Þorgrímur Þráinsson gagnrýnir mæður fyrir að vera á Facebook við brjóstagjöf

For­seta­fram­bjóð­and­inn og rit­höf­und­ur­inn Þor­grímur Þrá­ins­son gagn­rýnir mæður með ung­börn á brjósti fyrir að ein­beita sér að Facebook í stað þess að horfa í augu barns­ins meðan það drekkur.

Þorgrímur Þráinsson gagnrýnir mæður fyrir að vera á Facebook við brjóstagjöf
For­seta­fram­bjóð­andi Þor­grímur Þrá­ins­son rit­höf­undur skrif­aði meðal ann­ars bók­ina Hvernig gerir þú kon­una þína ham­ingju­sama?. Mynd: Wikipedia / Kristothorgrims

Þor­grímur Þrá­ins­son, sem hefur boðað fram­boð til emb­ættis for­seta Íslands, gagn­rýnir mæður fyrir að horfa ekki í augun á ung­börnum sem þær gefa á brjóst, heldur nota tím­ann á Facebook í stað­inn. Orð hans eru meðal ann­ars gagn­rýnd af rit­höf­und­inum Þórdísi Elvu Þor­valds­dóttur á þeim grund­velli að þau lýsi stjórn­semi karl­manns gagn­vart konum og að þau ýti undir órétt­mætt sam­visku­bit hjá nýbök­uðum mæðrum.

Móðirin á Facebook

Þor­grímur setti fram gagn­rýn­ina í þætt­inum Morg­un­út­gáf­unni á Rás 2: „Kona sem er í ung­barna­eft­ir­liti seg­ist vera að upp­lifa ákveðið til­finn­inga­rof milli móður og barns sem er á brjósti. Vegna þess að móð­irin er kannski að nota tím­ann á Facebook á sama tíma og hún er að gefa á brjóst.“

Þor­grímur útskýrði orð sín nánar í kjöl­far þess að útvarps­mað­ur­inn tók undir með honum með orð­unum „já, hugs­aðu þér“: „Já, þannig að þessi til­finn­inga­tengsl sem við þekkjum bara, að halda á barni í fang­inu, að vera ekki að horfa í augun á því sam­tímis, það rofnar eitt­hvað. Ég hef engar rann­sókn­ar­nið­ur­stöður á bak­við þetta, en þetta er mér sagt af mann­eskju sem er í ung­barna­eft­ir­liti.“

Sagður ráðskast með hvert konur horfa

Þórdís Elva Þor­valds­dóttir gagn­rýnir Þorgrím fyrir að fara yfir strikið með því að „ráðskast með hvert konur horfa á meðan þær sinna brjósta­gjöf“.

„Þar sem [Þor­grímur Þrá­ins­son] hefur ekki verið með barn á brjósti sjálfur þarf kannski að minna hann á að mörg börn eru með lokuð augun á meðan á þessu ferli stendur. Varla þurfum við vöku­staura á börnin til að tryggja „órofna teng­ingu“. Þá þurfa hvít­voð­ungar að fá brjóst á um það bil tveggja tíma fresti fyrsta skeið ævi sinnar. Mæðrum er inn­rætt að barnið eigi heimt­ingu á óskiptri athygli þeirra, bæði lík­am­lega og til­finn­inga­lega. Þetta er erfitt ferli sem útheimtir oft blóð, svita og tár allan sól­ar­hring­inn. Mæður þurfa allra síst á því að halda að vera guilt-tripp­aðar með svona hrút­skýr­ingum,“ skrifar Þórdís Elva í gagn­rýni sinni á Facebook.

 

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

SkoðunForsetakosningar 2016

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

11 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár