Trump: Þegar símatími útvarpsstöðvanna tekur völdin?

Trump kemur ekk­ert svo mikið á óvart ef maður hefur hlustað á síma­tíma banda­rískra syst­ur­stöðva Útvarps Sögu, útvarps­stöðva sem byggja dag­skrár­gerð sína á stjórn­mála­um­ræðu og síma­tímum hlust­enda.

Trump: Þegar símatími útvarpsstöðvanna tekur völdin?

Ein af áleitn­ustu spurn­ingum kosn­inga­bar­átt­unnar í Banda­ríkj­unum hefur verið hvað skýri vel­gengni Donald Trump og hvernig eigi að skilja fram­boð hans. Trump er ein­fald­lega of óvenju­legur, of langt fyrir utan það sem banda­rískir kjós­endur eiga að venj­ast í for­seta­kosn­ingum til að stjórn­mála­skýrendur geti með góðu móti stað­sett hann.

Gaspur og stóryrði

Það getur verið erfitt að átta sig á Donald Trump ef maður reynir að greina hann sem stjórn­mála­mann. Hegðu hans er alger­lega á skjön við það sem við eigum að venj­ast frá hefð­bundnum stjórn­mála­mönnum, hvað þá for­ystu­mönnum og for­seta­fram­bjóð­endum stóru flokk­anna í Banda­ríkj­unum. Frá fyrsta degi fram­boðs Trumps hefur hann staðið í linnu­lausum átökum við því sem næst hverja sem er, ekki aðeins póli­tíska and­stæð­inga eða mót­fram­bjóð­endur í próf­kjöri Repúblikana­flokks­ins, heldur einnig for­ystu­menn síns eigin flokks. Milli þess að gorta af eigin stór­feng­leik og afrekum hefur hann vaðið úr einu upp­hlaups­mál­inu í annað, ausandi sví­virð­ingum og móðg­unum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2016

ErlentForsetakosningar í BNA 2016

Berg­málið frá Hitler: Er Trump fas­isti?

Á dög­unum sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata, úr ræðu­stól á Alþingi að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti væri fas­isti. Óli Björn Kárason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins and­mælti því, og nokkrir aðrir sömu­leiðis. En fleiri hafa velt þessu fyrir sér og ekki aðeins hér á landi. Nýlega birti vef­síðan Slate við­tal sem blaða­mað­ur­inn Isaac Chotiner tók við breska sagn­fræð­ing­inn Richard Evans, þar sem einmitt var fjallað um hvort Trump væri á svip­uðum slóðum og fas­istar eða nas­istar líkt og Adolf Hitler.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár