Vilhjálmur segir Gylfa þvælast fyrir löndun samninga

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, brást illa við til­lögu Gylfa Arn­björns­sonar um sam­ein­ingu afls aðild­ar­fé­laga og félags­manna Alþýðu­sam­bands­ins.

Vilhjálmur segir Gylfa þvælast fyrir löndun samninga
Vil­hjálmur Birg­is­son Formaður Verka­lýðs­fé­lags Akraness sakar ASÍ um að leiða til sam­ræmdrar lág­launa­stefnu.

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, brást illa við á Facebook-síðu sinni vegna ræðu Gylfa Arn­björns­sonar 1. maí síð­ast­lið­inn. Gylfi, for­seti ASÍ, lagði til í ræðu sinni að stétt­ar­fé­lög Íslands myndu sam­eina krafta sína fyrir bættum kjörum félags­manna. Að sögn Gylfa myndi sam­ein­ing 110 þús­und félags­manna hámarka þrýst­ing á atvinnu­rek­endur.

„Bara þannig að launa­fólk átti sig á því hvað for­set­inn er að biðja um þá er það að hann fái að stýra og leiða þessar kjara­við­ræður við Samtök atvinnu­lífs­ins. Ekki gleyma því að Samtök atvinnu­lífs­ins eru búin að vera að kalla eftir því opin­ber­lega að ASÍ sjái um að leiða þessar kjara­við­ræður sem nú eru í gangi. Það hefur svo sem ekki komið mér á óvart því að sjálf­sögðu vilja menn taka aftur upp þráð­inn í sam­ræmdu lág­launa­stefn­unni,“ skrif­aði Vil­hjálmur á Facebook-síðu sína.

Samræmd láglaunastefna

Vil­hjálmur segir enn fremur að Gylfi sé ein­ungis að þvæl­ast fyrir meðan aðrir reyna að landa við­un­andi samn­ingi fyrir verka­fólk.

„Skildi for­seti ASÍ vilja taka aftur upp sam­ræmdu lág­launa­stefn­una sem hann stýrði bæði í kjara­samn­ing­unum 2011 og svo aftur í hinum marg­fræga 2,8% samn­ingi 2013? Takið eftir samn­ing­arnir 2011 og 2013 voru undir einum fána 110 þús­und félags­manna ASÍ og það gaf alls ekki góða raun. Gylfi nei takk, ekki sam­ræmda lág­launa­stefnu aftur og ég er bara með eina ósk, ekki vera að þvæl­ast fyrir á meðan við eru að reyna að landa við­un­andi samn­ingi fyrir verka­fólk,“ skrifar Vil­hjálmur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár