Vilja að dregið sé enn frekar úr samneyslunni

Mennta- og heil­brigð­is­kerf­inu verður áfram skor­inn þröngur stakkur næstu fimm árin sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun Bjarna Bene­dikts­sonar. Meiri­hluti fjár­laga­nefndar vill þó ganga enn lengra í aðhaldi og hag­ræð­ingu hjá hinu opin­bera.

Vilja að dregið sé enn frekar úr samneyslunni
For­sprakkar fjár­laga­nefndar Vigdís Hauks­dóttir er for­maður fjár­laga­nefndar og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son er vara­for­maður. Mynd: Myndir af vefsíðum Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar kallar eftir enn meira aðhaldi á útgjalda­hlið rík­is­sjóðs heldur en til­laga Bjarna Bene­dikts­sonar að fjár­mála­á­ætlun til næstu fimm ára felur í sér. 

„Meiri­hlut­inn telur að aðhald í útgjöldum rík­is­sjóðs sé tæp­lega nægj­an­legt í áætl­un­inni jafn­vel þó að afkoman verði í jafn­vægi og skuldir rík­is­sjóðs lækki veru­lega,“ segir í áliti sem meiri­hluti nefnd­ar­innar lagði nýlega loka­hönd á.

Undir álitið skrifa þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins, þau Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son vara­for­maður, Ásmundur Einar Daðason, Haraldur Bene­dikts­son, Páll Jóhann Pálsson og Val­gerður Gunn­ars­dóttir. 

Stundin hefur áður fjallað ítar­lega um rík­is­fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar, þ.e. þings­á­lykt­un­ar­til­lög­urnar um fjár­mála­á­ætlun og fjár­mála­stefnu sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, skil­aði Alþingi í lok apríl. Fjár­mála­á­ætlun Bjarna gerir ráð fyrir því að ríkið haldi að sér höndum í fjár­fest­ingum og upp­bygg­ingu inn­viða til næstu fimm ára og rík­is­út­gjöld lækki sem hlut­fall af vergri lands­fram­leiðslu. Gerð er árleg aðhalds­krafa upp á 1 pró­sent til allra mála­flokka nema í heil­brigðis- og mennta­málum þar sem krafan er 0,5 pró­sent og í almanna- og atvinnu­leys­is­trygg­ingum þar sem aðhalds­krafan er engin. Á meðal útgjalda­liða sem ekki halda í við áætl­aða aukn­ingu vergrar lands­fram­leiðslu á tíma­bil­inu eru mál­efna­svið eins og háskóla­stigið, fram­halds­skóla­stigið og heil­brigð­is­þjón­usta utan sjúkra­húsa. 

Áfram er gert ráð fyrir því að háskólar á Íslandi hafi úr miklu minni fjár­munum að spila en gengur og ger­ist á hinum Norð­ur­lönd­unum. Þetta hafa rekt­orar allra háskóla á Íslandi gagn­rýnt í harð­orðri yfir­lýs­ingu þar sem varað er við fjár­mála­á­ætl­un­inni og full­yrt að hún muni „hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á háskóla­nám, vís­inda­starf, fram­þróun í atvinnu­sköpun og sam­keppn­is­stöðu Íslands til fram­tíðar“. Þá verður útgjöldum rík­is­ins til heil­brigð­is­mála áfram skor­inn þröngur stakkur, en fram­lögin munu nema um 8 pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu árið 2021 þrátt fyrir að 90 þús­und lands­manna hafi skrifað undir kröfu þess efnis að fram­lög rík­is­sjóðs til rekst­urs heil­brigð­is­kerf­is­ins hækki upp í 11 pró­sent. 

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar, með Vigdísi Hauks­dóttur og Guðlaug Þór Þórð­ar­son í far­ar­broddi, vill enn meira aðhald og enn lægri rík­is­út­gjöld. Í nefnd­ar­á­lit­inu er kallað eftir því að haldið verði áfram „á þeirri braut sem mörkuð var með skipun hag­ræð­ing­ar­hóps rík­is­stjórn­ar­innar“ og að miðað verið við „heldur lægri útgjald­ara­mma“. Þá segir meiri­hlut­inn að vel 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár