Svona mun Trump breyta Bandaríkjunum og heiminum

Donald Trump ætlar að lækka fyr­ir­tækja­skatta veru­lega, afnema stuðn­ing Banda­ríkj­anna við aðgerðir gegn lofts­lags­málum, byggja upp her­inn og rýmka reglur um byssu­eign og sjálfs­vörn.

Svona mun Trump breyta Bandaríkjunum og heiminum
Donald Trump Varð óvænt for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: Joseph Sohm / Shutterstock

Stefna Donalds Trump, sem nú hefur verið kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna, getur breytt heim­inum.

Tímabil ein­angr­un­ar­hyggju og harðrar hægri­stefnu er hafið. Samkvæmt stefnu­skrá Trumps mun hann fram­fylgja íhalds­samri mark­aðs­hyggju, lækka skatta veru­lega, auka fram­lög til varn­ar­mála, rýmka rétt til byssu­eignar og sjálfs­varnar, beita sér gegn fóst­ur­eyð­ingum, minnka reglu­verk í við­skiptum, vinna gegn aðgerðum gegn lofts­lags­á­hrifum og svo hefur hann lofað að auka veru­lega útgjöld til upp­bygg­ingar inn­viða.

Ein helsta und­ir­staðan undir sigri Trumps er talin vera óánægja Banda­ríkja­manna, sér­stak­lega í Mið­vest­ur­ríkj­unum, með alþjóða­væð­ingu og alþjóð­lega sam­keppni í við­skiptum sem fylgt hefur til­flutn­ingur starfa milli landa. Stefna Trumps er því ein­angr­un­ar­sinnuð með skatta­lækk­anir og aukin útgjöld í for­grunni, sem ótt­ast er að valdi tjóni í hag­kerf­inu til langs tíma.

Stefnu Trumps í skatta­málum fylgja veru­legar skatta­lækk­anir sem eiga sér ekki for­dæmi frá tímum Ronalds Reagan. Í for­seta­tíð Reagan voru inn­leiddar stór­felldar skatta­lækk­anir, meðal ann­ars lækkun á hátekju­skatti úr 70 pró­sent í 28 pró­sent, og á sama tíma juk­ust skuldir banda­ríska rík­is­ins úr 26 pró­sent í 41 pró­sent af þjóð­ar­fram­leiðslu frá 1980 til 1988. 

Ofurtollar á Kína

Mörg stefnu­mála Trumps geta haft áhrif á stöðu Íslands og Íslend­inga í fram­tíð­inni. 

Eitt af stefnu­málum hans í utan­rík­is­málum hefur verið að hann tryggir ekki að Banda­ríkin virði sam­komu­lag Nató um að árás á eitt ríki jafn­gildi árás á öll ríki Nató, en Ísland er aðili að Norður-Atl­ants­hafs­banda­lag­inu.

Trump hót­aði í kosn­inga­bar­átt­unni að leggja 45% tolla á inn­flutn­ing frá Kína. Hann vill end­ur­skoða Nafta, sem er frí­versl­un­ar­samn­ingur milli Banda­ríkj­anna, Kanada og Mexíkó. Að auki vill hann draga Banda­ríkin út úr við­ræðum um við­skipta­banda­lag við Kyrra­hafið. 

Með við­skipta­hindr­unum og ein­angr­un­ar­hyggj­unni færir Trump sig frá hefð­bund­inni stefnu Repúblikana­flokks­ins um frjáls við­skipti milli landa.

Þá vill hann reisa vegg á landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexíkó á kostnað Mexíkó. Hann hefur lagt áherslu á nán­ara sam­starf við Rússland og Vladimir Putin.

„America first,“ er slag­orð Trumps og hyggst hann draga úr útgjöldum til alþjóð­legrar sam­vinnu.

Beitir sér gegn aðgerðum í loftslagsmálum

Trump hefur heitið því að stöðva allar greiðslur Banda­ríkj­anna í verk­efni Sam­ein­uðu þjóð­anna vegna lofts­lags­mála. Hann hefur lofað því að „afnema“ Par­ís­ar­sam­komu­lagið um sam­eig­in­legar aðgerðir gegn gróð­ur­húsa­á­hrifum. Áður hefur hann kallað kenn­ing­una um hlýnun jarðar fölsun á vegum Kína til að minnka sam­keppn­is­hæfni Banda­ríkj­anna. 

Þá vill hann minnka hömlur á „háþrýsti­vökva­brotun“, eða „fracking“, gas­fram­leiðslu sem felur í sér neð­an­jarð­ar­spreng­ingar. Auk þess leggur hann áherslu á aukna olíu­fram­leiðslu og minni áherslu á umhverf­is­mál en for­veri hans.

Fyrirtækjaskattar lækkaðir

Eitt af helstu stefnu­málum Trumps er að lækka alla fyr­ir­tækja­skatta í 15 pró­sent flatan skatt. Nú er hámarks­skattur á fyr­ir­tæki 35 pró­sent. Þetta yrði því veru­leg skatta­lækkun. Á sama tíma lofar hann gríð­ar­legri upp­bygg­ingu á innviðum. Hún verður meðal ann­ars fjár­mögnuð með minni fram­lögum til alþjóð­legrar sam­vinnu og umhverf­is­mála.

Reiknað hefur verið út að skatta­lækk­anir Trumps minnki tekjur rík­is­ins tvö­falt meira en skatta­breyt­ingar Reagans og Bush. Tillögur Hillary Clinton í skatta­málum voru hins vegar taldar auka skatt­tekjur tölu­vert. Clinton hugð­ist hækka hátekju­skatt úr 39,6 pró­sent í 43,6 pró­sent, en Trump vill lækka hann úr 39,6 pró­sent í 33 pró­sent og afnema erfða­skatt og eigna­skatt.

Á móti kemur að Trump hyggst afnema Obamacare, sem tryggt hefur heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir tæp­lega 13 millj­ónir manna, sem eru án heil­brigð­is­trygg­ingar. Í stað­inn hyggst hann koma á kerfi sem er val­kvætt út frá mis­mun­andi ríkjum.

Raunar hefur Trump heitið því að snúa við öllum ákvörð­unum Baracks Obama. Að auki er eitt af áherslu­málum hans að hreinsa til í Washington, í banda­rískum stjórn­málum, „þurrka fenið“ og „minnka spill­andi áhrif sér­hags­muna“.

Andvígur fóstureyðingum

Þá eru ónefnd ein­hver mik­il­væg­ustu mann­rétt­inda­málin. Donald Trump er and­vígur fóst­ur­eyð­ingum. Nú er hann í lyk­il­stöðu til að útnefna níunda dóm­ar­ann í Hæsta­rétti Banda­ríkj­anna, en það var einmitt frægur dómur í máli Roe vs. Wade sem auð­veld­aði konum að velja fóst­ur­eyð­ingu árið 1973 á grund­velli þess að þær féllu undir einka­líf þeirra. „Lífið er grund­vall­ar­rétt­indi,“ segir Trump. „Alrík­is­stjórnin á ekki að minnka þennan rétt með því að neita að vernda hann.“

Trump hefur kallað kallað eftir banni á ferðum múslima til Banda­ríkj­anna og flutn­ing þeirra til lands­ins. Síðar hefur hann notað óljós­ara orða­lag um fyr­ir­ætl­anir sínar í inn­flytj­enda­málum. Hann hefur bakkað frá fyr­ir­ætl­unum um að senda alla ólög­lega inn­flytj­endur úr landi, og hyggst í stað þess flytja alla ólög­lega inn­flytj­endur úr landi sem eru á saka­skrá, en það eru um 168 þús­und manns. Trump áætlar fjöld­ann þó tvær millj­ónir manna, sem bendir til þess að skil­grein­ing hans á saka­ferli nái yfir hraða­sektir og önnur minni­háttar brot.

Trump hefur þá stefnu að auka bæði víg­búnað banda­ríska rík­is­ins og svo getu til njósna. „Friður með styrk,“ er kjarna­stefna hans.

Loks leggur Trump sér­staka áherslu á að auka rétt banda­rískra borg­ara til byssu­eignar og sjálfs­varnar. „Rík­is­stjórnin á ekki að skipta sér af því hvers kyns skot­vopn gott, heið­ar­legt fólk má eiga.“ Hann vill að fólk geti borið skot­vopn í öllum 50 ríkjum Banda­ríkj­anna. „Lög­reglan vinnur gríð­ar­legt starf, en hún getur ekki verið alltaf alls staðar.“

Hér má lesa nánar um stefnu Donalds Trump með hans eigin orðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2016

Bergmálið frá Hitler: Er Trump fasisti?
ErlentForsetakosningar í BNA 2016

Berg­málið frá Hitler: Er Trump fas­isti?

Á dög­unum sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata, úr ræðu­stól á Alþingi að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti væri fas­isti. Óli Björn Kárason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins and­mælti því, og nokkrir aðrir sömu­leiðis. En fleiri hafa velt þessu fyrir sér og ekki aðeins hér á landi. Nýlega birti vef­síðan Slate við­tal sem blaða­mað­ur­inn Isaac Chotiner tók við breska sagn­fræð­ing­inn Richard Evans, þar sem einmitt var fjallað um hvort Trump væri á svip­uðum slóðum og fas­istar eða nas­istar líkt og Adolf Hitler.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár