Þau kveðja í haust

Þrettán þing­menn hafa gefið það út að þau munu ekki sækj­ast eftir þing­sæti fyrir sinn flokk í næstu þing­kosn­ingum.

Þau kveðja í haust

Brynhildur Pétursdóttir – Björt framtíð

Bryn­hildur kom ný inn á þing vorið 2013 fyrir Bjarta fram­tíð og hefur verið for­maður þing­flokks­ins frá árinu 2015. Bryn­hildur hefur beitt sér á sviði sam­keppnis- og neyt­enda­mála, hvatt til vand­aðri starfs­hátta á Alþingi, svo sem við gerð fjár­laga, og gagn­rýnt rík­is­stjórn­ina við ýmis til­efni, til dæmis vegna skulda­nið­ur­fell­inga og geð­þótta­stjórn­sýslu við úthlutun styrkja. 

Einar K. Guðfinnsson – Sjálfstæðisflokkur

Í ár eru 25 ár síðan Einar tók fyrst sæti á Alþingi. Hann hefur verið sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og núna síð­ast for­seti Alþingis. Hans verður meðal ann­ars minnst fyrir að hafa leyft aftur hval­veiðar árið 2009.   

Frosti Sigurjónsson – Framsóknarflokkur

Frosti Sig­ur­jóns­son hefur ákveðið að hætta á þingi eftir ein­ungis eitt kjör­tíma­bil. Hann er for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar og leiðir nú vinnu sem miðar að því að skera upp herör gegn skatta­skjólum. Áður hafði hann látið hafa eftir sér að það væri full­kom­lega lög­legt að eiga eignir í erlendum aflandseyjum. 

Hanna Birna Kristjánsdóttir – Sjálfstæðisflokkur

Hanna Birna kom ný inn á þing eftir síð­ustu þing­kosn­ingar en var borg­ar­stjóri á árunum 2008–2010. Hún varð inn­an­rík­is­ráð­herra árið 2013 en sagði eft­ir­minni­lega af sér haustið 2014 í kjöl­far leka­máls­ins svo­kall­aða.

Helgi Hrafn Gunnarsson – Píratar

Helgi Hrafn tók sæti á Alþingi fyrir Pírata eftir síð­ustu kosn­ingar. Hann vakti meðal ann­ars athygli þegar hann rapp­aði í ræðu­stól í fyrra og verður meðal ann­ars minnst fyrir að hafa afnumið bann við guð­lasti. 

Katrín Júlíusdóttir – Samfylking

Katrín hefur setið á þingi frá árinu 2003. Hún var iðn­að­ar­ráð­herra á árunum 2009 til 2012 og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á árunum 2012 til 2013. Katrín vakti meðal ann­ars athygli þegar hún bað Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra afsök­unar á því að hafa kallað hann „hel­vítis dóna“ í ræðu­stóli. 

Kristján L. Möller – Samfylking

Kristján hefur setið á þingi frá árinu 1999. Hann var sam­göngu­ráð­herra árin 2007 til 2009 og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra árin 2009 og 2010. Þá sat hann í stjórn Vaðla­heið­ar­ganga hf. til árs­ins 2012, en síðar sama ár sam­þykkti Alþingi lán­veit­ingu til félags­ins.

Páll Jóhann Pálsson – Framsóknarflokkur

Páll Jóhann kom nýr inn á þing eftir síð­ustu þing­kosn­ingar. Páll Jóhann komst í fréttir á síð­asta ári þegar fyr­ir­tæki eig­in­konu hans var úthlutað 50 millj­óna króna mak­ríl­kvóta, en Páll Jóhann sat í atvinnu­vega­nefnd þings­ins og taldi sig ekki van­hæfan til að fjalla um mak­ríl­frum­varpið. 

Ragnheiður Ríkharðsdóttir – Sjálfstæðisflokkur

Ragn­heiður hefur setið á þingi frá árinu 2007. Hún var eini þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem sam­þykkti til­lög­una um að leggja inn aðild­ar­um­sókn hjá Evr­ópu­sam­band­inu árið 2009. Frá því hún til­kynnti að hún hygð­ist ekki gefa kost á sér í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir næstu kosn­ingar hefur Ragn­heiður verið sterk­lega orðuð við Viðreisn. Hún hefur ekki gefið afger­andi svör þegar hún er spurð um málið.

Róbert Marshall – Björt framtíð

Róbert sat á þingi fyrir Sam­fylk­ing­una árin 2009 til 2013 en fyrir Bjarta fram­tíð frá árinu 2013. Hann hefur meðal ann­ars lagt áherslu á umhverf­is­mál og var fyrsti flutn­ings­maður frum­varps um refs­ingar við nátt­úru­spjöllum árið 2012.

Sigrún Magnúsdóttir – Framsóknarflokkur

Sigrún tók í fyrsta sinn sæti á Alþingi árið 2013. Hún var for­maður þing­flokks fram­sókn­ar­manna á árunum 2013 til 2015 og hefur verið umhverfis- og auð­linda­ráð­herra frá árinu 2014. Athygli vakti þegar Sigrún tók afstöðu með ferli ramma­á­ætl­unar eftir að meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar lagði til að fjórir nýir virkj­un­ar­kostir yrðu færðir í nýt­ing­ar­flokk.   

Vigdís Hauksdóttir – Framsóknarflokkur

Vigdís hefur setið á þingi frá árinu 2009 og verið for­maður fjár­laga­nefndar frá árinu 2013. Ummæli Vigdísar hafa ósjaldan vakið athygli. Frægt er orðið þegar hún sagði Möltu vera sjálf­stjórn­ar­ríki innan stærra lands og þegar hún full­yrti að það væri hung­ursneyð í Evrópu. 

Ögmundur Jónasson – Vinstri hreyfingin - grænt framboð

Ögmundur fór fyrst inn á Alþingi sem þing­maður Alþýðu­banda­lags­ins árið 1995 en hefur setið á þingi fyrir Vinstri hreyf­ing­una - grænt fram­boð frá árinu 2003. Hann var heil­brigð­is­ráð­herra árið 2009, dóms­mála- og mann­réttinda­ráð­herra og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra 2010 og inn­an­rík­is­ráð­herra 2011–2013. Ögmundur vakti meðal ann­ars athygli þegar hann mót­mælti harð­lega gjald­töku við Geysi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár