Þetta er fólkið sem fær hluta af milljarðaarðinum frá Sjóvá og VÍS

Stærstu hlut­hafar Sjóvár og VÍS eru líf­eyr­is­sjóðir, bankar og fjár­fest­inga­sjóðir en einnig ein­stak­lingar og eign­ar­halds­fé­lög. Fyr­ir­tækin tvö greiða út sam­tals átta millj­arða króna arð. Síld­ar­vinnslan, for­stjóri B&L, Árni Hauksson og Friðrik Hall­björn Karlsson, Steinunn Jóns­dóttir og óþekkt félag eru meðal þeirra sem fá arð­inn.

Þetta er fólkið sem fær hluta af milljarðaarðinum frá Sjóvá og VÍS
Fá mest Dótt­ur­fé­lag Síld­ar­vinnsl­unnar, sem er að stóru leyti í eigu Samherja, fær mestan arð út úr Sjóvá á eftir eign­ar­halds­fé­lagi Glitnis. Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri Samherja. Mynd: Haraldur Guðjónsson

Félag í eigu útgerð­ar­ris­ans Síld­ar­vinnsl­unnar frá Nes­kaups­stað fær 384 millj­óna króna arð­greiðslu út úr trygg­inga­fé­lag­inu Sjóvá ef stjórn félags­ins heldur þeirri hug­mynd sinni til streitu að borga hlut­höfum fyr­ir­tæk­is­ins út þriggja millj­arða króna arð á hlut­hafa­fundi fyr­ir­tæk­is­ins nú í mars. Arð­greiðslan er rúm­lega fjór­faldur hagn­aður Sjóvár í fyrra.  

Félag Síld­ar­vinnsl­unnar heitir SVN eigna­fé­lag ehf. og á það 12,18 pró­senta hlut í trygg­inga­fé­lag­inu. Síld­ar­vinnslan er svo aftur að stærstu leyti í eigu akur­eyska útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja, langstærsta útgerð­ar­fyr­ir­tækis á Íslandi sem ein­ungis er með um 1/3 hluta starf­semi sinnar á Íslandi. Þor­steinn Már Bald­vins­son er stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar og stærsti hlut­hafi Samherja ásamt frænda sínum Krist­jáni Vil­helms­syni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Arðgreiðslur

Einkarekið lækningafyrirtæki selt fyrir 850 milljónir eftir 585 milljóna arðgreiðslur til hluthafa
FréttirArðgreiðslur

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki selt fyrir 850 millj­ónir eftir 585 millj­óna arð­greiðslur til hlut­hafa

Bæði heil­brigð­is­ráð­herra og for­stjóri Sjúkra­trygg­inga eru mót­fallnar arð­greiðslum úr einka­reknum lækn­inga­fyr­ir­tækjum. Eigendur Lækn­is­fræði­legrar mynd­grein­ingar þurfa að taka minnst 100 millj­ónir á ári út úr rekstr­inum til að geta staðið í skilum eftir að hafa keypt fyr­ir­tækið á 850 millj­ónir króna. Sex læknar hafa fengið 180 millj­ónir króna á mann í arð og sölu­hagnað.
Ráðherra mótfallin arðgreiðslum úr heilbrigðisfyrirtækjum en hyggst ekki beita sér gegn þeim
FréttirArðgreiðslur

Ráðherra mót­fallin arð­greiðslum úr heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum en hyggst ekki beita sér gegn þeim

Nýr for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands hefur störf með látum og lýsir yfir and­stöðu við arð­greiðslur úr einka­reknum heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum. Heil­brigð­is­ráð­herra, Svandís Svav­ars­dóttir, er sam­mála því mati en hyggst ekki beita sér í mál­inu og bendir á að það sé ekki á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár