Vanræksla að kæra ekki Brúnegg til lögreglu - vill stofna sérstaka dýralögreglu

Meðferð Brú­neggja á hænum er alvar­legt brot á lögum um vel­ferð dýra sem Mat­væla­stofnun hefði átt að kæra til lög­reglu fyrir mörgum árum. Þetta segir Alex­andra Jóhann­es­dóttir lög­fræð­ingur sem segir stofn­un­ina mátt­lausa og van­hæfa til að sinna eft­ir­lits­hlut­verki sínu. Hún hefur talað fyrir því að sett verði á fót dýra­lög­regla á Íslandi.

Vanræksla að kæra ekki Brúnegg til lögreglu - vill stofna sérstaka dýralögreglu
Frá hænsna­búi Brú­neggja Áhorf­endum á Kastljós á RÚV var brugðið að sjá hversu slæmur aðbún­aður hænsna í búum Brú­neggja var. Mynd: Rúv

Strax þegar ljóst var hversu slæmur aðbún­aður hænsna Brú­neggja er hefði Mat­væla­stofnun átt að kæra stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins til lög­reglu. Í kjöl­farið hefði verið hægt að svipta þá aðila umráða­rétti yfir dýrum með dómi, sem hefði verið eðli­legt í svona til­viki og hefði úti­lokað að umráða­að­ilar þess­ara dýra settu á lagg­irnar þriðja eggja­búið þrátt fyrir ítrekuð, sönnuð og gríð­ar­lega alvar­leg brot.  Þetta segir Alex­andra Jóhann­es­dóttir lög­fræð­ingur sem hefur rann­sakað brot á lögum um vel­ferð dýra og eft­ir­fylgni með þeim. „Þeir sem fara svona með dýr eiga ekki að fá leyfi til að sýsla með dýr til langs tíma. Það á að taka þann rétt af þeim. Það hefði raun­veru­lega áhrif á þeirra lífs­við­ur­væri. Með því móti hefðu dýra­vel­ferð­ar­lög og -reglu­gerðir fæl­ing­ar­mátt.“

Dæmið um Brúnegg bendi til þess að það séu engar alvöru afleið­ingar af því að brjóta lög og fara illa með dýr. „Jú, fram­leið­end­urnir fengu dag­sektir. En aðilar sem eru að hagn­ast um nokkur hund­ruð millj­ónir í arð á ári geta alveg lifað við þær.“

Það eru bræð­urnir Kristinn Gylfi Jónsson og Björn Jónsson sem eiga hvorn sinn helm­ing­inn í Brú­neggjum ehf. í gegnum einka­hluta­fé­lög sín. Félög þeirra högn­uð­ust um tæpar hund­rað millj­ónir króna hvort árið 2015, sama ár og aðbún­aður á eggja­búum þeirra var það slæmur að loka átti búunum, eins og kemur fram í frétt Stund­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár