Flett ofan af Björgólfsfeðgum: Reikningur í skattaskjóli og bankahólf opnuð í hruninu

Gögn frá lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca varpa ljósi á ótrú­lega umfangs­mikil við­skipti feðganna Björg­ólfs Guð­munds­sonar og Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar í skatta­skjólum fyrir og eftir hrunið 2008. Feðgarnir tengdir meira en 50 félögum. Dóttir Björg­ólfs Guð­munds­sonar opn­aði banka­reikn­ing og banka­hólf í Sviss og neitar að segja af hverju. Óþekkt lán­veit­ing upp á 3,6 millj­arða til Tortóla­fé­lags. Félag sem Björgólfur eldri stýrði fékk millj­arð í lán sem aldrei fékkst greitt til baka. Nær öll fyr­ir­tæki Björg­ólfs Thors eru beint eða óbeint í skatta­skjóli.

„Athugið vin­sam­leg­ast að þið hafið óskað eftir að Björgólfur Guð­munds­son fái pró­kúru­um­boð fyrir félagið Ranpod Ltd. Mossack Fonseca á Bresku Jóm­frú­areyjum hefur kannað bak­grunn við­skipta­vin­ar­ins og fund­ist hafa upp­lýs­ingar sem tengja hann við efna­hags­brot og fjár­svik,“ sagði í tölvu­pósti frá starfs­manni pana­ma­ísku lög­manns­stof­unnar Mossack Fonseca í byrjun nóv­em­ber árið 2008, tæpum mán­uði eftir hrun Lands­banka Íslands. Starfs­mað­ur­inn ýtti á eftir því að gengið yrði frá pró­kúr­u­m­boði fyrir Björgólf Guð­mundss­son, stjórn­ar­for­mann og stærsta eig­anda Lands­banka Íslands, í Tortóla­fé­lag­inu Ranpod Ltd. sem skráð var í eigu dóttur Björg­ólfs, Evelyn Bentínu Björg­ólfs­dóttur.  Stjórn­ar­menn félags­ins Ranpod voru tvö félög á Seychelles-eyjum, Gudson Limited og Rosella Limited. Með orðum sínum um efna­hags­brot Björg­ólfs vís­aði starfs­maður Mossack Fonseca til dóms sem Björgólfur Guð­munds­son fékk í Haf­skips­mál­inu árið 1990 en sá dómur var skil­orðs­bund­inn til fimm mán­aða. 

Unnið í samstarfi við Reykjavík Media
Unnið í sam­starfi við Reykja­vík Media

Mánuði áður, þann 3. októ­ber 2008 þegar stóru íslensku við­skipta­bank­arnir þrír voru að hrynja einn af öðrum, hafði félag Bentínu sótt um að opna banka­reikn­ing og banka­hólf í Sviss hjá breska Barclays bank­anum. Tveimur mán­uðum áður, í lok júlí árið 2008, hafði Evelyn Bentína stofnað umrætt Tortóla­fé­lag. Viku eftir að tölvu­póst­ur­inn um Björgólf var sendur í byrjun nóv­em­ber 2008 fengu hann og sonur hans, Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, pró­kúru­um­boð fyrir umrætt Tortóla­fé­lag, Ranpod Limited, sem Evelyn var skráð fyrir og gátu í kjöl­farið ráð­stafað eignum þess að vild en ekki er tekið fram hvaða eignir voru inni í félag­inu. Í lok júlí árið eftir, 2009, gaf Björgólfur Guð­munds­son per­sónu­legt bú sitt upp til gjald­þrota­skipta og voru skuldir hans umfram eignir þá taldar vera 100 millj­arðar króna.

„Nei, þú mátt nefni­lega alls ekki spyrja mig.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu, gögnum um félög í skatta­skjólum frá pana­ma­ísku lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca,  sem lekið var til þýska blaðs­ins Süddeutsche Zeitung og þaðan til alþjóð­legu blaða­manna­sam­tak­anna ICIJ. Stundin birtir fréttir upp úr gögn­unum í sam­vinnu við Reykja­vík Media ehf. sem heldur utan um miðlun upp­lýs­ing­anna upp úr Pana­ma­gögn­unum á Íslandi. Tekið skal fram að notkun fjár­festa á félögum í skatta­skjólum er ekki ólög­leg. Ef tekjur og eignir félaga í skatta­skjólum eru gefnar upp til skatts er notkun slíkra félaga lög­mæt, rétt eins og notkun á öðrum félögum og fyr­ir­tækjum. Félög í skatta­skjólum bjóða hins vegar upp á umtals­verða leynd fyrir fjár­fest­ana sem standa á bak við þar sem eign­ar­hald slíkra félaga er ekki opin­bert og árs­reikn­ingar þeirra og við­skipti ekki heldur. Panama­skjölin geta hins vegar gefið fágæta inn­sýn inn í notkun slíkra félaga í skatta­skjólum, meðal ann­ars starf­semi áður­nefnds félags, Ranpod Limited. 

Segir félagið óvirkt en vill ekki gefa upp starfsemi þess

Í sam­tali við Stundina segir Evelyn Bentína að Ranpod Limited sé ekki virkt. „Það er félag sem var stofnað á sínum tíma en það var lagt niður fyrir löngu, löngu síðan. Það stendur að það sé aktíft en það er það ekki. Ég spurð­ist fyrir um þetta og mér var sagt að hægt væri að selja nöfn á svona félögum fram og til baka og að hægt sé að kaupa félög þótt að búið sé að nota félögin. Það er þetta sem mér fannst svo skrítið: Það stendur að það sé virkt en það er það ekki.“

Aðspurð um af hverju félagið var stofnað segir Evelyn Bentína í léttum dúr að blaða­maður megi  alls ekki spyrja að því. „Nei, þú mátt nefni­lega alls ekki spyrja mig. Segðu mér eitt: Hvenær seldir þú síð­asta bíl­inn þinn og hverjum seld­irðu hann?“ Spurð aftur segir Evelyn Bentína: „Ef þú ætlar að spyrja mig svona per­sónu­legra spurn­inga þá vil ég hitta þig augliti til auglitis. Ég ætla ekki að gefa þér upp­lýs­ingar um það í gegnum síma hvernig ég eyði mínum tíma og mínu lífi“.

Pana­ma­gögnin benda hins vegar til að félagið Ranpod Limited sé ennþá virkt og var Evelyn Bentína sögð vera eini hlut­hafi þess um mitt ár árið 2014. Hún var sann­ar­lega með pró­kúru­um­boð fyrir félagið en Björgólfur Guð­munds­son og Björgólfur Thor Björg­ólfs­son voru það líka sam­kvæmt Pana­ma­gögn­unum. Evelyn segir hins vegar að það sé „löngu“ búið að leggja félagið niður.

Svör Evelyn Bentínu stang­ast því á við upp­lýs­ingar úr Pana­ma­gögn­unum. Samkvæmt skjali með hlut­hafa­upp­lýs­ingum um Ranpod Limited frá miðju ári 2014 er hún ennþá skráð sem eini hlut­hafi félags­ins og pró­kúru­um­boð Björg­ólfs­feðga yfir félag­inu hefur ekki verið afnumið. Ef það er rétt sem Evelyn Bentína segir að búið sé að leggja félagið niður þá eru engar upp­lýs­ingar um það í Panama­skjöl­unum og félagið hlýtur þá að vera í eigu óþekktra aðila auk þess að vera stýrt af aðilum sem ekki hafa pró­kúr­u­m­boð yfir félag­inu.

Vegabréf til staðfestingar
Vegabréf til stað­fest­ingar Ein­stak­lingar sem stofna aflands­fé­lög þurfa að senda lög­manns­stof­unum eða fyr­ir­tækj­unum sem sjá um það fyrir þau aaf­rit af vega­bréfum sínum til auð­kenna. Þetta gerðu þeir Björgólfur Guð­munds­son og Björgólfur Thor Björg­ólfs­son líkt og aðrir.

Segist ekki geta veitt upplýsingar um Ranpod

Í svari frá Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni, sem tals­kona hans Ragn­hildur Sverr­is­dóttir sendir fyrir hans hönd, segir að hann kann­ist ekki við Ranpod Limited og geti því ekki veitt upp­lýs­ingar um starf­semi félags­ins. „Þetta félag er ekki og hefur aldrei verið í eigu Björg­ólfs Thors og hann getur því ekki veitt neinar upp­lýs­ingar um það.“

Þegar Björgólfur Thor er inntur eftir frek­ari svörum um Ranpod Limited í gegnum Ragn­hildi, meðal ann­ars með þeim orðum að í Panama­skjöl­unum komi fram að hann hafi verið með pró­kúr­u­m­boð yfir þessu félagi, kemur fram að hann telji sig ekki geta veitt upp­lýs­ingar um félög ann­arra. „Þetta félag er ekki og hefur aldrei verið í eigu Björg­ólfs Thors og hann hefur því enga heim­ild til að veita neinar upp­lýs­ingar um rekstur þess.“ Ranpod Limited veitti félagi í eigu Novator hins vegar lán eins og síðar verður komið inn á. 

Eign­irnar sem voru inn í Ranpod Limited fóru því eitt­hvert, að minnsta kosti hluti þeirra, og er ekki hægt að segja það um þessar eignir sem Björgólfur Thor sagði í heim­ild­ar­mynd­inni Maybe I should have árið 2010.  „A lot of money goes to money hea­ven. [...] Þessi verð­mæti sem hafa þurrkast af hluta­bréfa­mörk­uðum, inni­stæðum í bönkum og fjár­mála­mörk­uðum yfir höfuð, þau eru bara farin; þau hafa gufað upp. Almenni mis­skiln­ing­ur­inn er að spyrja: Bíddu, hvert fóru pen­ing­arnir?“

Eignir Ranpods Limited fóru meðal ann­ars að ein­hverju leyti til félags sem tengd­ist Björgólfi Thor sjálfum.

Einkaþotan í Panamaskjölunum
Einka­þotan í Panama­skjöl­unum Einka­þota Björg­ólfs Thors kemur meðal ann­ars fram í Panama­skjöl­unum en eign­ar­haldið á henni var í gegnum Cayman-eyjar og Tortólu.

Umsvifamestir í Panamaskjölunum

Feðgarnir Björgólfur Guð­munds­son og Björgólfur Thor Björg­ólfs­son tengj­ast að minnsta kosti um 50 aflands­fé­lögum í skatta­skjólum sem  stofnuð voru í gegnum pana­ma­ísku lög­manns­stof­una Mossack Fonseca. Þeir eru lang umsvifa­mestir allra íslenskra fjár­festa sem koma fyrir í Panama­skjöl­unum. Gögnin um Björg­ólfs­feðga í Panama­skjöl­unum ná aftur til árs­ins 2001 en á þeim tíma voru þeir eig­endur bruggverk­smiðj­unnar Bravo í St. Pét­urs­borg í Rúss­landi ásamt Magnúsi Þor­steins­syni. Árið 2002 seldu þeir bruggverk­smiðj­una til drykkj­ar­vöru­fram­leið­and­ans Heineken og í kjöl­farið keyptu þeir ráð­andi hlut í Lands­banka Íslands og áttu bank­ann fram að hruni. Björg­ólfs­feðgar voru því byrj­aðir að not­ast við félög sem stofnuð voru í gegnum Mossack Fonseca áður en þeir keyptu Lands­banka Íslands.

Umsvif Björg­ólfs­feðga í skatta­skjólum þurfa kannski ekki að koma á óvart þegar litið er til þess að þeir feðgar voru stærstu hlut­hafar Lands­banka Íslands á árunum fyrir hrunið en bank­inn lét Mossack Fonseca stofna mik­inn meiri­hluta þeirra félaga í skatta­skjólum sem tengj­ast Íslend­ingum sem er að finna í gögn­unum. Lands­banki Íslands var sjötti stærsti við­skipta­vinur Mossack Fonseca á heims­vísu og stofn­aði lög­manns­stofan meira en 400 aflands­fé­lög fyrir bank­ann sam­kvæmt Pana­ma­gögn­unum. Um er að ræða félög í skatta­skjólum sem þeir Björg­ólfs­feðgar áttu eða eiga beint eða óbeint í gegnum önnur félög eða félög sem þeir stýrðu án þess þó að eiga þau, eins og til dæmis Ranpod Ltd. sem fjallað er um hér. 

Fengu leyfi til að stýra bankareikningi félagsins
Fengu leyfi til að stýra banka­reikn­ingi félags­ins Hér sjást nöfn Björg­ólfs­feðga á skjali sem merkt er Barclays-bank­anum í Sviss þar sem þeir fá leyfi til að stýra banka­reikn­ingi Ranpod Limited í bank­anum.

Ólík staða Björgólfsfeðga

Af þeim feðgum þá er Björgólfur Thor miklu umsvifa­meiri not­andi félaga í skatta­skjólum enda var hann og er einn stór­virkasti fjár­festir Íslands og er nú aftur orð­inn rík­asti maður lands­ins. Eignir hans voru metnar á 173 millj­arða króna í fyrra­haust og var hann á lista tíma­rits­ins Forbes yfir rík­ustu menn heims. Björgólfur Guð­munds­son varð hins vegar per­sónu­lega gjald­þrota eftir hrunið og er ekki lengur virkur fjár­festir svo vitað sé og er ekki skráður fyrir neinum fyr­ir­tækja­eignum.

Björgólfur Thor á meðal ann­ars fyr­ir­tæki eins og hlut í Allergan, móð­ur­fé­lagi lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Actavis sem hann seldi til banda­ríska lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Watsons árið 2012, síma- og fjar­skipta­fyr­ir­tækið Nova sem er komið upp í um 33 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á Íslandi,  fjar­skipta­fyr­ir­tækið Play í Póllandi sem er með meira en tíu milljón við­skipta­vini, síma­fyr­ir­tækið WOM í Chile og fleiri fyr­ir­tæki víða um heim.

Prókúra feðganna
Prókúra feðganna Prókúra Björg­ólfs Guð­munds­sonar og Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar yfir félag­inu Ranpod Limited á Tortólu sést hér. Björgólfur eldri hafði þrýst mjög á Mossack Fonseca að ganga frá pró­kúr­unni sem fyrst dag­ana áður en pró­kúran var veitt þann 10. nóv­em­ber árið 2008.

Segja má, til ein­föld­unar, að eign­ar­haldið á öllu alþjóð­legu fyr­ir­tækja­neti Björg­ólfs Thors hafi verið eða sé í gegnum skatta­skjóls­fé­lög sem fram koma í gögn­unum frá Mossack Fonseca. Allt frá síma­fyr­ir­tækjum í Austur-Evrópu og banda­rísku mót­or­hjóla­fyr­ir­tæki til stein­gráu einka­þot­unnar sem Mikhaíl Gor­bat­sjov Rúss­lands­for­seti flaug meðal ann­ars í árið 2006 og húss langafa hans, Thors Jensen, á Frí­kirkju­vegi 11 í Reykja­vík. 

Sjálfur segir Björgólfur Thor, í gegnum tals­konu sína Ragn­hildi Sverr­is­dóttur, að umsvif sín á lág­skatta­svæðum hafi minnkað tölu­vert frá hrun­inu árið 2008. „Umsvif á þessum svæðum hafa minnkað veru­lega frá því fyrir hrun. Fjöldi félaga hefur alltaf verið breyti­legur eftir við­skiptum á hverjum tíma.“

„Það er því alrangt að nokkrir fjár­munir hafi verið fluttir eða runnið til Tortola eða ann­arra aflandseyja.“

Götin í skýrslu rannsóknarnefndarinnar

Í gögn­unum um þá Björg­ólfs­feðga í Panama­skjöl­unum vekur einna mesta athygli hversu umfangs­miklar lán­veit­ingar til félaga þeim tengdum voru frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg. Björg­ólfs­feðgar keyptu hlut rík­is­ins í Lands­banka Íslands síðla árs árið 2002, eins og áður segir, og fylgdi dótt­ur­fé­lag Lands­bank­ans í Lúx­em­borg með í kaup­unum. Björg­ólfs­feðgar voru því eig­endur Lands­bank­ans í Lúx­em­borg sem þeir stund­uðu svo mikil lána­við­skipti í gegnum við félög í skatta­skjólum. Þrátt fyrir fjöl­skyldu- og við­skipta­tengsl feðganna þá voru þeir ekki skil­greindir sem tengdir aðilar í lána­bókum Lands­banka Íslands og hafði þessi þannig áhrif á lán­tökur þeirra í bank­anum að þeir gátu fengið meira fé þar að láni. 

Auk beinna lána frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg til aflands­fé­laga tengdum Björg­ólfs­feðgum þá eru einnig mjög margar lán­veit­ingar á milli félaga í skatta­skjólum sem tengj­ast þeim sem og lán­veit­ingar frá Björg­ólfs­feðgum sjálfum til félaga í skatta­skjólum. Eitt dæmi um slíka lán­veit­ingu er 35 milljón doll­ara, tæp­lega 2.7 millj­arða króna, lán frá Björgólfi Guð­munds­syni sjálfum til Tortóla­fé­lags­ins Bell Global Invest­ments í árs­byrjun 2003, rétt eftir kaup þeirra feðga á Lands­bank­anum.

Vitað var um hluta þess­ara lán­veit­inga frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg til félaga tengdum feðg­unum og er meðal ann­ars greint frá þeim að hluta í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis. Rann­sókn­ar­nefndin bjó hins vegar yfir afar tak­mörk­uðum upp­lýs­ingum um þessar lán­veit­ingar eins og fram kemur í skýrsl­unni. Ástæðan fyrir þessu er afar ein­föld: Gögn frá Lúx­em­borg um þessi fyr­ir­tæki og þessar lán­veit­ingar voru ekki aðgengi­leg Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis á starfs­tíma nefnd­ar­innar. Um þetta segir meðal ann­ars í skýrslu nefnd­ar­innar: „Annar hluti af auk­inni fyr­ir­greiðslu Lands­bank­ans til Björg­ólfs Thors er óskýrður enda var fyr­ir­greiðslan veitt í gegnum félög í Lúx­em­borg og aðgengi að upp­lýs­ingum um lán veitt þar er tak­markað. Um er að ræða aukna fyr­ir­greiðslu til Novator International Holding Ltd., 6 millj­arða króna, Novator Asset Mana­gement, 5 millj­arða króna, og Novator Finland Oy, 7,8 millj­arða króna. Einnig eru upp­lýs­ingar varð­andi lán­veit­ingar til Novator Pharma Holding tak­mark­aðar. Það eru því engar upp­lýs­ingar um til­gang þess­ara lán­veit­inga, trygg­ingar eða annað.“ Bent skal á að Novator Finland Oy sem rann­sókn­ar­nefndin talar þarna um er sama félag og fékk rúm­lega 660 millj­óna króna lánið frá Ranpod.

Þá hefur í fjöl­miðlum verið fjallað um við­skipti móð­ur­fé­lags Lands­banka Íslands, Samsonar, við félög í skatta­skjólum en skipta­stjóri Samsonar, Helgi Birg­is­son, athug­aði þessi við­skipti í kjöl­far hruns­ins árin 2009 og 2010. Í til­kynn­ingu sem Björg­ólfs­feðgar sendu frá sér í árs­byrjun árið 2010 sögð­ust feðgarnir meðal ann­ars hafna aðdrótt­unum um að fé hefði verið komið undan til aflandseyja: „Starfs­menn Samson hafa veitt skipta­stjóra upp­lýs­ingar og skýr­ingar á öllum umræddum við­skiptum. Þetta eru ýmist fjár­fest­ingar eða við­skipta­lán til félaga í eigu sömu eig­enda vegna nýrra fjár­fest­inga sem í flestum til­fella var í íslenskum félögum. Það er því alrangt að nokkrir fjár­munir hafi verið fluttir eða runnið til Tortola eða ann­arra aflandseyja. Ekkert umræddra félaga átti banka­reikn­inga utan Evrópu,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni. 

Panama­skjölin veita áður óþekktar upp­lýs­ingar um lán­veit­ingar frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg til félaga tengdum Björg­ólfs­feðgum. Um er að ræða lán­veit­ingar til og milli félaga sem fjallað hefur verið um opin­ber­lega sem tengj­ast við­skiptum þeirra, félög eins og Bell Global Invest­ments, Amber International og Topaz Equities auk þess sem í gögn­unum koma fram upp­lýs­ingar um ný félög sem tengj­ast feðg­unum. 

3,6 milljarða lánveiting kemur í ljós

Eitt áhuga­verð­asta dæmið um slíkar lán­veit­ingar í Panama­skjöl­unum eru tvö lán frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg á árunum 2004 og 2006 til Tortóla­fé­lags­ins Edda Printing and Publ­is­hing Limited. Annað lánið var í evrum upp á tæp­lega tvo millj­arða króna og hitt var í Banda­ríkja­doll­urum og var upp á tæp­lega 1600 millj­ónir króna. Þessi lán voru aldrei greidd til baka og í Panama­skjöl­unum er ekki að finna neinar upp­lýs­ingar um hvert þessir pen­ingar fóru.

Edda Printing and Publ­is­hing Limited hét áður Russa Publ­is­hing Ltd. og var fyr­ir­tæki sem hélt utan um „prent­verk­efni“ í Rúss­landi eins og einn heim­ild­ar­maður Stund­ar­innar segir - heim­ild­ar­mað­ur­inn vill ekki koma fram undir nafni. Björgólfur Guð­munds­son, Þór Krist­jáns­son, sem var við­skipta­fé­lagi Björg­ólfs­feðga í Rúss­landi og á fyrstu árunum eftir kaup þeirra á Lands­bank­anum, og Magnús Þor­steins­son, einn hlut­hafa Lands­bank­ans og við­skipta­fé­lagi feðganna í Rúss­landi, voru allir um tíma með pró­kúr­u­m­boð fyrir félagið.

Magnús Þor­steins­son er hins vegar sagður vera eini eig­andi þess í Panama-skjöl­unum á meðan fyr­ir­tækið er tengt Björgólfi Guð­munds­syni í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis. Í skýrsl­unni eru skuldir Eddu Printing and Publ­is­hing Limited hins vegar sagðar vera „0“ krónur en ekki ríf­lega fjórir millj­arðar króna eða meira með vöxtum og drátt­ar­vöxtum. Heim­ild­ar­maður Stund­ar­innar seg­ist ekki hafa neina hug­mynd um hvert pen­ing­arnir sem runnu inn í félagið í Lands­bank­anum fóru.

 

Bankinn reyndi að fá lánið endurgreitt

Eftir hrun Lands­banka Íslands árið 2008 lentu starfs­menn Mossack Fonseca í veru­legum vand­ræðum vegna Edda Printing and Publ­is­hing Limited þar sem slita­stjórn Lands­bank­ans reyndi að gera stjórn­ar­menn félags­ins, sem voru bara leppar sem sátu í stjórnum fjöl­margra ann­arra skatta­skjóls­fé­laga, per­sónu­lega ábyrga fyrir lán­unum sem Lands­bank­inn í Lúx­em­borg hafði veitt til félags­ins. Lands­bank­inn sendi bréf og bað um end­ur­greiðslu lán­anna í árs­byrjun 2012. Mossack Fonseca lét lög­manns­stofu á Tortólu meðal ann­ars vinna fyrir sig grein­ar­gerð um hugs­an­lega skaða­bóta­skyldu stjórn­enda félags­ins þar sem nið­ur­staðan var að sýna þyrfti fram á ógjald­færni félags­ins þegar lánin voru veitt til að stjórn­ar­menn­irnir yrðu dregnir til ábyrgðar. 

3.6 milljarða lán kemur fram
3.6 millj­arða lán kemur fram Í Pana­ma­gögn­unum er meðal ann­ars að finna upp­lýs­ingar um 3.6 millj­arða lán sem félagið Edda Printing and Publ­is­hing Limited á Tortólu fékk frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg. Björgólfur Guð­munds­son og Magnús Þor­steins­son voru pró­kúru­hafar félags­ins.

Mossack Fonseca var á þessum tíma ekki í neinum sam­skiptum við þá Magnús Þor­steins­son og Björgólf Guð­munds­son út af Eddu Printing and Publ­is­hing Limited en lög­mann­stofan reyndi hins vegar að hafa sam­band við þá út af félag­inu. Þegar þær til­raunir skil­uðu ekki árangri brá lög­manns­stofan á það ráð að láta stjórn­ar­menn­ina í félag­inu segja sig úr stjórn þess til að reyna að lág­marka ábyrgð og aðkomu stof­unnar að þessu félagi og lán­veit­ingum þess. Sömu sögu er að segja um öll önnur félög sem Lands­bank­inn í Lúx­em­borg hafði stofnað í gegnum Mossack Fonseca.

Á end­anum fór það svo að slita­stjórn Lands­bank­ans fór ekki með mál Eddu Printing and Publ­is­hing fyrir dóm til að fá skaða­bætur frá Mossack Fonseca og fékk því aldrei neitt upp í kröfu sína á hendur Eddu Printing and Publ­is­hing Limited. Ekkert er hins vegar vitað hvað varð um pen­ing­ana sem félagið fékk að láni frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg og Björgólfur Guð­munds­son sá sér ekki fært að veita Stund­inni við­tal. 

Panama­skjölin veita því áður óþekktar upp­lýs­ingar um þetta félag sem teng­ist Björgólfi Guð­munds­syni og Magnúsi Þor­steins­syni líkt og gögnin veita nýjar upp­lýs­ingar um áður­nefnt félag, Ranpod Limited. 

„Við­skipta­vin­ur­inn  er mjög þekktur og umsvifa­mik­ill millj­arða­mær­ingur, hann  á fót­bolta­fé­lagið West Ham United“

Ýtti á eftir Mossack Fonseca á „tíu mínútna fresti“

Starfs­menn Mossack Fonseca voru tregir til að veita Björgólfi Guð­munds­syni pró­kúr­u­m­boð fyrir Ranpod Limited, eins og áður segir. Í áður­nefndum tölvu­pósti á milli starfs­manna lög­manns­stof­unnar í lok októ­ber 2008 kom fram að Björgólfur hefði verið tengdur við efna­hags­brot - Haf­skips­málið - og þurftu þeir að taka ákvörðun um hvort þeir vildu veita honum umboð til að stýra eignum félags­ins. Höf­uð­stöðvar Mossack Fonseca í Panama voru á end­anum beðnar um að taka lokákvörðun í mál­inu.

Frægð Björg­ólfs virð­ist svo spila inn í þá ákvörðun Mossack Fonseca að veita honum prók­uru­um­boðið og segir meðal ann­ars í einum tölvu­póst­inum í byrjun nóv­em­ber 2008: „Við­skipta­vin­ur­inn [Björgólfur Guð­munds­son] er mjög þekktur og umsvifa­mik­ill millj­arða­mær­ingur, hann á á fót­bolta­fé­lagið West Ham United! Vin­sam­leg­ast haldið áfram með þessa vinnu.“

Ákvörð­unin dróst hins vegar þar til þann 10. nóv­em­ber árið 2008 og virð­ist Björgólfur Guð­munds­son hafa verið orð­inn óþreyju­fullur og lang­eygur eftir nið­ur­stöðu því þann 7. nóv­em­ber 2008 skrif­aði starfs­maður Mossack Fonseca í London eft­ir­far­andi orð í tölvu­pósti til Mossack Fonseca á Bresku Jóm­frú­areyjum. „Þetta mál er orðið ákaf­lega aðkallandi. Við verðum að vita hvort þið ætlið að und­ir­rita pró­kúr­u­m­boðið í dag þar sem við­skipta­vin­ur­inn hringir á tíu mín­útna fresti,“ segir í tölvu­póst­inum. Eitt af því sem sann­ar­lega vekur athygli  er að Björgólfur Guð­munds­son var ekki eig­andi félags­ins heldur dóttir hans en samt var það ekki hún sem ýtti á eftir því að gengið yrði frá pró­kúr­u­m­boði fyrir Björg­ólfs­feðga yfir félag­inu.

Björgólfur þekktur milljarðamæringur
Björgólfur þekktur millj­arða­mær­ingur Frægð Björg­ólfs Guð­munds­sonar, meðal ann­ars eign­ar­hald hans á enska knatt­spyrnu­lið­inu West Ham, gerði það að verkum að starfs­mönnum Mossack Fonseca þótti auð­veld­ara að veita honum pró­kúr­u­m­boð yfir Tortólu­fé­lagi rétt eftir banka­hrunið 2008. Hann sést hér með Eggerti Magn­ús­syni

Þremur dögum síðar, þann 10. nóv­em­ber 2008, var und­ir­ritað skjal þar sem bæði Björgólfur Thor og Björgólfur Guð­munds­son fengu pró­kúru­um­boð yfir þessu félagi sem skráð var sem eign Bentínu Björg­ólfs­dóttur. Sama dag var und­ir­ritað skjal fyrir Ranpod Limited frá Barclays bank­anum í Sviss þar sem þeim Björg­ólfs­feðgum var veitt heim­ild til að stýra eignum félags­ins í bank­anum.Yfir­skrift skjals­ins er „pró­kúr­u­m­boð fyrir eigna­stýr­ingu fyrir hönd þriðja aðila“.

Björgólfur Guð­munds­son var spurður út í Ranpod Limited í einni af spurn­ing­unum sem sendar voru til hans í gegnum milli­lið. Hann vildi hins vegar ekki veita Stund­inni við­tal og svar­aði ekki spurn­ing­unum skrif­lega. Þess vegna er ekki hægt að full­yrða neitt um af hverju honum lá svo á að fá pró­kúr­u­m­boð fyrir Ranpod Limited.

Félagi Novator veitt rúmlega 660 milljóna króna lán

Eitt af því sem vekur tals­verða athygli við félagið Ranpod Limited er að Evelyn Bentína Björg­ólfs­dóttir hefur hingað til ekki verið þekkt fyrir að stunda fjár­fest­ingar. Raunar hafa aldrei verið sagðar fréttir þess efnis í gegnum árin að hún hafi stundað fjár­fest­ingar með föður sínum og bróður og er hún titluð sem „heima­vinn­andi“ á umsókn­ar­eyðu­blaði til Barclays bank­ans í Sviss sem er að finna í Panama­skjöl­unum. Evelyn Bentína var samt sem áður skráður eig­andi og pró­kúru­hafi þessa félags á Tortóla sem opn­aði banka­reikn­ing og banka­hólf í Sviss um það leyti sem íslensku við­skipta­bank­arnir hrundu um haustið 2008.

Eitt af því sem félagið gerði áður en Björgólfur Thor og Björgólfur eldri fengu pró­kúr­u­m­boð yfir því var að lána fjórar millj­ónir evra, 664 millj­ónir króna, til dótt­ur­fyr­ir­tækis fjár­fest­ing­ar­fé­lags Björg­ólfs Thors í Finn­landi. Félagið var eitt af dótt­ur­fé­lögum fjár­fest­ing­ar­fé­lags Björg­ólfs Thors, Novators, og heitir Novator Finland OY. Lánið var veitt þann 9. októ­ber árið 2008 sam­kvæmt lána­samn­ingi sem er að finna í Panama­skjöl­unum.

Frekari lán­veit­ingar, eða gögn um útstreymi fjár frá Ranpod eða tekin lán, er ekki að finna í Pana­ma­gögn­unum. Tekið skal fram að ekki þurfti aðkomu Mossack Fonseca að milli­færslum af banka­reikn­ingi félags­ins þar sem þeir sem höfðu pró­kúru­um­boð yfir félag­inu höfðu heim­ild til að stýra þeim. Í Pana­ma­gögn­unum er ein­göngu að finna gögn þar sem eig­endur eða stjórn­endur aflands­fé­lags þurfti að fá sam­þykki stjórn­ar­manna félags­ins í gegnum Mossack Fonseca. Slíkt sam­þykki þurfti meðal ann­ars þegar félag tók eða veitti lán.

Stjórnun félagsins færð frá Seychelles til Gambíu í fyrra

Miðað við gögnin frá Mossack Fonseca er félagið Ranpod Limited ennþá virkt. Í árs­byrjun 2012 sendi Mossack Fonseca und­ir­ritað skjal merkt Evelyn Bentínu Björg­ólfs­dóttur þar sem fram kom að hún leigði banka­hólfið í Barclays bank­anum í Sviss sem hlut­hafi Ranpod Limited. Annað skjal frá miðju ári árið 2014 sýnir að Evelyn Bentína var þá sagður vera eini hlut­hafi þess.

Þá var skipt um stjórn­ar­menn, eða öllu heldur stjórn­ar­fé­lög, í Ranpod Limited í októ­ber í fyrra sam­kvæmt tölvu­pósti í Panama­skjöl­unum. Félögin tvö á Seychelles-eyjum, Gudson Limited og Roselle Limited, hættu þá að vera stjórn­ar­menn félags­ins og í stað­inn sett­ust fyr­ir­tækin Glais­dale Limited og Newcombe Limited í Gambíu í Afríku í stjórn þess sam­kvæmt gögn­unum. Þessi skjöl eru þau síð­ustu og þau nýj­ustu sem er að finna um Ranpod Limited í Pana­ma­gögn­unum. 

Um er að ræða fyrstu félögin í Gambíu sem blaða­maður kemur auga á í Panama­skjöl­unum enda er til­tölega stutt síðan landið byrj­aði að bjóða upp á aflands­þjón­ustu. Í frétt breska blaðs­ins The Economist frá því í ágúst 2013 sagði að Gambía væri að reyna að verða aflands­svæði og að þá þegar væru „nokkur hund­ruð“ félög skráð þar. Í The Economist sagði hins vegar að erfitt gæti verið fyrir ný lönd eins og Gambíu að hasla sér völl sem aflands­svæði þar sem ein­ungis fjögur ný lönd hefðu náð að gera það frá seinna hluta níunda ára­tug­ar­ins: Mauritius, Seychelles-eyjar, Belize og Samoa-eyjar. 

Skiptastjóri Björgólfs: Þrjú eða fjögur félög voru undir

Í gögnum Mossack Fonseca um Ranpod Limited er ekk­ert sem bendir til að pró­kúru­um­boð Björg­ólfs Guð­munds­sonar og Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar yfir félag­inu hafi verið aft­ur­kallað og það er ekk­ert sem bendir til þess að Evelyn Bentína Björg­ólfs­dóttir sé ekki eig­andi félags­ins ennþá. Félagið var ennþá skráð og virkt hjá Mossack Fonseca í fyrra­haust.

Eins og komið hefur fram opin­ber­lega þá var bú Björg­ólfs Guð­munds­sonar tekið til gjald­þrota­skipta eftir hrunið 2008 og var Sveinn Sveins­son lög­maður skip­aður skipta­stjóri þess. Í Panama­skjöl­unum er að finna tölvu­pósta og önnur gögn frá Sveini þar sem hann reynir að spyrj­ast fyrir um félög sem tengj­ast Björgólfi Guð­munds­syni hjá Mossack Fonseca. Sveinn segir að um hafi verið að ræða spurn­ingar um félög sem tengd­ust Björgólfi eldri. „Þetta voru þrjú eða fjögur félög sem voru skráð með eignir og banka­reikn­inga í gegnum Lands­bank­anum í Lúx­em­borg. Lands­bank­inn, þrota­búið, hirti þetta allt saman. Ég komst aldrei yfir þetta því Lands­bank­inn taldi sig vera með alls­herj­ar­veð í öllum eignum Björg­ólfs þarna. Þannig að búið fékk ekki neitt út úr þessu.“ Sveinn seg­ist hafa fengið upp­lýs­ingar um tengsl Björg­ólfs eldri við þessi félög frá þrota­búi Lands­bank­ans í Lúx­em­borg þar sem banka­reikn­ingar þeirra hafi verið tengdir Björgólfi. 

Sveinn segir að hann kann­ist ekki við nafnið Ranpod Limited og segir að það félag hafi ekki verið hluti af upp­gjöri þrota­bús Björg­ólfs Guð­munds­sonar. Ranpod Limited var heldur ekki í við­skiptum við Lands­bank­ann í Lúx­em­borg heldur við Barclays bank­ann í Sviss og því geta upp­lýs­ingar um það félag ekki hafa komið frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg líkt og upp­lýs­ing­arnar sem Sveinn fékk um félag Björg­ólfs í þeim banka. Þó Björgólfur hafi ekki verið skráður eig­andi félags­ins þá var hann með pró­kúr­u­m­boð fyrir það og gat ráð­stafað eignum þess þar af leið­andi. Félögin sem tengj­ast Björgólfi í Pana­ma­gögn­unum eru miklu fleiri en þrjú eða fjögur, þó hann hafi kannski ekki verið skráður sem eig­andi þeirra.

Eitt stærsta einstaklingsgjaldþrot sögunnar

Skiptum á þrota­búi Björg­ólfs Guð­munds­sonar lauk í maí árið 2014. Rúmlega 85 millj­arða króna kröfum var lýst í búið og voru um 80 millj­óna króna eignir í því. Um er að ræða eitt stærsta gjald­þrot ein­stak­lings í heim­inum. Vinnan við upp­gjör þrota­bús­ins kost­aði um 45 millj­ónir króna og runnu því 35 millj­ónir króna til kröfu­hafa. 

Einn af stærri kröfu­höf­unum í þrotabú Björg­ólfs var félagið Rainwood S.A., sem skráð er Bresku Jóm­frú­areyjum, en þrotabú Lands­bank­ans lýsti 2,3 millj­arða króna kröfu í bú Björg­ólfs fyrir hönd þess. Þetta félag er í Panama­skjöl­unum og er meðal ann­ars að finna lána­samn­ing í gögn­unum á milli þess og Lands­bank­ans í Lúx­em­borg upp á rúm­lega 2.5 millj­arða króna. Samkvæmt Pana­ma­gögn­unum var Björgólfur Guð­munds­son sjálfur með pró­kúru­um­boð fyrir þetta félag sem hann fékk í mars árið 2004. Í bréfi sem Björgólfur Guð­munds­son sendi til Hér­aðs­dóms Reykja­víkur árið 2009 kom fram að hann hefði verið í per­sónu­legum ábyrgðum vegna skulda Rainwoos S.A. upp á 2.3 millj­arða króna og skýrir það kröf­una sem Lands­bank­inn gerði í bú hans fyrir hönd Rainwood S.A. Þá var Björgólfur í per­sónu­legum ábyrgðum fyrir rúm­lega 19 millj­arða króna við þrotabú Lands­bank­ans í Lúx­em­borg út af skuldum eign­ar­halds­fé­lags­ins Samson Global Holdings í Lúx­em­borg. 

Skuldauppgjör Björgólfs Thors: Hvað var undir?

Þó Björgólfur Thor sé aftur orð­inn rík­asti maður lands­ins þá lá alls ekki ljóst fyrir strax eftir hrunið árið 2008 að svo yrði. Björgólfur Thor gekk frá umfangs­miklu skulda­upp­gjöri við kröfu­hafa sína árið 2014 en vinna við upp­gjörið hafði þá staðið yfir frá árinu 2010. Samkvæmt til­kynn­ingu frá Björgólfi Thor um skulda­upp­gjörið nam heild­ar­fjár­hæðin sem greidd var til inn­lendra og erlendra lán­ar­drottna í upp­gjör­inu um 1200 millj­ónum króna. Í því upp­gjöri runnu ýmsar per­sónu­legar eignir Björg­ólfs til lán­ar­drottna, eins og til dæmis sum­ar­hús á Þing­völlum, snekkja, hús í Reykja­vík og einka­þota. Umrædd einka­þota af gerð­inni 1999 Bombar­dier Challenger var í eigu Tortóla­fé­lags Björg­ólfs Thors, BeeTeeBeeLimited, og var fjár­mögnuð af breska Barclays bank­anum með láni upp á 14,4 millj­ónir banda­ríkja­doll­ara árið 2005 sam­kvæmt lána­samn­ingum sem er að finna í Panama­skjöl­unum. Ein­hverjar eignir í eigu félaga í skatta­skjólum voru því sann­ar­lega undir í skulda­upp­gjöri Björg­ólfs Thors en meðal þess sem hann samdi um að halda var húsið á Frí­kirkju­vegi 11 sem langafi hans, Thor Jensen, byggði en það er einnig í eigu BeeTeeBee Limited, líkt og einka­þotan var, í gegnum annað félag á Íslandi.

Þegar skulda­upp­gjörið var kynnt árið 2014 sagði Björgólfur Thor í til­kynn­ingu að hann hefði í skulda­upp­gjör­inu veitt aðgang að öllum banka­reikn­ingum sínum og félaga sinna nokkur ár aftur í tím­ann: „Um 100 manna her lög­fræð­inga, end­ur­skoð­enda og ann­arra sér­fræð­inga vann að skulda­sam­komu­lag­inu. Ég lagði allar eignir mínar undir. Þá fengu lán­ar­drottnar aðgang að öllum banka­reikn­ingum mínum og allra félaga minna nokkur ár aftur í tím­ann og gátu þannig gengið úr skugga um að engar eignir voru und­an­skildar. Sú rann­sókn­ar­vinna erlendra sér­fræð­inga (forensic accounting) stóð í tæpt eitt og hálft ár og lauk í apríl 2012. Ég full­yrði að svo gagnsæ vinnu­brögð hafa ekki verið við­höfð í upp­gjörs­málum neinna ann­arra í íslenska banka­kerf­inu.“

Þetta svar Björg­ólfs Thors var efn­is­lega sam­hljóða svari Ragn­hildar Sverr­is­dóttir, tals­konu hans, í DV árið 2010 en þá fjall­aði blaðið um það að hann hefði losað um eignir í sam­eign­ar­sjóðum í skatta­skjólum eins og Jersey á Ermar­sundi. Ragn­hildur sagði þá að Björgólfur Thor hefði ekki und­an­skilið neinar eignir í skulda­upp­gjöri sínu.  „Nei. Svo er ekki vegna þess að Björgólfur Thor los­aði um þessar eignir og sam­komu­lag náð­ist.“ 

Umfang við­skipta Björg­ólfs Thors í gegnum félög í skatta­skjólum er hins vegar afar mikið eins og Pana­ma­gögnin sýna. Enginn annar aðili getur stað­fest þau orð Björg­ólfs Thors að öll félög erlendis sem hann teng­ist hafi sann­ar­lega verið undir í skulda­upp­gjöri hans árið 2014. Þá liggur fyrir að hann hafði pró­kúr­u­m­boð fyrir félag í skatta­skjóli sem ekki var skráð sem eign hans.

Aflandsnet Novator og Björgólfsfeðga
Aflands­net Novator og Björg­ólfs­feðga Um það bil fimm­tíu félög tengj­ast beint Björg­ólfs­feðgum eða fjár­fest­inga­fé­lag­inu Novator, sem er í beinu við­skipta­sam­bandi við Mossack Fonseca. Þetta net sýnir skráða eig­endur félag­anna. Það gefur þó aðeins hálfa mynd því til við­bótar eru svo útgefnar pró­kúrur sem jafn­gilda því í raun að vera eig­andi.

Óvissa þrátt fyrir gögn

Þrátt fyrir að fyrir liggi gögn um pró­kúru­um­boð Björg­ólfs­feðga fyrir Ranpod Limited, að félagið hafi verið virkt í fyrra og að fyr­ir­tækið hafi meðal ann­ars verið notað í lána­við­skiptum við fyr­ir­tæki í Finn­landi sem tengt er Björgólfi Thor þá er ekki hægt að full­yrða neitt um eignir þess út frá Panama­skjöl­unum. Einu gögnin sem þar er að finna eru  skjöl sem fylla þurfti út í gegnum Mosssack Fonseca. Ekki er að finna yfir­lit yfir milli­færslur til og frá félag­inu síð­ast­liðin ár svo dæmi sé tekið. Því er ekk­ert hægt að full­yrða neitt um eignir félags­ins en ljóst er að félagið var bæði með banka­hólf og banka­reikn­ing hjá Barclays-bank­anum í Sviss. Ef þeir aðilar sem voru, og hugs­an­lega eru, með pró­kúru­um­boð yfir félag­inu - Björgólfur Thor Björg­ólfs­son og Björgólfur Guð­munds­son - hafa notað félagið með öðrum hætti þá sjást þess ekki merki í Panama­skjöl­unum því eig­endur og stjórn­endur aflands­fé­laga þurfa ekki að fara í gegnum þá aðila sem halda utan um félögin í hvert skipti sem þeir nota þau. 

Þess vegna þarf frek­ari upp­lýs­ingar um félagið til að getað sagt frá fleiri atriðum í starf­semi þess. Stundin sendi þeim Björgólfi Guð­munds­syni og Björgólfi Thors Björg­ólfs­syni spurn­ingar um starf­semi aflands­fé­laga sem tengj­ast þeim, meðal ann­ars um til­gang stofn­unar Ranpod Limited en Björgólfur Thor vill ekki veita upp­lýs­ingar um það, eins og áður segir. Engin svör bár­ust frá Björgólfi Guð­munds­syni.

Fríkirkjuvegurinn og þotan í skattaskjóli
Frí­kirkju­veg­ur­inn og þotan í skatta­skjóli Björgólfur Thor Björg­ólfs­son er sá fjár­festir sem átti í hvaða umsvifa­mestum viskiptum í skatta­skjólum í gegnum Lands­banka Íslands, bank­ann sem hann var ráð­andi hlut­hafi í. Meðal eigna sem hann átti í gegnum skatta­skjól voru hús langafa hans að Frí­kirkju­vegi 11 og stein­grá einka­þota.

315 milljóna króna arður frá Tortólafélagi

Enn annað lán í Panama­skjöl­unum sem vekur mikla athygli er eins millj­arðs króna lán­veit­ing Lands­bank­ans í Lúx­em­borg til félags­ins Brimöldu Capital Limited á Tortólu upp á 1.1 millj­arð króna. Björgólfur Guð­munds­son var annar af pró­kúru­höfum félags­ins ásamt Þór Krist­jáns­syni. Lánið var veitt í skrefum á árunum 2006 til 2007. Í gögn­unum kemur fram að Þór Krist­jáns­son hafi verið „einn af hlut­höfum“ félags­ins á árunum fyrir hrunið. Ekki er getið um aðra hlut­hafa félags­ins en ljóst er að þeir voru fleiri þar sem orða­lagið í gögn­unum er þannig. Þór var auk þessi ekki eini pró­kúru­hafi félags­ins heldur var Björgólfur Guð­munds­son það líka.  Í gögn­unum kemur fram að á árunum 2004 til 2008 hafi félagið greitt út 315 millj­óna króna arð til Þórs Krist­jáns­sonar. 

Félagið borg­aði aldrei 1.1 millj­arðs króna lánið til Lands­bank­ans í Lúx­em­borg og í júní árið 2013 var félagið sett í þrot af dóm­stól á Bresku Jóm­frú­areyjum þar sem það var ógjald­fært.  Gjald­þrota­úr­skurð­ur­inn var að beiðni slita­stjórnar Lands­bank­ans og er í dóms­skjöl­unum að finna yfir­lýs­ingu frá starfs­manni slita­stjórn­ar­innar, Herdísi Hall­mars­dóttur, um skuldir og ógjald­færni félags­ins. 

Ekkert í gögn­unum bendir til að Þór Krist­jáns­son hafi end­ur­greitt félag­inu þann arð sem hann tók út úr því. Þá er heldur ekk­ert í gögn­unum um það hvort hinir hlut­hafar félags­ins, sama svo sem hverjir þeir voru, hafi fengið við­líka arð­greiðslur og Þór.  Ljóst er hins vegar að félagið var eigna­laust árið 2013 og var í kjöl­farið sett þrot.

Hver er heild­ar­myndin sem blasir við af umsvifum Björg­ólfs­feðga í skatta­skjólum eftir lest­ur­inn á gögn­unum frá Mossack Fonseca? Hún er meðal ann­ars sú að ótrú­legar upp­hæðir, tugir millj­arða króna, runnu frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg til tuga félaga þeim tengdum og að nær óger­legt er að rekja slóð fjár­mun­anna til hlítar. Sum lánin voru auð­vitað end­ur­greidd eins og vera bar á meðan önnur voru það ekki. Jafn­framt er óger­legt að full­yrða nokkuð um hvaða eignir voru inni í þeim félögum sem tengd­ust þeim í til­fellum þar sem engar upp­lýs­ingar er að finna um eigna­stöðu þeirra. Hvað varð um alla þessa pen­inga á end­anum er svo ómögu­legt að segja en Panama­skjölin varpa áður lítt þekktu ljósi á mörg við­skipti feðganna og aðila þeim tengdum við Lands­bank­ann í Lúx­em­borg.

Spurningar og svör

Spurningar Stundarinnar til Björgólfs Thors og svör hans.

  1. Af hverju stofn­aði og not­aði Björgólfur Thor svo mikið af félögum í skatta­skjólum á árunum fyrir hrunið 2008?
    Björgólfur Thor hefur í um ald­ar­fjórð­ung stundað við­skipti víða um heim og þetta form félaga var ein­falt og skil­virkt.  Í mörgum til­vikum kröfð­ust bankar þess að slík félög væru stofnuð þar sem mun auð­veld­ara var fyrir þá að ganga á veð ef slíkt þurfti og því var aukið öryggi fyrir fjár­mála­stofn­anir að hafa félögin á þessum lands­svæðum. Raunin var sú að stofnað var félag um hvert fjár­fest­ing­ar­verk­efni fyrir sig. Þau verk­efni voru í ýmsum löndum og stundum í sam­starfi við aðra alþjóð­lega fjár­festa. Á margræddum aflandseyjum er breskt lagaum­hverfi, svo allir vissu að hvaða reglum þeir gengu. Þá er rétt að taka fram, þar sem félög af þessu tagi eru oft tengd við skattaund­an­skot, að skattar eru að sjálf­sögðu greiddir af fjár­fest­ing­unum þar sem þær eru. Fái t.d. félag á Bresku jóm­frúreyjum arð frá íslensku félagi er greiddur skattur af arð­inum á Íslandi. Fjár­fest­ing­arnar sjálfar eru þannig „on-shore“.
  2. Voru öll þessi félög tengd Björgólfi Thor í lána­gögnum Lands­banka Íslands, voru Björgólfur Thor og þau tengdir aðilar? Ég sé ekki öll þessi félög í skýrslu RNA.
    Nú er ekki ljóst til hvaða félaga þú vísar þegar þú ritar „öll þessi félög“. En listi yfir tengda aðila lá fyrir í Lands­bank­anum. Bankanum var kunn­ugt um eign­ar­hald í öllum þeim félögum sem tengd­ust Björgólfi Thor og rétt er að halda til haga að „Novator“ kom fram í heitum margra þeirra.  Það kemur hins vegar ekk­ert á óvart ef þú hefur rek­ist á gloppur í skýrslu RNA!
  3. Hver urðu afdrif lán­anna frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg til félag­anna? 
    Björgólfur Thor átti miklar inni­stæður í Lands­bank­anum Lúx fyrir hrun og var stærsti ein­staki kröfu­hafi bank­ans. Öll lánin voru gerð upp.
  4. Eftir hrun Lands­bank­ans tekur Novator sjálft yfir sem við­skipta­vinur, „client“ Mossack Fonseca, áður hafði það verið Lands­bank­inn. Af hverju var þetta gert með þessum hætti?
    Af því að Lands­bank­inn hætti að veita þessa þjón­ustu.
  5. Hvaða upp­lýs­ingar getur Björgólfur Thor veitt um félagið Ranpod Limited. Hvaða starf­semi var inni í því félagi, af hverju var það stofnað og hver á það? Hver urðu afdrif þess félags?
    Þetta félag er ekki og hefur aldrei verið í eigu Björg­ólfs Thors og hann getur því ekki veitt neinar upp­lýs­ingar um það.
  6. Hversu umfangs­mikil við­skipti á Björgólfur Thor í gegnum félag á lág­skatta­svæðum um þessar mundir? Mörg þeirra félaga sem koma fyrir í Panama­skjöl­unum eru ennþá í notkun, meðal ann­ars BeeTeeBee.
    Umsvif á þessum svæðum hafa minnkað veru­lega frá því fyrir hrun. Fjöldi félaga hefur alltaf verið breyti­legur eftir við­skiptum á hverjum tíma.
  7. Hvaða skoðun hefur Björgólfur Thor á notkun fyr­ir­tækja í skatta­skjólum og á lág­skatta­svæðum?
    Félög af þessu tagi hafa verið sjálf­sagður hluti af alþjóð­legum við­skiptum, auð­veldað slík við­skipti vegna gagn­sæs lagaum­hverfis og lág­markað kostnað. Björgólfur Thor og fyr­ir­tæki hans fara eftir þeim lögum og reglum sem gilda um slík félög. Þeir sem nýta slík félög í ann­ar­legum til­gangi verða að taka afleið­ingum þess.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Sæmarksstjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti
Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
Fengu fjölskyldumálverk í hendurnar eftir umfjöllun Stundarinnar
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár