frá árinu 2013, að því að virt­ist vegna fréttar sem karl­kyns kollegi hannar skrif­aði árið 2010. „Kolleg­inn heyrði aldrei frá mann­inum, sem tók aftur á móti upp á því að senda mér ítrekuð skila­boð þar sem hann kall­aði mig hóru, hót­aði mér refs­ingu og beindi sjónum að börn­unum mínum. Skila­boðin ein­kennd­ust fyrst og fremst af kven­fyr­ir­litn­ingu, enda var hann ekki að ráð­ast að mér sem blaða­manni heldur sem konu,“ skrif­aði Ingi­björg Dögg.

12 
Stelpupussulæti Hallgríms


Guð­bergur Bergsson rit­höf­undur skrif­aði pistil í DV í októ­ber þar sem hann hædd­ist meðal ann­ars að Hall­grími Helga­syni kollega sínum fyrir að hafa stigið fram og sagt frá nauðgun sem hann varð fyrir þegar hann var 22 ára gam­all. Áslaug Karen Jóhanns­dóttir skrif­aði pistil þar sem hún rýndi í orð Guðbergs: „Guð­bergur hæð­ist ekki ein­ungis að Hall­grími í pistl­inum - hann kven­gerir hann. Sveskju­steinn­inn, mynd­lík­ingin sem Hall­grímur notar í við­tali við Frétta­tím­ann, hafi ekki gengið niður úr sál­inni heldur földu móð­ur­lífi í eins­konar homma­skáp. Alvöru karl­menn geti þannig ekki orðið fyrir nauðgun, ein­ungis konur eða hommar.“

11 
Vændi ritskoðað


Viðtal við mann sem keypti vændi af upp­á­halds klám­mynda­leikkonu sinni var birt á Press­unni í nóv­em­ber síð­ast­liðnum og vakti hörð við­brögð. Sunna Krist­ins­dóttir skrif­aði pistil um málið fyrir Stundina. „Svona umfjöllun nærir gríð­ar­lega skað­lega umræðu því að hún heldur lífi í  mýt­unni um að „vændi sé í raun bara frá­bært dæmi“, „atvinnu­tæki­færi fyrir konur“ og að „við séum í raun bara teprur“ hérna á Íslandi,“ skrif­aði Sunna meðal ann­ars.

10 
10 hlutir sem hamingjusöm pör gera


Hrefna Hrund Pét­urs­dóttir og Ólöf Edda Guð­jóns­dóttir sál­fræð­ingar skrif­uðu pistil fyrir Stundina þar sem þær deildu nokkrum góðum ráðum sem gott er að hafa í huga í para­sam­böndum. Eitt það mik­il­væg­asta sem ham­ingju­söm pör gera er að hrósa hvort öðru, segja þær. „Ekki þarf aðeins að hrósa fyrir stóra við­burði heldur er líka mik­il­vægt að hrósa fyrir hvers­dags­lega hluti. Þú kemur þreytt heim úr vinn­unni og kær­asti þinn er búinn að taka til í íbúð­inni og elda kvöld­mat­inn. Þú ert rosa­lega fegin að núna getur þú slakað á eftir vinnu­dag­inn. Í þessum aðstæðum er mik­il­vægt að grípa tæki­færið og gefa á ein­hvern hátt til kynna að þú sért þakk­lát fyrir það sem kærast­inn þinn gerði.“

9 
Ný fjármálakreppa er óumflýjanleg


Jóhannes Björn greindi hvernig banka­el­ítan náði að velta skuldum og ábyrgðum yfir á skatt­greið­endur. Lausnin á krepp­unni mun enda með martröð, segir hann. „Hag­kerfið hrundi vegna ofur­skulda og því hefur síðan verið haldið gang­andi með miklu meiri skuldum. Við skulum ekki blekkja sjálf okkur eða láta blekkj­ast af áróðri elít­unnar sem græðir á „magnaukn­ingu“ og vöxtum sem stans­laust stela sparifé fólks,“ skrif­aði hann meðal ann­ars.

8 
Stóra bomban árið 2015


Óttar Guð­munds­son geð­læknir rifj­aði upp Stóru bomb­una árið 1930, þegar geð­læknir sagði ráð­herra geð­veikan. Pistill­inn kom í kjöl­far ummæla for­sæt­is­ráð­herra um að rof væri á milli raun­veru­leika og skynj­unar hjá þjóð­inni. „Þetta er í raun öfug speg­il­mynd af Stóru-bombu­mál­inu. Þá lýsti geð­læknir ráð­herra geð­veikan en nú lýsir ráð­herra alla þjóð sína geð­veika. Hann einn er heil­brigður í fjand­sam­legum heimi þar sem fólk er búið að missa öll tengsl sín við veru­leik­ann.“

7 
Landsfundur hinna háu kinnbeina


Hug­leið­ingar Braga Páls Sig­urðs­sonar eftir lands­fund Sjálf­stæð­is­flokks­ins vöktu tals­verða athygli í októ­ber síð­ast­liðnum. Þar sagði hann meðal ann­ars frá áhuga­verðri senu þar sem syni Kjartans Gunn­ars­sonar var meinuð inn­ganga á fund­inn. „Kjartan varð mjög hvumsi, og spurði ítrekað hvort dyra­verð­inum væri alvara, hvort hann vissi ekki hver hann væri, sagði „HA?!“ mjög undr­andi, mjög oft, og horfði hneyksl­aður í hringum sig,“ skrif­aði Bragi Páll meðal ann­ars.

6 
Ekki láta Jón Gnarr eyðileggja fyrir okkur lífið


Bjarni Pálsson, fyrr­ver­andi skóla­stjóri Hér­aðs­skól­ans að Núpi, svar­aði ásök­unum Jóns Gnarr um skóla­hald að Núpi í pistli á Stund­inni. Jón Gnarr hefur lýst kyn­ferð­is­legu ofbeldi í hér­aðs­skól­anum á Núpi, sem þó eng­inn sam­nem­anda né kenn­ara kann­ast við. „Fyrir okkur gamla starfs­fólkið á Núpi var skelfi­legt að sjá for­síðu Frétta­blaðs­ins þann 17. októ­ber síð­ast­lið­inn þar sem greini­lega átti að ræna okkur ærunni svo og af öllu því sam­starfs­fólki okkar sem látið er,“ skrifar Bjarni.

5 
Morðið á DV


Hall­grímur Helgason útskýrði í pistli hvernig dag­blað er drepið. „Maður gerir það hægt og rólega, á þremur til fjórum mán­uðum og bindur enda­hnút­inn á hár­réttum tíma,“ skrif­aði hann meðal ann­ars. „Það tókst að teygja glæp­inn yfir svo langan tíma að þjóðin náði „að lifa með honum“, og nán­ast verða leið á honum, og svo voru hlut­irnir bara „orðnir eins og þeir eru“.“

4 
Hjúkrunarfræðingur svarar


Verkfall hjúkr­un­ar­fræð­inga setti sann­ar­lega svip sinn á árið. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra kom fram í við­tali og sagði að hjúkr­un­ar­fræð­ingum hafi verið boðin tutt­ugu pró­sent launa­hækkun. María Ósk Gunn­steins­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur svar­aði ráð­herr­anum í pistli á Stund­inni og sendi sam­starfs­fólki bar­áttu­kveðju. „Ekki láta brjóta niður þessa sam­stöðu með útúr­snún­ingi póli­tíkusa í fjöl­miðlum sem leika sér að tölum til að snúa áliti almenn­ings gegn okkur til þess eins að bæta eigið fylgi. Berjist á móti, ekki lúffa fyrir svo skít­legri fram­komu.“

3 
Nokkrar staðreyndir um nauðgunarmálið í Hlíðunum


Fáar fréttir hreyfðu jafn mikið við almenn­ingi og for­síðu­frétt Frétta­blaðs­ins um að íbúð meints nauð­gara í Hlíðum hafi verið útbúin til nauð­gana. Margt er enn óljóst í mál­inu en Jón Trausti Reyn­is­son fór yfir nokkur atriði sem þó liggja ljós fyrir. „Við vitum ekki hvort þeir grun­uðu í mál­inu í Hlíðunum eru sekir. Við vitum hins vegar að fólk er sett í gæslu­varð­hald grunað um mun væg­ari glæpi – glæpi án fórn­ar­lambs eða nytja­stuld, fremur en árás á lík­ama og sál fólks,“ skrif­aði hann meðal ann­ars.

2 
Hvernig lifðum við þetta af?


Óttar Guð­munds­son geð­læknir fjall­aði um nei­kvæð áhrif kröf­unnar um vanda­mála- og áhyggju­leysi í næst vin­sælasta pistli árs­ins. Hann segir örygg­is­kyn­slóð­ina ekki til­búna fyrir mót­læti, en fyrir fáeinum ára­tugum ólust börn upp við fjöl­margt sem talið er lífs­hættu­legt í dag. „Auðvitað er gott að for­eldrar fylgist með börnum sínum en stundum getur umhyggjan gengið út yfir allan þjófa­bálk og snú­ist upp í and­hverfu sína. Ég velti því stundum fyrir mér hvernig manni tókst að lifa af eigin barn­æsku og ung­lingsár,“ skrif­aði Óttar.

1 
Láglaunafólk sem situr á gullnámu


Vin­sæl­asti pist­ill Stund­ar­innar frá upp­hafi er pist­ill Jóhann­esar Björns um lág­launa­fólkið sem situr á gull­námu en vel rúm­lega sex­tíu þús­und manns hafa nú lesið pistil­inn. „Dapurleg staða íslensks launa­fólks er óþol­andi vegna þess að landið er feiki­lega ríkt og lífs­kjör almenn­ings ættu að vera með því besta sem þekk­ist í heim­inum. Hvergi í heim­inum, nema þar sem olían vellur upp úr jörð­inni, á svo fámennur og vel upp­lýstur hópur slíka gnótt verð­mæta. Hitt er líka stað­reynd að hvergi á norð­ur­hveli jarðar hefur spill­ing og óstjórn staðið þegn­unum eins fyrir þrifum og á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár