Vill að efnahags- og viðskiptanefnd komi saman og fjalli um skattaskjólsskýrsluna

„Á hinu stutta des­em­ber­þingi var kosin efna­hags- og við­skipta­nefnd þannig að hún ætti hæg­lega að geta komið saman í næstu viku,“ skrifar Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna.

Vill að efnahags- og viðskiptanefnd komi saman og fjalli um skattaskjólsskýrsluna

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, vill að efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis komi saman í næstu viku og fjalli um skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum. 

„Var að óska eftir fundi í efna­hags- og við­skipta­nefnd í kom­andi viku til að fá kynn­ingu og umræðu um skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga í skatta­skjólum. Spurn­ingar hafa vaknað af hverju skýrslan var ekki birt fyrr en sam­kvæmt fréttum var henni skilað í októ­ber. Margt þarf að skoða í fram­hald­inu,“ skrifar hún á Facebook. 

Eins og Stundin fjall­aði um í fyrra­dag hefur skýrslan legið fyrir í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu frá því í byrjun októ­ber, um mán­uði áður en gengið var til þing­kosn­inga, en hún var ekki birt fyrr en í dag eftir að fjöl­miðlar og þing­menn höfðu óskað eftir aðgangi að henni á grund­velli upp­lýs­inga­laga. 

Samkvæmt nið­ur­stöðum starfs­hóps­ins má áætla að í lok árs­ins 2015 hafi upp­safnað umfang eigna og umsvifa Íslend­inga á aflands­svæðum frá árinu 1990 legið á bil­inu 350-810 millj­örðum króna. Þá telur starfs­hóp­ur­inn að mögu­legt tekju­tap hins opin­bera vegna van­tal­inna eigna geti numið allt frá 2,8-6,5 millj­örðum árlega miðað við gild­andi tekju­skattslög.

Katrín segir að skoða þurfi hvort frek­ari laga­breyt­inga sé þörf til að sporna gegn skattsvikum og notkun skatta­skjóla. „Skoða þarf hvort nægi­lega vel er búið að fram­kvæmd skatta­eft­ir­lits og skatt­rann­sókna. Og skoða þarf hvaða áhrif afnám hafta mun hafa á þessa hluti í fram­tíð­inni og hvort fjár­munir úr skatta­skjólum hafa verið að skila sér inn í landið að und­an­förnu í gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans. Á hinu stutta des­em­ber­þingi var kosin efna­hags- og við­skipta­nefnd þannig að hún ætti hæg­lega að geta komið saman í næstu viku,“ skrifar Katrín.

Þingmenn Sam­fylk­ing­ar­innar og Pírata hafa gagn­rýnt harð­lega að skýrsla starfs­hóps­ins hafi ekki verið birt almenn­ingi og Alþingi fyrr en eftir kosn­ingar. Eins og Panama-skjölin vörp­uðu ljósi á átti fjár­mála­ráð­herra sjálfur hlut í aflands­fé­lagi og jafn­framt Benedikt Sveins­son, faðir hans. Báðir eru frændur og fyrr­ver­andi við­skipta­fé­lagar Bene­dikts Jóhann­es­sonar, for­manns Við­reisnar sem útlit er fyrir að verði næsti fjár­mála­ráð­herra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár