Framsókn með mesta fjárhagslega hagsmuni af seinkun kosninga

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur aðeins smá­vægi­lega fjár­hags­lega hags­muni af því að kosið verði á næsta ári frekar en í haust. Skuldar 257 millj­ónir sam­kvæmt nýjasta árs­reikn­ingi en er með jákvæða eigna­stöðu.

Framsókn með mesta fjárhagslega hagsmuni af seinkun kosninga

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er sá stjórn­mála­flokkur sem hefur mesta fjár­hags­lega hags­muni af því að kosið verði á næsta ári frekar en í haust. Rík­is­styrkir til stjórn­mála­flokka mið­ast við þing­styrk hverju sinni og eru greiddir út í byrjun febr­úar. Skemmst er að minn­ast þess að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vann sögu­legan kosn­inga­sigur árið 2013 og fékk 19 þing­sæti. Skoð­ana­kann­anir und­an­far­inna vikna benda hins vegar til þess að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn muni glata meiri­hluta þing­sæta sinna í næstu kosn­ingum. Fari svo mun flokk­ur­inn tapa tugum millj­óna á næsta ári vegna þeirrar ákvörð­unar að flýta kosn­ingum. Á þetta hefur Kvenna­blaðið bent í umfjöllun um málið en sam­kvæmt árs­reikn­ingi skuldar Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn rúmar 257 millj­ónir. Þegar á heild­ina er litið er því ekki um háar upp­hæðir að ræða fyrir fjár­hag flokks­ins.

Sigurður Ingi og BjarniKomu með yfir­lýs­ingu um kosn­ingar í haust í tröppum alþing­is­húss­ins.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fleiri þing­menn flokks­ins, telja að ekki þurfi að standa við fyr­ir­heitin um haust­kosn­ingar sem gefin voru eftir að Sig­mundur Davíð lét af emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra. Í kjöl­far umfjöll­unar um aflands­fé­lög Íslend­inga í apríl mót­mæltu tugir þús­unda Íslend­inga á Aust­ur­velli og kröfð­ust afsagnar rík­is­stjórn­ar­innar. Til að bregð­ast við þessu lof­uðu Sigurður Ingi Jóhanns­son, nýr for­sæt­is­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að kosið yrði í haust. Enn virð­ast vera skiptar skoð­anir um þessa lend­ingu innan þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Sig­mundur Davíð sagði nýlega í við­tali við RÚV að í raun og veru hefði rík­is­stjórnin ekki lofað því að flýta kosn­ingum; orða­lagið „stefnt sé að“ væri lyk­il­at­riði í þessum efnum. Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­maður flokks­ins, gagn­rýndi Sigmund í kjöl­farið og sagði hann útspil for­manns­ins til þess eins fallið að setja „allt í upp­lausn“. Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar krefj­ast þess að gefin verði út dag­setn­ing fyrir kosn­ingar, en Sig­mundur Davíð telur að það væri „frá­leitt“ enda eigi enn eftir að ljúka mik­il­vægum verk­efnum og óljóst sé hvort það tak­ist fyrir kosn­ingar í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármál stjórnmálaflokka

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár