Þingmaður sakar listamenn um siðleysi, ógagnsæi og klíkuskap

Þing­mað­ur­inn Ásmundur Frið­riks­son átti frum­kvæði að sér­stakri umræðu um lista­manna­laun á Alþingi. Lista­manna­laun eru kjörnum full­trúum og gras­rót Sjálf­stæð­is­flokks­ins hug­leikin þessa dag­ana. Ingó veð­urguð ræddi við unga sjálf­stæð­is­menn um málið.

Í gær fór fram sér­stök umræða á Alþingi um lista­manna­laun að frum­kvæði Ásmundar Frið­riks­sonar þing­manns. Sakaði hann lista­menn um sið­leysi, klíku­skap og ógagn­sæi og kall­aði eftir því að þing­menn tækju sjálfir að sér úthlutun lista­manna­launa. Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hafn­aði ein­dregið hug­myndum Ásmundar og kom lista­manna­launum til varnar. Skiptar skoð­anir eru um lista­manna­laun innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en bæði kjörnir full­trúar og gras­rót flokks­ins hafa látið sig þau varða und­an­farna daga. 

„Það efast eng­inn sem þekkir mig um áhuga minn á menn­ingu og hvers konar listum. Ég er sjálfur virkur þátt­tak­andi sem áhuga­mynd­lista­maður og hef staðið fyrir stórum sem smáum lista- og menn­ing­ar­við­burðum ára­tugum saman og ber þá hæst lista­há­tíðin Ferskir vindar í Garði,“ sagði Ásmundur í upp­hafi ræðu sinnar um málið. Þá tók hann fram að það væri einmitt vegna menn­ing­ar­á­hug­ans sem hann hefði áhyggjur af því hvernig úthlutun lista­manna­launa væri háttað:

„Það er eðli­legt að þjóðin ræði hvernig staðið er að úthlutun lista­manna­launa. Er það til dæmis eðli­legt að stjórn Rit­höf­unda­sam­bands­ins velji úthlut­un­ar­nefnd­ina og síðan úthlutar sú stjórn allri sitj­andi stjórn rit­höf­unda­sam­bands­ins lista­manna­launum til tólf mán­aða og þannig hefur það verið jafn­vel árum saman?“ sagði Ásmundur og vís­aði svo til eins til­tek­ins lista­manns, rit­höf­und­ar­ins Andra Snæs Magna­sonar: „Dæmi hafa verið nefnd um í umræð­unni um rit­höf­und sem hefur þegið lista­manna­laun í níu ár en skilað litlu meira en einum bók­artitli á þeim tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Listamannalaun

MenningListamannalaun

Alls hljóta 251 ein­stak­lingar lista­manna­laun á næsta ári

Listi yfir þá sem fá úthlutað lista­manna­launum fyrir árið 2025 hefur verið birtur. Í heild er um að ræða 251 ein­stak­ling og verða launin 560.000 krónur á mán­uði. Alls sóttu 1.339 um launin, þar af 1.223 ein­stak­lingar og 116 sviðs­lista­hópar. Samkvæmt vef Stjórn­ar­ráðs­ins voru 1.720 mán­að­ar­laun úr átta launa­sjóðum til úthlut­unar. Þeir sjóðir voru: Hönnuða, mynd­list­ar­manna, rit­höf­unda, sviðs­lista­fólks, tón­list­ar­flytj­enda, tón­skálda,...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár