Framsóknarmenn náðu ekki að klára „heiðarlegan fund“

Þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins fund­aði um mál for­manns flokks­ins, sem leyndi hags­munum, var stað­inn var að ósann­indum í við­tali, gekk út úr því og reyndi að stöðva birt­ingu þess. Forseti Íslands er á leið­inni til lands­ins. Fjár­mála­ráð­herra missti af flugi frá Flórída.

Framsóknarmenn náðu ekki að klára „heiðarlegan fund“
Sig­mundur Davíð kemur af fundi Stjórn­ar­and­staðan hefur farið fram á afsögn for­sæt­is­ráð­herra. Hann hefur lýst því yfir að hann voni að stjórn­ar­and­staðan guggni ekki á að lýsa van­trausti á sig. Mynd: Kristinn Magnússon

„Við áttum heið­ar­legan fund en náðum ekki að klára hann,“ segir Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um fund þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins sem staðið hefur verið yfir í morgun, þar sem rætt var mál for­manns flokks­ins, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.

Sig­mundur sagði ósatt um aðkomu sína í aflands­fé­lagi í við­tali sem sýnt var í heim­ild­ar­mynd á RÚV í gær. Hann gekk í kjöl­farið út úr við­tal­inu og sagði það vera „fyrir neðan allar hellur“. Í kjöl­farið reyndi hann að stöðva birt­ingu þess.

Náðu ekki að klára fund
Náðu ekki að klára fund Sigurður Ingi Jóhanns­son sagði að þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins myndi halda áfram að funda eftir hádegi.

„Við munum halda áfram á eftir,“ segir Sigurður Ingi. Spurður hvað var rætt á fund­inum segir Sigurður Ingi: „Ég held að það liggi ljóst fyrir“.

Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar, sagði eftir fund­inn að Sig­mundur myndi ekki ræða við fjöl­miðla fyrr en eftir þing­fund í dag. Hins vegar fór Sig­mundur í við­tal við Stöð tvö nokkrum mín­útum síðar. 

Sig­mundur Davíð boðar að hann muni svara fyrir sig á Alþingi í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum sem hefj­ast klukkan 15. 

Bjarna seinkar á leið frá Flórída

Forseti Íslands er á leið­inni til lands­ins úr ferða­lagi erlendis, þar sem hann dvaldi á ótil­greindum stað í einka­er­indum. Forseti hefur það hlut­verk sam­kvæmt stjórn­ar­skrá að setja saman rík­is­stjórn.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra missti af flugi á leið­inni frá Flórída þar sem hann á orlofs­hús.

Stjórn­ar­and­staðan hefur í morgun átt við­töl við fjöl­miðla í hús­næði Alþingis. Klukkan 12 hefst fundur í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis vegna van­hæfis for­sæt­is­ráð­herra. 

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jóns­dóttir Þing­maður Pírata í við­tali við fjöl­miðla í morgun.

Svaraði fyrir sig fyrir fram

Á sama tíma hefur þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins fundað með for­manni sínum vegna við­tals­ins. Sig­mundur skráði ekki hags­muni sína eins og honum bar í hags­muna­skrán­ingu Alþingis. Félag Sig­mundar og eig­in­konu hans gerði kröfu upp á hálfan millj­arð króna í slitabú bank­ana, en hann seldi eig­in­konu sinni sinn hlut í félag­inu dag­inn áður en ný lög um aflands­fé­lög tóku gildi.

Sig­mundur hefur ekki rætt við fjöl­miðla frá því við­tal hans við sænskan blaða­mann og Jóhannes Kr. Krist­jáns­son var birt í gær­kvöldi. Hann svar­aði hins vegar fyrir sig fyr­ir­fram í blogg­færslu í gær, þar sem hann gagn­rýndi Rík­is­út­varpið harð­lega, gagn­rýndi for­tíð pistla­höf­undar, gagn­rýndi tíma­setn­ingu þátt­ar­ins, sagði Stundina okkar hafa verið gerða að „póli­tískum áróð­urs­þætti“ og sagði að „dreif­ing óhróð­urs“ um hann væri „grund­völlur að nýrri útrás“.

Fjallað hefur verið um aflands­fé­lag for­sæt­is­ráð­herra um allan heim í dag og gær­kvöldi.

Þing­fundur hefst klukkan 15 í dag og hefur verið boðað til mót­mæla klukkan 17. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár