Viðvaranir um efnahagsmál á Íslandi

OECD, Efnahags- og fram­fara­stofnun Evrópu, fagnar hröðum efna­hags­bata en varar við stöð­unni á Íslandi.

Viðvaranir um efnahagsmál á Íslandi
Ísland Stendur fram­ar­lega á flestum sviðum, en kunn­ug­leg hættu­merki eru á lofti. Mynd: NASA

Þrátt fyrir að Efnahags- og fram­fara­stofnun Evrópu fagni góðum árangri Íslands í nýlegri skýrslu um efna­hags­líf lands­ins er varað við nokkrum hættu­merkjum í hag­kerf­inu.

Íslenska krónan og launa­hækk­anir eru farin að grafa undan sam­keppn­is­hæfni Íslands, traust vantar á vinnu­mark­aði og gæta þarf að því að vernda óbyggðir Íslands, er meðal þess sem OECD varar við.

Sterk króna lamar nýsköpun

Hátt gengi krón­unnar veldur því að laun, og þar með kostn­aður við vinnu­fram­lag, er mun hærri hér á landi en ann­ars staðar, þrátt fyrir að fram­leiðni sé minni en með­al­talið í ríkjum OECD. Íslend­ingar bæta lága fram­leiðni á hverja vinnu­stund með því að vinna mun fleiri klukku­stundir en sam­an­burð­ar­þjóðir.

Fram kemur að einn vand­inn sé að nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki eigi erfitt vegna styrk­ingar krón­unnar og aukn­ingar launa­kostn­aðar, auk þess sem erfitt sé að láta fyr­ir­tæki vaxa í litlu hag­kerfi, en vöxtur slíkra fyr­ir­tækja knýr gjarnan fram­leiðni­aukn­ingu.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár